Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn074
Baldur Magnússon til vinstri og Atli Þórsson til hægri á æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar líklega á verkinu Kardimommubærinn.
Minjasafn 544
<p>Gripur nr. 544. Kydill sem hægt er að stinga í jörðina. </p>
Magnús B Jónsson095
Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson í land á trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúfubak í eftirdragi. Hvalinn höfðu þeir fundið dauðan á reki norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur - tarfur - um 10 metra langur. Hvalurinn var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og tekið úr honum sýni. Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað þar. Á myndinni er Hafró fólkið, íklætt hlífðarbuxum, að undirbúa sýnatöku. Guðmundur J. Björnsson stendur við sporðinn í blárri peysu, aðrir eru óþekktir. Til gamans má geta þess að reður hvalsins var sendur til Reðursafns Íslands að ósk eiganda safnsins en hann ætlaði að hafa reðurinn þar til sýnis með öðrum slíkum líffærum af hinum ýmsu spendýrum. Myndina tók Magnús B. Jónsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn232
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Steindór Haraldsson sem tók þátt í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hann formaður Leikklúbbsins 1992 - 1995.
Minjasafn 604
Gripur nr. 604. Koffort/taska úr tré. Brúnmálað. Tvær læsingar sitt hvoru megin við haldið.
Minjasafn 135
Gripur nr. 135. Halasnælda lítil 27 cm löng. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn135
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Á myndinni er Magnús í sminkun fyrir hlutverk sitt í "Er þetta ekki mitt líf" sem sýnt var leikárið 1982 - 1983.
Guðmundur Guðnason 2 493
Hér er verið að gera við heyvagn á Hvammi í Hjaltadal. Maðurinn í miðjunni er Sigurður Jónsson frá Fjallsminni og sá í rauðu peysunni er Einar ? sem eitt sinn átti heima í Sólvangi á Skagaströnd. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Barnaból - safn304
Kristján Freyr Sigurbjörnsson á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1990.
Skagaströnd - safn355
Á þessari mynd er verið að selja postulínsdiska til styrktar kirkjubyggingar á Skagaströnd. Á diskunum er mynd og áletrun. Eins og oft vill verða þá eru þessir diskar að öðlast meira og meira söfnunargildi eftir því sem lengra líður frá framleiðslu þeirra. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Jón Ingi Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson - safn 462
Arnar Hu 1. Eitt af mörgum skipum sem borið hafa þetta nafn og númer í eigu Skagstrendings hf.
Minjasafn 191
Gripur nr. 191. Púðurdós. Á miðju loki er rós ígreipt í glerung, svört umgjörð utan um. Dósin er 8 cm breið. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 471
Þessi mynd af Skagaströnd hefur sennilega verið tekin kringum 1990 - 1995
Minjasafn 486
Gripur nr. 486. Tveir bollar. Hvítir, skreyttir með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 485.
Minjasafn 60
Gripur 60. Smellurammi með sex myndum frá sjávarsíðunni.
Minjasafn 85
Gripur nr. 85. Mynd af torfbæ og húsdýrum í brúnum tréramma, máluð mynd.
Óþekktur ljósmyndari367
Þessa mynd af heyskap tók Evald Hemmert einhverntíma í kringum 1910. Myndin, sem hefur verið handmáluð, sýnir byggðina fyrir víkina og á Hólanesinu. Ef grannt er skoðaða má sjá mann á hesti með annan í taumi ríða fyrir víkina, líklega að koma úr verslunarferð.
Minjasafn 78
Gripur nr. 78. Gler/plastrammi með mynd af óþekktum ungum manni.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn124
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson og Súsanna Þórhallsdóttir.
Skagaströnd - safn404
Landsins forni fjandi, hafísinn, á víkinni fyrir norðan Höfðann, Bótinni. Ekki er vitað hvaða vor myndin var tekin.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn087
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri: Lovísa Vattnes, Elín Njálsdóttir, Ingólfur Bjarnason, Fannar Viggósson, Rúnar Jóhannsson, Jón Ingvar Valdimarsson, Jensína Lýðsdóttir, Hildur Inga Rúnarsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Jóney Gylfadóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Jenný Lind Sigurjónsdóttir (nær), Steindór Haraldsson, Hallbjörn Hjartarson og Óli Hjörvar Kristmundsson.
Guðmundur Guðnason 2 467
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið í Gömlu Tunnunni á einhverri skemmtun. Á myndinni eru Bergdís Sigmarsdóttir og Benedikt Jónsson (d. 25.2.1999) frá Höfnum á Skaga.
Minjasafn 263
gripur nr. 263. Djúpir diskar A.,B. og C. Hvítir með gylltri rönd. Þrjú blóm á þremur stöðum á barmi. Þvermál 21 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk.
Minjasafn 124
Gripur nr. 124. Mynd af frú Dóru Þórhallsdóttur forsetafrú (kona Ásgeirs Ásgeirssonar forseta 1952 - 1968) í silfruðum ramma. 17 cm á breidd og 25 cm á hæð. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri -Harrastöðum í ágúst 1994. Myndin er úr búi foreldra hennar.
Minjasafn 205
Gripur nr. 205. Veggplattar. A er hringlaga merktur ÍSLAND - ICELAND, ÞINGVELLIR og á honum er mynd frá Þingvöllum með hestum á beit í forgrunni. Breidd 15 cm. B er hringlaga merktur ÍSLAND - ICELAND, SKÓGARFOSS með mynd af Skógarfossi. Breidd 15 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd.
Minjasafn 306
Gripur nr. 306. Mjólkurflaska úr glæru gleri. Á henni stendur: <strong>Mjólkursamsalan 1/2 l</strong>. Í þessum flöskum var mjólkin keypt. En flöskurnar voru í notkun í kringum 1965 - 1975. Hæð 24 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir Bogabraut 24, Skagaströnd 5. nóvember 1994.
Minjasafn 96
Gripur nr. 96. Átta myndir af fólki í brúnum ramma. Myndirnar tók Guðrún Guðmundsdóttir af eldri borgurum á Skagaströnd á árunum 1984 - 1990.
Minjasafn 485
Gripur nr. 485. Þrjú stykki undirskálar. Hvítar, skreyttar með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 486.
Minjasafn 165
Gripur nr. 165. Pennabox gyllt á lit, merkt Birmingham.Var notað undir penna fyrir pennastangir. Boxið er eins og bók í laginu og opnað að ofan. No: 1346 á botninum. Penni límdur á kjölinn. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Guðmundur Guðnason 2 386
Undirfell í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 104
Gripur nr. 104. Trésleif, stór úr ljósum viði, lengd 41 cm, breiðust 10 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn046
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér eftir Véstein Lúðvíksson í leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þær Bjarnhildur Sigurðardóttir til vinstri og Guðný Sigurðardóttir til hægri.
Guðmundur Guðnason 2 421
Þessi mynd var tekin af kántrýmessu á fyrstu kántrýhátíðinni 1984. Á henni er Hallbjörn Hjartarson, meðhjálpari og sá sem stóð fyrir hátíðinni, að skrýða prestinn, séra Odd Einarsson. Kirkjukórinn bíður tilbúinn að syngja undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar (d. 2.8.2003) sem situr við hljóðfærið. Í kórnum eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Sigurður Bjarnason, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011) og Gylfi Sigurðsson.
Minjasafn 73
Gripur nr. 73. Brúnn rammi með mynd af Húna Hu 1.
Myndasafn 366
Gripur nr. 366. Kökudiskur. Hvítur, postulín, rimlaðir kantar, gylling meðfram brúnum. Blómaskreyting/blómakrans í ysta lagi botnsins. Mynd af Öxará í Almannagjá í botni. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 31
Gripur nr. 31. Tóbaksdós. Gefandi: Skafti Fanndal Jónasson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn100
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallbjörn J. Hjartarson sem lék í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess leikstýrði hann og sá um tónlist í uppsetningum á vegum klúbbsins.
Minjasafn 37
Gripur nr. 37. Mynd af vermönnum. Vermenn af Skagaströnd og Nesjum sem fóru suður á vertíð 1903 - 1905.
Minjasafn 203
Gripur nr. 203. Skrautskál, köntuð græn á lit, með munstri. Mjóst neðst en víkkar upp. Munstrað glerið. Lengd 14,5 cm og breidd 8 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd 1986.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn214
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðný Sigurðardóttur sem þátt tók í mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins 1995 - 1996 ásamt Birnu Blöndal.
Minjasafn 61
<p>Gripur nr. 61. Plastumslag með útprentuðum myndum báðum megin. Öðru megin eru myndir af húsum sem búið er að rífa. Hinum megin eru myndir af fólkinu sem bjó í húsunum.</p>
Minjasafn 412
Gripur nr. 412. Loftljósakúpull, ferningslagaður, kúptur, úr brúnleitu gleri með munstri. Perustæðið (ljósastæðið) fylgir með.
Minjasafn 206
Gripur nr 206. Litlir sauðskinnsskór með hvítum leðurbryddingum. Bláir og hvítir illeppar. Unnir af Sigríði Hjálmarsdóttur á Sauðárkróki. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn067
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jensínu Lýðsdóttur sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins 1997 - 1998.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn108
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ágústu Friðríksdóttur sem lék í sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn052
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin í hléi á sýningu í Fellsborg þegar leikararnir eru að slaka á fyrir seinni hluta sýningarinnar. Á myndinni eru frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Elín Njálsdóttir, Díana Kristjánsdóttir og Ágústa Friðriksdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn201
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Skúla Tómas Hjartarson sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn007
Mynd frá Norrænu skíðagöngukeppninni 1964 tekin við Vetrarbraut á Skagaströnd en þar norður frá var lögð skíðagöngubraut. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og síðan var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Þátttaka í keppninni á Skagaströnd var góð eins og sjá má á þessari mynd þó fólkið sé óþekkt.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn018
<p>Þessi mynd var tekin á Höfðanum vorið 1977. Sennilega eru krakkarnir á myndinni úr Höfðaskóla í vettvangsferð með kennaranum sínum. Krakkarnir eru, frá vinstri, í aftari röð: Þórhildur Jakobsdóttir, Agnes Sævarsdóttir, Vala Rós Ingvarsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Kristján Steinar Kristjánsson, Víðir Ólafsson og Orri Blöndal. </p><p> </p>
Barnaból - safn266
Karen Peta Karlsdóttir á leikskólaárum sínum á Skagaströnd kringum 1985.
Guðmundur Guðnason 2 401
Þórunn Sigurðardóttir eða "Lilla" á Sólvöllum. Á myndinni á veggnum er faðir hennar Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) verkstjóri frá Hólanesi.
Skagaströnd - safn361
Myndin var tekin á föndurdegi í Höfðaskóla í desember 1991. Frá vinstri: óþekktur strákur, Þórunn Óladóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir, Dóra Kristín Jónasdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson og óþekkt stúlka.
Minjasafn 525
Gripur nr. 525. Tréstytta af ungum pilti og stúlku sem sitja á grindverki og syngja og spila saman.
Árni Geir Ingvarsson - safn 402
Sigurbjörg St 55 tekinn upp í slipp á Skagaströnd. Kári Lárusson er fremst til vinstri en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 437
Ólafur Guðmundsson - Óli skip - býr sig undir að saga sundur bát, sem á að eyða, með keðjusög. Kári Lárusson fylgist með.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn115
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bjarna Ottósson sem var starfsmaður við sýningu klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn198
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jónas Þorvaldsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins, þá barn, á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn106
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 272
Gripur nr. 272. Rjómakanna úr glæru gleri. Grópuð blóm í glerið framan á. Hæð 9 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk Skagaströnd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn019
Þessi mynd var tekin á leikskólanum Barnaból, líklega einhverntíma 1982 - 1984. Á myndinni eru frá vinstri: Þorlákur Ómar Guðjónsson (nær), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (fjær) og Guðný Kristín Finnsdóttir.
1
…
102
103
104
…
167
Leita í myndasafninu
Leita