Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn350
Þetta hús og umhverfi þess hefur tekið stakkaskiptum frá því að þessi mynd var tekin í febrúar 1992, ekki bara í útliti heldur líka hvað starfsemina varðar sem fram fer í húsinu. Áður var í húsinu frystihús Hólanes hf seinna rækjuvinnsla, saltfiskvinnsla og harðfiskframleiðsla. Þá stóð húsið autt í nokkur ár þar til Listamiðstöðin Nes hóf sína starfsemi í húsinu eftir nokkra yfirhalningu á því.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn018
<p>Þessi mynd var tekin á Höfðanum vorið 1977. Sennilega eru krakkarnir á myndinni úr Höfðaskóla í vettvangsferð með kennaranum sínum. Krakkarnir eru, frá vinstri, í aftari röð: Þórhildur Jakobsdóttir, Agnes Sævarsdóttir, Vala Rós Ingvarsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Kristján Steinar Kristjánsson, Víðir Ólafsson og Orri Blöndal. </p><p> </p>
Minjasafn 329
Gripur nr. 329. Glerkanna, stór með smáröndum á, í fjórum litum. Ígreiptar rendur efst. Glerið leggst yfir stútinn. Hæð 25 cm, breidd á barmi 13 cm. Eitt glas í sama stíl fylgir með en hæð þess er 12 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar á Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Guðmundur Guðnason 2 425
Hér er unnið að byggingu nýrrar Hólaneskirkju á hlaðinu á þeirri gömlu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn152
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, William Sillar og Björk Sveinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 484
Þessi mynd var tekin af þeim Þórunni Bernódusdóttur til vinstri, Guðrúnu Pálsdóttur í miðjunni og Höllu Björg Bernódusdóttur til hægri þar sem þær sitja í tröppunum við Stórholt - Bankastræti 3. Þar voru þær Halla og Þórunn aldar upp og Guðrún er mágkona þeirra. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1971- 1973. Húsið í baksýn er Höfðakot sem nú hefur verið rifið.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn021
Árið 1969 kom Kristján Eldjárn forseti Íslands í heimsókn til Skagastrandar. Þessi mynd var tekin á Höfðanum við það tækifæri. Forsetinn er á miðri mynd með gleraugu að hlýða á leiðsögn ?Páls Jónssonar? (d. 19.7.1979) skólastjóra. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) sveitarstjóri standa hlið við hlið aftan við forsetann, annar þeirra með hatt í höndunum fyrir aftan bak. Dökkhærða konan til hægri er Hjördís Sigurðardóttir og lengst til hægri er Adolf J. Berndsen.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn096
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bjarnhildi Sigurðardóttur sem lék í mörgum leikritum á vegum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 60
Gripur 60. Smellurammi með sex myndum frá sjávarsíðunni.
Minjasafn 85
Gripur nr. 85. Mynd af torfbæ og húsdýrum í brúnum tréramma, máluð mynd.
Óþekktur ljósmyndari367
Þessa mynd af heyskap tók Evald Hemmert einhverntíma í kringum 1910. Myndin, sem hefur verið handmáluð, sýnir byggðina fyrir víkina og á Hólanesinu. Ef grannt er skoðaða má sjá mann á hesti með annan í taumi ríða fyrir víkina, líklega að koma úr verslunarferð.
Minjasafn 78
Gripur nr. 78. Gler/plastrammi með mynd af óþekktum ungum manni.
Skagaströnd - safn361
Myndin var tekin á föndurdegi í Höfðaskóla í desember 1991. Frá vinstri: óþekktur strákur, Þórunn Óladóttir, Rósa Björg Högnadóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir, Dóra Kristín Jónasdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson og óþekkt stúlka.
Minjasafn 525
Gripur nr. 525. Tréstytta af ungum pilti og stúlku sem sitja á grindverki og syngja og spila saman.
Árni Geir Ingvarsson - safn 402
Sigurbjörg St 55 tekinn upp í slipp á Skagaströnd. Kári Lárusson er fremst til vinstri en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 388
Arnarborg HU11 í slippnum á Skagaströnd. Þar var báturinn rifinn og endaði á áramótabrennunni 1993.
Minjasafn 257
Gripur nr. 257. Lampafótur. Stytta af hafmeyju. Er úr gipsi. Hafmeyjan er með perustykkið á höfðinu og er hún gullbronsuð á lit en hárið er rautt og einnig steinninn sem hún situr á. Rafmagnssnúran er mjög forn úr snúnu taui. Kom úr búi Ólafs Guðmundssonar og Elísabetar Karólínu Ferdinandsdóttur Brautarholti, Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn200
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Önnu Jónu Geirsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Guðmundur Guðnason 2 389
Heiðdís Sigurðardóttir.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn017
Þessi mynd var tekin á Höfðanum vorið 1977. Sennilega eru krakkarnir á myndinni úr Höfðaskóla í vettvangsferð með kennaranum sínum. Krakkarnir eru, frá vinstri: Kristján Steinar Kristjánsson, Einar Ásgeirsson, Vala Rós Ingvarsdóttir, Bjarni Ottósson, Drífa Kristjánsdóttir, Agnes Sævarsdóttir, Þórhildur Jakobsdóttir og óþekktur.
Minjasafn 367
Gripur nr. 367. Skál úr glæru gleri með loki. Þegar lokið er á myndar hún hænu á hreiðri. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn142
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin af Halldóri við vinnu sína á æfingu.
Skagaströnd - safn407
Viðbygging við leikskólann Barnaból formlega tekin í notkun í september 1994. Af því tilefni mættu foreldrar og velunnarar skólans og hlustuðu á ræðu og skoðuðu nýju aðstöðuna. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ragnheiður Magnúsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir og Ólafía Sigurjónsdóttir. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn070
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Guðjóns Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Kristján Blöndal, Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir.
Minjasafn 560
Gripur nr. 560. Járnskilti 31 x 23 cm. Á skiltinu stendur:"THE BABCOCK & WILCOX COMPANY. INTEGRAL-FURNACE BOILER" ásamt fleiru.
Minjasafn 32
Gripur nr. 32. Rakhnífur. Rakhnífur í svartri öskju. Hnífurinn sjálfur er líka svartur King Cutter.
Guðmundur Guðnason 2 484
Eldri borgara í heimsókn í Þingeyrarkirkju ásamt nokkrum kvenfélagskonum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Þórunn Þorláksdóttir, Stefán Stefánsson (d. 2.1.1988),Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003).
Guðmundur Guðnason 2 473
Fólkið á myndinni er óþekkt og líka hvaða rétt þetta er. Ef þú þekkir einhvern eða veist hvaða rétt þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 277
Gripur nr. 277. Snældustóll, viðarlitaður 29 cm langur, breidd 13,5 cm og 28 cm hár. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd. Björn var fæddur í maí 1897.
Árni Geir Ingvarsson - safn 363
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Hér er Ólafur Bernódusson allur á lofti í hlutverki sínu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn124
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson og Súsanna Þórhallsdóttir.
Skagaströnd - safn404
Landsins forni fjandi, hafísinn, á víkinni fyrir norðan Höfðann, Bótinni. Ekki er vitað hvaða vor myndin var tekin.
Skagaströnd - safn403
<p>Þegar þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1943 - 1946 var mikil uppbygging á Skagaströnd. Verksmiðjuskorsteinninn er risinn en ekki búið að fjarlægja vinnupallana kringum hann. Grindin í stóru mjölskemmunni er að rísa og byggingarefni liggur út um allt. Sundlaugin er í byggingu og niðri í horninu lengst til vinstri er búið að steypa undirstöðu fyrir olíutank sem þar reis síðar. Járnplötur sem voru efni í tankinn liggja við hlið sökkulsins. Fjósið sést norðan við kaupfélagið enda ekki búið að byggja Kaupfélagsskemmunna en sökklar hennar eru þó komnir. Ef grannt er skoðað má sjá á myndinni mörg hús sem nú eru horfin eða hafa vikið fyrir nýjum. Myndina tók Guðmundur Guðnason. </p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn164
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Jón Arnarson, Steindór Haraldsson, Ingimar Oddsson, Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Hendrik Berndsen.
Guðmundur Guðnason 2 494
Óþekkt stúlka á hestbaki. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn208
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Árna Geir Ingvarsson sem tók þátt í mjög mörgum sýningum Leikklúbbsins sem ljósa- og tæknimaður á sínum tíma.
Minjasafn 82 no2
Gripur nr. 82. Stór silfurlitur rammi með skjalinu: "The International association of Lions Clubs". Einhver konar viðurkenningarplagg.
Minjasafn 486
Gripur nr. 486. Tveir bollar. Hvítir, skreyttir með gráum blómum og gyllingu á barmi. Í stíl við grip nr. 485.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn067
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jensínu Lýðsdóttur sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hún formaður Leikklúbbsins 1997 - 1998.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn108
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ágústu Friðríksdóttur sem lék í sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn052
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin í hléi á sýningu í Fellsborg þegar leikararnir eru að slaka á fyrir seinni hluta sýningarinnar. Á myndinni eru frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Elín Njálsdóttir, Díana Kristjánsdóttir og Ágústa Friðriksdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn201
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Skúla Tómas Hjartarson sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn007
Mynd frá Norrænu skíðagöngukeppninni 1964 tekin við Vetrarbraut á Skagaströnd en þar norður frá var lögð skíðagöngubraut. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og síðan var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Þátttaka í keppninni á Skagaströnd var góð eins og sjá má á þessari mynd þó fólkið sé óþekkt.
Minjasafn 263
gripur nr. 263. Djúpir diskar A.,B. og C. Hvítir með gylltri rönd. Þrjú blóm á þremur stöðum á barmi. Þvermál 21 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk.
Minjasafn 124
Gripur nr. 124. Mynd af frú Dóru Þórhallsdóttur forsetafrú (kona Ásgeirs Ásgeirssonar forseta 1952 - 1968) í silfruðum ramma. 17 cm á breidd og 25 cm á hæð. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri -Harrastöðum í ágúst 1994. Myndin er úr búi foreldra hennar.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn003
Barnaafmæli á Suðuvegi 9 sennilega vegna afmælis Kristjáns Péturs Guðjónssonar sem situr brosandi við borðsendann. Hann á afmæli í september þannig að myndin hefur sennilega verið tekin í þeim mánuði einhverntíma á árunum 1997 -1999. Á myndinni eru frá vinstri: Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Sindri Jóelsson, Ívar Gylfason, óþekktur, Kristján Pétur Guðjónsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Sunna Gylfadóttir, Hanna Gylfadóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Arnór Snorri Gíslason og Jón Atli Magnússon.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn094
Þórey Jónsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar.
Minjasafn 36
Gripur nr. 36. Mynd af síldarsöltun á Skagaströnd.
Minjasafn 66
Gripur nr. 66. Brúnn rammi með 11 litlum myndum af sjó og sjómennsku.
Minjasafn 294
Gripur nr. 294. Járn-olíulampi úr járni.
Skagaströnd - safn420
Sandur safnast gjarnan á og kringum teinana í dráttarbrautinni. Sandinn þarf að fjarlægja því annars er hætta á því að sleðinn, sem bátarnir er dregnir upp í, fari út af teinunum og þá er ekki hægt að ná viðkomandi bát upp. Á myndinni er verið að moka ofan af teinunum á há-fjöru eins langt fram og grafan nær.
Minjasafn 105
Gripur nr. 105. Heynál með tréskafti. Breidd handfangs 27 cm og lengd járnsins 30 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 58
Gripur nr. 58. Brúnn rammi sem geymir margar myndir: tvær af Kristínu Bjarnadóttur, Hrólfur Jakobsson, Ólafur Guðlaugsson, Guðmundur Guðnason póstur, Jóhann Pétursson með lamb og Ólafur Guðmundsson í Brautarholti.
Minjasafn 12
Gripur nr. 12. Gleraugu, lítil, í gylltri umgjörð. Gleraugnahúsið er merkt: Gleraugnasalan Fókus, Lækjargata 6. Óvís eigandi. Fundin og gefin af Elísabetu Árnadóttur frá Réttarholti Skagaströnd í janúar 1977.
Minjasafn 10 no2
Gripur nr. 10. Upphlutsbolur svartur úr silki með gylltum, balderuðum rósum á borðum. Hann var unnin um 1910 af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili. Bakið lagt með gylltum stímum. Gefandi: Elísabet Árnadóttir í hjanúar 1977.
Guðmundur Guðnason 2 489
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á ferðalagi á hálendinu. Skálinn í baksýn er sennilega Hvítárskáli Ferðafélags Íslands við Hvítárvatn. Þar er sagt að sé draugagangur.
Minjasafn 42
Gripur nr. 42. Lítil mynd af Sigríði Guðlaugsdóttur (d. 25.3.1996) frá Bjarmalandi á Skagaströnd.
Minjasafn 570
Gripur nr. 570. Útvarp. Blátt og hvítt með haldi á toppi. Merkt: "Vilhelmína Andrésdóttir".
Minjasafn 199
Gripur nr. 199. Staup 3 stk. með gullrönd og mynd af einhverskonar dýri.
Guðmundur Guðnason 2 385
Þessi unga manneskja er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
103
104
105
…
167
Leita í myndasafninu
Leita