Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 89
Gripur nr. 89. Málverk í silfurramma af akkeri á ströndu.
Minjasafn711
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Maðurinn með hvítu húfuna til vinstri er Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Bautarholti, Frakkaklæddi maðurinn hægra megin við Ólaf er Hörður Ragnarsson en konan í dökku dragtinni og hvítu bandaskónum er líklega Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka. Til hægri spjalla saman þeir Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi til vinstri og Þórarinn Björnsson (d. 24.5.1985) Höfðaborg (Bankastræti 9) til hægri með hvíta húfu. Aðrir eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 404
Gripur nr 404. Kastarola (lítill skaftpottur). Eitt langt hald/skaft. Ekkert lok, stútur á einni hlið. "Smörlíkispottur".
Minjasafn 181
Gripur nr. 181. Veggteppi, ofið með glitvefnaði, er dökk brúnt á litinn. Hæð 107 cm og lengd 192 cm. Ofið af gefanda á Kvennaskólanum á Blönduósi. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 358
Gripur nr. 358. Kassi með þurrum sjávarlífverum. Kuðungar, gaddakrabba, krossfiskur og fleira. Einnig bláir plattar með skrauti úr hafinu. Gefandi: Rósa Björg Högnadóttir Miðnesi, Skagaströnd.
Minjasafn 389
gripur nr. 389. Kleinujárn, mjög gamalt. Grænn litur á hjólinu ( spanskgræna?).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn231
<p>Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallgrím Oddsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.</p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 423
Reglulega þarf að dýpka höfnina á Skagaströnd vegna sandburðar inn í hana. Á þessari mynd er verið að draga fullan sandpramma út á rúmsjó til að hleypa úr honum sandinum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 256
Gripur nr. 256. Lampi fyrir rafmagn. Hann er úr plast sívalningi, hvítur með svörtum skáröndum. Svört 6 cm stétt undir. Gylltur barmur. Gefandi: Borghildur Jónsdóttir Reykjavík í júlí 1994.
Minjasafn 264
Gripur nr. 264. Diskar, grunnir, hvítir með blárri rönd. Þvermál 24 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 262
Gripur nr. 262. Kökudiskur, hvítur með bleikum rósum á. Göt eru á endum, sem mynda eyru. Ljós grænn á börmum. Brotið smá úr hlið. Þvermál 26 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk.
Minjasafn 474
Gripur nr. 474. Fleygur undan "Napoleon Brandy". Fleygurinn er úr grænleitu gleri.
Minjasafn 267
Gripur nr. 267. Mjólkurkanna, hefur verið mjög falleg. Brún efst á barmi og haldi. Ljós grár leir með hvítum upphleyptum myndum. Þær virðast steyptar utan á. Brotið er úr barminum á annarri hliðinni. Hæð 17 cm. Kannan er úr búi Björns Helgasonar Efra-Læk, Skagaströnd.
Minjasafn 398
Gripur nr. 398. Lítill pilkur/sakka með tveimur krókum. Silfurlitur líkur fiski. Notaður á færi til að veiða fisk úr sjó.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn023
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi 1966 af fótboltaleik á Kaupfélagstúninu. Þar kepptu sjómenn íklæddir sjóstökkum í góðu veðri sem var þennan dag. Flestir þeirra voru ekki vanir fótboltaleikjum þannig að margur svitadropinn féll í leiknum sem var frjálslega dæmdur af dómara leiksins.
Minjasafn 202
Gripur nr. 202. Vatnsflaska, með glertappa í. Flaskan mjókkar upp og breikkar stúturinn. Ummál 29 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir Réttarholti, Skagaströnd 1984
Leikklúbbur Skagastrandar - safn056
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg. Ólafur Bernódusson mundar sprautuna en Magnús B. Jónsson fylgist með í rúminu.
Minjasafn 102 no2
Gripur nr. 102. Reiknivél úr svörtu járni, tegund: Allen Wales með handsveif á hægri hlið. Lengd 37 cm, breidd 22 cm, hæð 19 cm. Var notuð í Kaupfélagi Skagstrendinga, síðar Kaupfélagi A - Hún. Lánuð af Guðsteini Einarssyni í maí 1994.
Minjasafn 136
Gripur nr. 136. Gamall hengilás (Sul) 5 cm breiður og 4 cm á hæð. Hefur verið svartur en málningin farin að mást af. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Magnús B Jónsson091
Anna Dúna Rúnarsdóttir hvílir sig í hestaferð 1998. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason 2 387
Kirkjugestir við Ábæjarkirkju í Austurdal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 156 no2
Gripur nr. 156. Borð, lítið 56 cm á lengd, 31 cm breitt og 48 cm á hæð. Fætur bogadregnar og lítil hilla undir. Dökk brúnt með gulum rákum. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.
Minjasafn 121
Gripur nr. 121. Veggsími í brúnum viðarkassa, tvær bjöllur framan á og statíf fyrir til dæmis blöð. Tegund Ericson. Hæð símans er 40 cm, breidd 24 cm og þykkt 15 cm. Gefandi: Þorvaldur Skaftason Skagaströnd.
Minjasafn 269
Gripur nr. 269. Mjólkurkanna, hvít með upphleytu munstri á barmi og að neðan. Mynd af blómvendi á annrri hlið. Hefur brotnað efst en verið límd. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd.
Minjasafn 447
Gripur nr. 447. Tveir gamlir síldardiskar. Annar með grænni málningu á. Diskar sem þessir voru notaðir til að strá salti yfir hvert síldarlag í tunnunum þegar síld var söltuð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti, Skagaströnd en móðir hennar átti diskana.
Guðmundur Guðnason 2 358
Ekki er vitað hvenær eða hvar þessi mynd var tekin. Fólkið er að fylgjast með einhverjum atburði, líklega á íþróttamóti. Áhorfendurnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn104
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Helgu Hermannsdóttur sem var starfsmaður við nokkrar sýningar klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 309
Gripur nr. 309. Tréplatti notaður þegar verið var að saga út smástykki. Lengd 16 cm, breidd 16 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir, Bogabraut 24, Skagaströnd 5. nóvember 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn222
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem lék í nokkrum sýningum Leikklúbbsins auk þess að leikstýra leikritinu: Allra meina bót fyrir Leikkklúbbinn leikárið 1976 - 1977. Bernódus starfaði líka áður mikið með Leikfélagi Skagastrandar meðan það var og hét.
Minjasafn 565
Gripur nr. 565. Pínulítil plastkarfa sem fjögur lítil plastblóm standa upp úr. Hefur líklega verið barnaleikfang.
Minjasafn 19
Gripur nr. 19. Peningabudda, brún úr leðri, með tveimur hólfum. Aftara hólfið leggst fram yfir fremra hólfið og lokar buddunni. Stærð 11 cm á lengd og 7,5 cm á breidd. Mjög gömul. Gefandi: Guðmundur Pétursson frá Höfðakoti Skagaströnd 8. febrúar 1973.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn006
Líklega hefur þessi mynd verið tekin um 1975 en tilefnið er óþekkt. Í aftari röð eru frá vinstri: Ingólfur Sveinsson, Vilhelm Harðarson, Georg Ottó Georgsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Páll Jónsson (d.13.5.2021)og Hjörtur Guðmundsson. Sitjandi frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, Vilhelm Jónsson og Sigurður Guðmundsson.
Minjasafn 503
Gripur nr. 503. Hlekkir úr leðri og skinni með járnkeðju.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn235
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ara Þórsson sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn151
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru þær Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Hallveig Ingimarsdóttir til hægri í hlutvekum sínum.
Minjasafn 555
Gripur nr. 555. Lítil trekt úr blikki.
Guðmundur Guðnason 2 396
Þóra Kristín Sveinsdóttir - Gagga (d.27.5.1996). Þóra var dóttir Sveins Hannessonar, Elivoga Sveins - eins og hann var gjarnan kallaður, en Þóra bjó í Bandaríkjunum á fullorðinsárum og lést þar.
Minjasafn 455
Gripur nr. 455. 14 stykki hljómplötur án hulstra. Ýmsar plötur, allar saman innvafðar í pappa.
Minjasafn 134
Gripur nr. 134. Tréhöldur, níu stórar og tvær litlar, allar þræddar upp á snæri. Brennimerktar: Óskar, Jón og fl. Notaðar til að binda upp reiðing. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn234
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórey Jónsdóttur sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 235
Gripur nr. 235. Sykurkar úr glæru gleri með tíglamunstri. Hæð 10 cm og breidd 7,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn098
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Helgu Ottósdóttur sem vann ýmis störf fyrir Leikklúbbinn sem hvíslari, leikmunavörður, umsjón með búningum, aðstoðarmaður leikstjóra auk þess að vera formaður Leikklússins1981 -1983.
Minjasafn 118
Gripur nr. 118. Hraðsuðupottur úr stáli. Hæð 17 cm og breidd 23 cm. Með rauðu og svörtu haldi.Löng járnrist í botni. Með fyrstu gerð hraðsuðupotta og voru mjög góðir. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn230
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hjördísi Gestsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 240
Gripur nr. 240. Reykjarpípa með svörtu munnstykki og stétt. Pípan er úr brúnum viði. Járnlok er ofan á kóngnum. Mjög sérstök í laginu. Á henni stendur: Köbenhavn og mynd af danska fánanum er á henni. Gefandi: Skafti Fanndal Jónasson Lundi, Skagaströnd í ágúst 1992.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn139
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg. Frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 374
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Einar Haukur Arason, Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson og Þorvaldur Skaftason.
Minjasafn 84
Gripur nr. 84. Íslandskort í brúnum tréramma.
Minjasafn 337
Gripur nr. 337. Leirskál með ígreyptum stjörnum inn í bogadregnum hringjum. Eilítið sprungin innan í. Þvermál 25 cm, hæð 11 cm. Skálin var í eigu Bjarnínu Árnadóttur Litla -Bergi, Skagaströnd. Gefandi var tengdadóttir eiganda. Gefandi: Jóhanna Thorarensen Skagaströnd 8. nóvember 1994.
Minjasafn 227
Gripur nr. 227. Stytta af Maríu mey. María er í hvítum kyrtli með bláu bandi. Hún heldur saman höndunum og er með kross-hálsfesti (talnaband?) á öðrum handleggnum. Styttan var keypt í verslun Sigurðar Sölvasonar á Skagaströnd. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í ágúst 1992.
Minjasafn 407
Gripur nr. 407. Loftljósaskermur af gamla laginu. Ferningslagað, glært gler með upphleyptu munstri. Skermurinn var skrúfaður á perustæðið.
Minjasafn 281
Gripur nr. 281. Bakki úr eir. Sporöskjulagaður 35 cm langur 25 cm breiðastur. Á barminum er munstur og ígreiptar rósir á hvorri hlið. Gefandi: Bergljót Óskarsdóttir Skagaströnd í ágúst 1991.</font>
Minjasafn 448
Gripur nr. 448. Hvítt, emalerað ílát með blú haldi. Líklega koppur eða bekken.
Minjasafn 645
Gripur nr. 645. Þrjú vöfflujárn, lögð saman utan um deigið. Hituð á hellu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn128
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni er Ragnhildur við störf sín í Fellsborg á æfingatímabilinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn062
Dagbjört Jóhannsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar.
Minjasafn 147
Gripur nr. 147. Tappar úr plasti, rauðir fyrir flöskur. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn121
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Guðbjörgu Gylfadóttur sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 287
Gripur nr. 287. Pressutunga. Járnstykki sem sett var inn í straubolta en járnið var hitað á eldi og er mjög þungt. 20 cm langt 4 cm breitt og 6 cm þykkt. Er úr búi Stefáns Stefánssonar Ytri-Ey Vindhælishreppi. Gefandi: Stefán Stefánsson ytri -Ey.
Minjasafn6
Gripur nr.6. Nærskyrta úr hvítu lérsfti. Saumuð með tungum í hálsmál og handvegi. Munstur með enskum og frönskum saum á brjóst. Merkt B.G.. Hneppt á öxlum. Unnið Af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
1
…
105
106
107
…
167
Leita í myndasafninu
Leita