Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 46
Gripur nr. 46. Lítil ljósmynd af Jóhönnu Benónýsdóttur frá Steinnýjarstöðum í ramma. Síðast var Jóhann búsett í Drangey á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason 2 358
Ekki er vitað hvenær eða hvar þessi mynd var tekin. Fólkið er að fylgjast með einhverjum atburði, líklega á íþróttamóti. Áhorfendurnir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn234
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórey Jónsdóttur sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 235
Gripur nr. 235. Sykurkar úr glæru gleri með tíglamunstri. Hæð 10 cm og breidd 7,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn098
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Helgu Ottósdóttur sem vann ýmis störf fyrir Leikklúbbinn sem hvíslari, leikmunavörður, umsjón með búningum, aðstoðarmaður leikstjóra auk þess að vera formaður Leikklússins1981 -1983.
Minjasafn 118
Gripur nr. 118. Hraðsuðupottur úr stáli. Hæð 17 cm og breidd 23 cm. Með rauðu og svörtu haldi.Löng járnrist í botni. Með fyrstu gerð hraðsuðupotta og voru mjög góðir. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn230
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hjördísi Gestsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 202
Gripur nr. 202. Vatnsflaska, með glertappa í. Flaskan mjókkar upp og breikkar stúturinn. Ummál 29 cm. Gefandi: Anna Skaftadóttir Réttarholti, Skagaströnd 1984
Árni Geir Ingvarsson - safn 374
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Einar Haukur Arason, Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson og Þorvaldur Skaftason.
Minjasafn 84
Gripur nr. 84. Íslandskort í brúnum tréramma.
Minjasafn 279
Gripur nr. 279. Mjólkurbrúsi, tekur 3 lítra. Hann er úr áli með loki og haldi. Merktur Skafti Fanndal. Öll heimili áttu sína mjólkurbrúsa undir mjólk. Gefandi: Jóna Guðrún Vihjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 569
Gripur nr. 569. Útvarp, lítið brúnt að lit. Bakið er farið af og "innvolsið" er sýnilegt en er laust í.
Minjasafn 526
Gripur nr. 526. Brúnleitur blómavasi/glas úr gleri á hvítum fæti.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn195
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Viggó Magnússon sem tók þátt í sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 269
Gripur nr. 269. Mjólkurkanna, hvít með upphleytu munstri á barmi og að neðan. Mynd af blómvendi á annrri hlið. Hefur brotnað efst en verið límd. Úr búi Björns Helgasonar Efri-Læk, Skagaströnd.
Minjasafn 447
Gripur nr. 447. Tveir gamlir síldardiskar. Annar með grænni málningu á. Diskar sem þessir voru notaðir til að strá salti yfir hvert síldarlag í tunnunum þegar síld var söltuð. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti, Skagaströnd en móðir hennar átti diskana.
Minjasafn 390
Gripur nr. 390. Gaffall beyglaður fremst en grænn litur hefur sest í beyglurnar (spanskgræna?).
Minjasafn 582
Gripur nr. 582. Trékistill (púlt), brúnmálaður. Aftast er hann ferhyrningslaga en svo koma tvær lamir sem eru fastar við lokið sem hallar niður fram. Stærð 42 x 51 x 17 cm. 9 cm þykkt frmast.
Minjasafn 331
Gripur nr. 331. Kaffibaukur málaður bleiklitur. Hæð 12 cm og þvermál 12 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd.
Minjasafn714
Guðmundur Kr. Guðnason (d 21.11.1988) frá Ægissíðu, póstur, ljósmyndari og kirkjuáhugamaður. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn093
Myndin var tekin af þessum systkinum í Fellsborg í október 1986. Systkinin eru, frá vinstri talið: Karítas Laufey Ólafsdóttir, Björg Jóhanna Ólafsdóttir (d. 1.3.2007), Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Skagaströnd - safn400
Hólabraut 14 í byggingu ekki er vitað hvenær myndin var tekin en húsið á bakvið er Vinaminni (Hólabraut 16). Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 305
Gripur nr. 305. Smákökumót fyrir gyðingakökur. Rautt tréskaft er en síðan járn,sem er hannað utan um járnið.Járninu er ýtt áfram og myndast þá útskornar laufaðar kökur á jöðrum. Þetta er járn frá 1950. Lengd 19 cm. Gefandi: María Magnúsdóttir frá Syðra-Hóli, Vindhælishreppi (Skagabyggð) 5. nóvember 1994.
Minjasafn 83 no2
Gripur nr. 83. Brúnn rammi með portrett mynd af óþekktri konu.
Minjasafn 365
Gripur nr. 365. Klukka. Lítil falleg klukka úr postulíni/leir, með blómaskreytingum framan á og gylltum ramma í kringum skífuna. Gylltir vísar. Innbyggð spiladós sem spilar hugljúfa tóna.
Minjasafn 462
Gripur nr. 462. Tertuhnífur? úr glæru plasti. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 234
Gripur nr. 234. Kökudiskur á fæti. Fótuinn er málaður blár (ekki stéttin). Tíglamunstur er í glerið á stéttinni og diskinum. Ummál disksins er 15 cm en stéttin er 9 cm. (Brotin) Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Skagaströnd - safn 323
Myndin var tekin á sjómannadegi og sýnir keppni nokkurra sjómanna í hver er fljótastur að klæðast björgunar-flotgalla. Mennirnir eru óþekktir nema sá sem er lengst til vinstri er Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004). Ef vel er að gáð sést að kappið hjá Karli er svo mikið að hann svífur í lausu lofti. Lengst til vinstri á myndinni er Gunnar Sveinsson með skeiðklukku að taka tímann á sjómönnunum.
Minjasafn766
Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fólkið á myndinni er óþekkt en húsið til vinstri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Fólkið á myndinni er óþekkt.
Steinþór Karlsson 004
Loftmynd af Skagaströnd líklega tekin öðru hvoru megin við aldamótin 2000. Fróðlegt að bera saman gróðurinn austan við tjaldsvæðið þá og nú eftir gróðursetningu Skógræktarfélags Skagastrandar á trjáplöntum á svæðinu.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn128
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni er Ragnhildur við störf sín í Fellsborg á æfingatímabilinu.
Minjasafn 262
Gripur nr. 262. Kökudiskur, hvítur með bleikum rósum á. Göt eru á endum, sem mynda eyru. Ljós grænn á börmum. Brotið smá úr hlið. Þvermál 26 cm. Úr búi Björns Helgasonar Efri- Læk.
Minjasafn 474
Gripur nr. 474. Fleygur undan "Napoleon Brandy". Fleygurinn er úr grænleitu gleri.
Minjasafn 267
Gripur nr. 267. Mjólkurkanna, hefur verið mjög falleg. Brún efst á barmi og haldi. Ljós grár leir með hvítum upphleyptum myndum. Þær virðast steyptar utan á. Brotið er úr barminum á annarri hliðinni. Hæð 17 cm. Kannan er úr búi Björns Helgasonar Efra-Læk, Skagaströnd.
Minjasafn 398
Gripur nr. 398. Lítill pilkur/sakka með tveimur krókum. Silfurlitur líkur fiski. Notaður á færi til að veiða fisk úr sjó.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn023
Þessi mynd var tekin á sjómannadegi 1966 af fótboltaleik á Kaupfélagstúninu. Þar kepptu sjómenn íklæddir sjóstökkum í góðu veðri sem var þennan dag. Flestir þeirra voru ekki vanir fótboltaleikjum þannig að margur svitadropinn féll í leiknum sem var frjálslega dæmdur af dómara leiksins.
Minjasafn 240
Gripur nr. 240. Reykjarpípa með svörtu munnstykki og stétt. Pípan er úr brúnum viði. Járnlok er ofan á kóngnum. Mjög sérstök í laginu. Á henni stendur: Köbenhavn og mynd af danska fánanum er á henni. Gefandi: Skafti Fanndal Jónasson Lundi, Skagaströnd í ágúst 1992.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn139
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg. Frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn056
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg. Ólafur Bernódusson mundar sprautuna en Magnús B. Jónsson fylgist með í rúminu.
Minjasafn 102 no2
Gripur nr. 102. Reiknivél úr svörtu járni, tegund: Allen Wales með handsveif á hægri hlið. Lengd 37 cm, breidd 22 cm, hæð 19 cm. Var notuð í Kaupfélagi Skagstrendinga, síðar Kaupfélagi A - Hún. Lánuð af Guðsteini Einarssyni í maí 1994.
Höfðaskóli069
Börn fædd 1989 í 3. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Baldur Magnússon kennari, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Ásþór Óðinn Egilsson, Maríanna Ástmarsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ívar Kristberg Einarsson, Þóey Fjóla Aradóttir, Sigþór Ottó Hallgrímsson og Almar Freyr Fannarsson.
Minjasafn 578
Gripur nr. 578. Stórt hallamál úr tré, 61 cm á lengd, 6 cm hátt og 3 cm á þykkt.
Minjasafn 43
Gripur nr. 43. Lítil portrett mynd af Nikulási Helgasyni bónda á Bakka.
Skagaströnd - safn406
Viðbygging við leikskólann Barnaból formlega tekin í notkun í september 1994. Magnús B. Jónsson sveitarstjóri flytur tölu í tilefni dagsins. Frá vinstri á myndinni eru: Halla Lýðsdóttir en dóttir hennar Þórey Fjóla Aradóttir stendur við hlið hennar með blómaspöng í hárinu. Sonur Höllu, Guðjón Örn Arason, situr fyrir framan mömmu sína í skrautlegu vesti. Bára Þorvaldsdóttir þáverandi leikskólastjóri heldur um axlir Bergrósar Hafsteinsdóttur fyrir framan sig. Svandís Hannesdóttir er næst en framan við hana er Arnrún Finnsdóttir. Vilhelm Harðarson stendur í horninu og framan við hann er dóttir hans, Ástrós Vilhelmsdóttir og tvö óþekkt börn. Ragnar Ingvarsson er með son sinn Alexander Ragnarsson í fanginu og síðan koma Ingólfur Bjarnason og Magnús B. Jónsson. Jensína Lýðsdóttir er konan í rauðu blússunni og framan við hana er Patrik Bjarnason sonur hennar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 448
Gripur nr. 448. Hvítt, emalerað ílát með blú haldi. Líklega koppur eða bekken.
Minjasafn 645
Gripur nr. 645. Þrjú vöfflujárn, lögð saman utan um deigið. Hituð á hellu.
Guðmundur Guðnason 2 478
<p>Þessi mynd var tekin á tröppunum í félgasheimilinu Fellsborg sumarið 1977 eða 1978. Myndin var tekin í tilefni af aðalfundi Prestafélags hins forna Hólastiftis sem haldinn var á Skagaströnd í þetta sinn. Frá vinstri í fremri röð: séra Pétur Sigurgeirsson, Akureyri, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Skagaströnd, séra Gunnar Gíslason, Glaumbæ, séra Sigurður Þ. Guðmundsson, Grenjaðarstað og séra Stefán Snævarr, Dalvík.Aftari röð frá vinstri: séra Sigurpáll Óskarsson, Hofsósi, séra Úlfar Guðmundsson, Ólafsfirði, séra Árni Sigurðsson, Blönduósi, séra Björn H. Jónsson, Húsavík, séra Hjálmar Jónsson, Bólstað, séra Jón Bjarman, fangaprestur Reykjavík, séra Kristján Valur Ingólfsson, Raufarhöfn og séra Sighvatur Birgir Emilsson, Hólum.</p><p><br></p>
Minjasafn 371
Gripur nr. 371. A3 plastmöppur tvö stykki. Nýlegar, sennilega verið keyptar fyrir skipulag á fornmununum. Vasarnir eru tómir á annarri. Rauðar á lit.
Minjasafn 23
Gripur nr. 23. Bólusetningarsprauta, umgerð úr járni með glerglasi og nál. Vantar í hana bulluna og járnið til að draga hana upp og ýta niður (bulluskaftið). (Varúð hún er ekki í öskju og nálin stendur út!). Gefandi: Már Hall Sveinsson Réttarholti Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 370
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Vigdís Viggósdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Kristín Jónsdóttir.
Minjasafn 491
Gripur nr. 491. Stórt ullarteppi, brúnt, hvítt, grátt og munstrað.
Minjasafn 153
Gripur nr. 153. Mjólkurpokastatíf hvítt úr plasti. Notað undir mjólkur plastpoka. Þetta var til á hverju heimili meðan mjólk var afgreidd í slíkum pokum. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn221
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sögu Jónsdóttur sem leikstýrði leikritinu: Stalin er ekki hér fyrir Leikklúbbinn leikárið 1980 - 1981.
Sigurður Bjarnason - safn 010
Jóhann Bjarnason (d. 14.9.2015) múrari frá Bjargi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn086
Líklega hefur þessi mynd verið tekin í sumarferðalagi starfsfólks Hólaness hf einhverntíma á áttunda ártugnum. Ekki er vitað hvar þessi reisulegi sveitabær er en fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Anna Sjöfn Jónasdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason 2 485
Eldri borgara í heimsókn í Þingeyrarkirkju ásamt nokkrum kvenfélagskonum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Ása Jóhannsdóttir, Jóhanna Jónasdóttir, Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993), Jónína Valdimarsdóttir, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir (d. 13.10.2000), Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011), Fanney Halldórsdóttir (d. 21.6.2005) og Friðgeir Ágústsson (d. 17.5.1985).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn145
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu og sýnir Önnu Sjöfn Jónasdóttur, starfsmann við sýninguna, ditta að einni af saumavélunum sem notaðar voru í sýningunni.
Minjasafn 154
Gripur nr. 154. Blómahengi hnýtt, ljósbrúnt. Lengd 110 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Minjasafn 625
Gripur nr. 625. "Skammbyssa" mjög gömul og mjög ryðguð. Gefandi: Magnús Blöndal, Skagaströnd í desember 1991.
Óþekktur ljósmyndari368
Ekki er vitað af hvaða tilefni veislan var, þar sem Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) er að flytja ræðu, né hvenær hún var. Vinstra megin við Bernódus sér í Guðmundu Sigurbrandsdóttur (d.15.8.2015) og Ólaf Guðmundsson (d. 7.4.2015). Hægra megin við Bernódus sitja Guðmundur Guðnason og ?Rósberg G. Snædal?. Aðrir eru óþekktir.
1
…
106
107
108
…
167
Leita í myndasafninu
Leita