Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn676
Á myndinni eru hjónin á Lækjarbakka með dótturdóttur sína á milli sín. Frá vinstri: Marta Guðmundsdóttir, Marta Pálsdóttir og Pétur Stefánsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ása Jóhannasdóttir Læjarbakka, Skagaströnd 20. febrúar 1995.
Minjasafn790
Helga Björg Hu 7 var í eigu Jóns Ólafs Ívarssonar (d. 29.12.2013), Hallgríms Kristmundssonar (d. 9.10.1998) og Gylfa Sigurðssonar sem gerðu bátinn út frá Skagaströnd í mörg ár. Helga Björg liggur utan á Húna II sem var seinna gerður upp og á nú heimahöfn á Akureyri og er þar m.a. notaður til að fara ferðir um Eyjafjörð með Ferðamenn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir Hólabraut 22, Skagaströnd í ágúst 1995.
Minjasafn 454
Gripur nr. 454. Bakki úr tré. Brúnir eru málaðar dökkbrúnar. Þrír svanir, sem eru að hefja sig til flugs, málaðir fyrir miðju.
Minjasafn 420
Gripur nr. 420. Handbor úr járni eins og "T" í laginu. Lárétti hluti "T-sins" var handfangið á bornum .
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn027
Þessi mynd var tekin á sýningu á noktun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Ef vel er skoðað má sjá mann í björgunarstól að leggja af stað frá bátnum Vísi Hu 10 til lands.
Minjasafn 33
Gripur nr. 33. Tóbaksdolla, gömul og mjög ryðguð. "Skorið tóbak" stendur á henni.
Minjasafn 176
Gripur nr. 176. Skrautskál úr leir. Hún er með tveimur eyrum. Aðallitur er dökk brúnn en í botninum græn og grænblá röndótt. Er orðin smásprungin. Skálina fékk gefandi árið 1945. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 607
Gripur nr. 607. Koffort/ferðataska sem eitt sinn var svört en er nú aflituð brún-grá. Haldið er málað rauðbrúnt. Ryðgað hlífðarjárn á öllum hornum. Tvær litlar læsingar sitthvoru megin við haldið. Taskan er illa farin og rifinn á botninum.
Minjasafn 68
Gripur nr. 68. Smellurammi með níu myndum af byggingum.
Minjasafn 421
Gripur nr. 421. Spariskór Stefáns bónda Ágústssonar Ytri-Ey, Vindhælishreppi (Skagabyggð).
Minjasafn683
Þessi mynd var tekin af Pétri H.J.Jakobssyni af síldarlöndun á Skagaströnd 23. júlí 1962. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gáfu hjónin Jónas Tryggvason og Þorbjörg Bergþórsdóttir á Blönduósi.
Minjasafn 669
Gripur nr. 669. Teppahreinsir með löngu skafti. Hellt er sápu og vatni í hólfið og síðan rúllað eftir teppinu. Græn - blátt og skaftið hvítt. Sápugeymirinn gulnaður.
Mindasafn 197
Gripur nr. 197. Súkkulaðikanna, hvít með gulum hringjum og krækjum endurtekið alla könnuna. Rauð ber inni á milli. Vantar lokið. Hæð 16 cm. Gefandi: Sigríður Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982 en þá var kannan 60 ára.
Guðmundur Guðnason 2 490
Myndin var tekin í Skátaskálanum í afmæli Guðmundar Guðnasonar, líklega 1973 þegar hann varð 50 ára. Á myndinni er fjöldasöngur í gangi við undirleik Guðmundar sem ekki sést á myndinni. Frá vinstri: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir (nær), Hörður Ragnarsson (fjær), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006)(nær), Jökull Sigtryggsson (fjær), óþekktur, Guðberg Stefánsson (d. 15.9.1991), óþekkt, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Sófus Guðmundsson (d. 2.8.1991), óþekkt, María Magnúsdóttir, óþekkt, Kristján Sigurðsson, Sigurður Pálsson, Alda Friðgeirsdóttir, óþekkt, Helgi Ólafsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Bjarney Valdimarsdóttir, Jón Pálsson og Hulda Árnadóttir (d. 14.2.2007). Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn693
Mæðgurnar Margrét Björnsdóttir (d. 11.9.1993) til vinstri og Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) sitjandi í tröppunum við heimili sitt að Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en hún var tekin 1986.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn193
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hjört Guðbjartsson sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn136
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Vilmund Árnason sem lék í sýningu klúbbsins á "Er þetta ekki mitt líf" leikárið 1982 - 1983.
Minjasafn 662
Gripur nr. 662. Hvít derhúfa frá Hólanesi hf.
Höfðaskóli054
Börn fædd 1988 í 7. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Ívar Gylfason, Guðmundur Lárus Guðmundsson, Óðin Örn Sævarsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason og Jón Atli Magnússon. Miðröð frá vinstri: Guðmundur Kristinn Oddsson kennari, Valgerður Guðmundsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason, Ómar Ingi Ómarsson, Björgvin Matthías Hallgrímsson og Sindri Jóelsson.
Höfðaskóli001
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla líklega 2005 eða 2006. Einar Sigurbergur Arason kennari afhendir nemendum sínum, sem fæddir voru árið 1997, einkunnir sínar eftir veturinn. Nemendurnir eru, frá vinstri: Gunnþór Kristjánsson, Aldís Embla Björnsdóttir, Aron Breki Hjartarson, óþekktur, Róbert Björn Ingvarsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, tvær óþekktar stúlkur og Halldóra Guðmundsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 065
<p>Sigursveitin í kappróðri karla á sjómannadegi 1990 kom frá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Á myndinni er sigursveitin. Frá vinstri: Karl Berndsen stýrimaður, Guðjón Árnason, Guðbrandur Magnússon, Ari Þórsson, Jóhannes Sveinsson, Bergþór Gunnarsson og Gísli Snorrason.</p>
Leikklúbbur Skagastrandar - safn141
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á æfingu á verkinu og sýnir í hlutverkum sínum, frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Elín Njálsdóttir.
Minjasafn 466
Gripur nr. 466. Steinkola. Fannst í uppgreftri á bænum Spákonufelli árið 1965. Líklega frá 12. - 13. öld. Gefandi: Kristján Hjartarson Grund, Skagaströnd í maí 1977.
Minjasafn 566
Gripur nr. 566. Rakhnífur svartur á lit. Er í svartri pappaöskju. "Gustav Felix Solingen" stendur á öskjunni.
Minjasafn 477
Gripur nr. 477. Pappakassi með hnífapörum, pískara og eggjaskera.
Minjasafn719
Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996) Sóllundi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen frá Karlsskála 12. september 1996.
Minjasafn 347
Gripur nr. 347. Hengilás. "L...L Secure self acting sprung Lock " stendur framan á lásnum.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn086
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri: Jóney Gylfadóttir, Guðlaugur Hjaltason, Jensína Lýðsdóttir og Óli Hjörvar Kristmundsson. Leikararnir tveir sem leika asnann eru óþekktir.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn226
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Björk Sveinsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 233
Gripur nr 233. Kökudiskur, hvítur, ílangur með blárri rönd og merkt: Jöklar h/f (skipafélaginu). Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Skagaströnd - safn359
Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) tilbúin í kaffisölu á föndurdegi í Höfðaskóla í desember 1991.
Minjasafn 188
Gripur nr. 188. Mokkabollapör með grænsanseruðum bekk, gulllituð blöð og rósir í bekknum. Rósir innan í bollanum. (Ath. aðeins 1 bolli og ein undirskál) Gefandi: Salóme Jóna Þórarinsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn687
Starfsmenn á síldarplani á Skagaströnd líklega 1938. Fremri röð frá vinstri: Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) Árnesi, Guðjón Einarsson (d.?) Harrastöðum, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) Höfðakoti, Björn Jónsson (d.?) Brúarlandi og Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) Réttarholti (seinna Flankastöðum). Aftari röð frá vinstri: Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Árnesi (seinna Sunnuhvoli), Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Brúarlandi (seinna Bjarmalandi), Hartmann Jóhannesson (d. ?) Garði, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) Vík, barn e.t.v. Ásta Kristjánsdóttir?, Kristján Ebenesarson (d. ?) verkstjóri, Jóhann Pétursson (d. 13.1.1999) Lækjarbakka og Þormóður Óskarsson (d. ?). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar og var gefin þangað af Kristófer Árnasyni.
Minjasafn 131
Gripur nr. 131. Stálsmellur á bláu pappaspjaldi. Gefandi: Elínborg Guðmundsdóttir Blönduósi í september 1993.
Höfðaskóli008
Hér sitja saman á kennarastofu Höfðaskóla eftir vel unnið verk, frá vinstri talið: Björn Sigurðsson, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Svava Magnúsdóttir og Árný Elfa Helgadóttir. Myndin var sennilega tekin um 1990.
Höfðaskóli027
Börn fædd 1982 í 1. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Í aftari röð eru frá vinstri: Karen Peta Karlsdóttir, Hafsteinn Auðunn Björnsson, Ólafur Guðmundsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Sveinþór Ari Arason. Fremri röð frá vinstri: Magnús Árni Hallgrímsson, Ásdís Lýðsdóttir, Andri Þór Ómarsson, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Erla Björgheim Pálsdóttir og Vilborg Magnúsdóttir kennari.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn047
<p>Fólkið á þessari mynd starfaði við uppsetningu Leikklúbbs Skagastrandar á Allra meina bót eftir Jónas Árnarson leikárið 1976 - 1977 undir leikstjórn Bernódusar Ólafssonar (d. 18.9.1996). Fremri röð frá vinstri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Elín Njálsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Þorvaldur Skaftason og Bernódus Ólafsson leikstjóri. Aftari röð frá vinstri: Hjalti Skaftason, Viggó Brynjólfsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson, Hallbjörn Hjartarson og Kristín Björnsdóttir. Myndin var tekin eftir lokaæfingu í Felsborg þar sem verkið var sýnt. </p>
Minjasafn710
Líklega var þessi mynd tekin af Skagaströnd árið 1947 eða 1948. Kolabingur er í kolaportinu við hlið kaupfélagsins, verið að reka niður stálþilið við Skúffugarðinn og verið að bræða síld miðað við að það rýkur úr skorsteininum. Karlsminni og Viðvík er gömlu bæirnir sem standa fyrir miðri víkinni og bátarnir liggja í fjörunni og bíða þess að vera ýtt á flot eitt sumarið enn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd. Gefandi: Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 593
Gripur nr. 593. Stálketill af gamla laginu, mjög ryðgaður. Var hitaður á hellu og/eða yfir eldi. Gæti líka hafa verið smurkanna undir smurolíu. Er eins og gripur nr 592 (mynd 7875) en minna ryðgaður en hann.
Minjasafn 239
Gripur nr. 239. Kökudiskur með eyrum, hvítur. Blóm eru á þrem stöðum. Græn rönd á barmi. Ummál 27 cm, lengd 31 cm. Keyptur hjá Hafsteini Sigurbjarnarsyni í Reykholti. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1992.
Minjasafn795
Manni KE 99. Stærð 72 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í V- Þýskalandi. Vél MWM - Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 178
Gripur nr. 178. Kýrhornslampi, stendur á brúnni viðarstétt, sem er útskorin. Stafirnir ÍJ eru á einni hliðinni og munstri á öðrum hliðum. Smíðaður af Henning Finnbogasyni Akureyri þegar hann var 13 ára og er kýrhornið af Skjöldu gömlu í Skrapatungu. Henning smíðaði lampann fyrir Ingibjörgu húsfreyju á Skrapatungu. Lampinn er með gulum skermi. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn095
Höfðaskóli eins og hann leit út áður en byggt var við hann um og uppúr 1980. Skólinn var tekinn í notkun í þessari mynd haustið 1958 og þótti gífurleg farmför frá gamla skólanum eða Bjarmanesi, þar sem nú er rekið kaffihús.
Minjasafn 320
Gripur nr. 320. Mynd í silfurlitum tréramma. Á myndinni er skjöldótt kýr. Efst stendur: <strong>Alfa Laval.</strong> Þessi mynd var ávalt á Læjarbakka og er orðin mjög gömul. Hún var úr búi Mörtu og Péturs á Lækjarbakka. Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 507
Gripur nr. 507. Lítið járnsigti.
Minjasafn 468
Gripur nr. 468. Lítið pappabox sem merkt er: "Jólakerti" með rauðum stöfum. Einnig er mynd af stúlku með rauðu bleki. Hugsanlega áttu kertin í grip nr. 443 að fylgja með.
Skagaströnd - safn367
Sigurvegarar á golfmóti á Háagerðisvelli sumarið 1991 með verðlaunagripi sína. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Rolf Árnason (d. 3.6.2014) og Guðmundur Kristinsson.
Minjasafn 357
Gripur nr. 357. Ósamsett fata úr tré. ca 30 - 40 cm á breidd. Lítur út eins og tunna af gamla laginu með járngjörðum utan um sig en er aðeins ca 20 cm á hæð.
Minjasafn 413
Gripur nr. 413. Tréaskja sem eitthvað er sett ofan í og síðan er tréplata, sem fylgir með og passar innan í kassann, sett ofan á og þrýst niður með prikinu sem fylgir. Gat er á botni öskjunnar fyrir miðju en þar hefur eitthvað verið kreyst út úr öskjunni. (Skyrpressa?).
Minjasafn 443
Gripur nr. 443. Þrjú stykki græn, snúin skrautkerti.
Minjasafn 664 JPG
Gripur nr. 664. Flaska, líklega mjólkurflaska. Er úr gleri og er með rauðan tappa úr plasti - smellutappa. 29 cm á hæð.
Minjasafn 506
Gripur nr. 506. Tvö stykki útskornar skeiðar úr beini/horni. Önnur er matskeið en hin er teskeið.
Minjasafn733
María Birgitta Berndsen (d. ?). Aftan á þessari mynd stendur:<em> "María Birgitta Berndsen 01.1940. Gef. Helga Berndsen Karlsskála".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn072
Þorvaldur Skaftason á æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar líklega á leikritinu: Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson árið 1990. Leikstjóri var Hörður Torfason.
Minjasafn750
Síldarsöltun á planinu á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum kringum 1960 og sýnir vel hvernig starfsaðstaðan var. Saltað var úti undir berum himni hvernig sem viðraði ef ræst var út í síld. Eins og sjá má á myndinni vann fjöldi manns á planinu en "söltunarstúlkurnar" - sem stundum voru karlkyns - unnu í akkorði við söltunina og fóru laun þeirra eftir því hve margar tunnur þær söltuðu yfir daginn. Karlarnir á planinu þjónustuðu þær með síld, salt, tómar tunnur og fjarlægðu fullar tunnur frá þeim. Á planinu var líf, fjör og hávaði og margir minnast þessa tíma með gleði. Eins og kemur fram í textanum á myndinni er maðurinn með fötuna fyrir miðri mynd næst okkur, Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) frá Vík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.
Minjasafn 464
Gripur nr. 464. Hvít undirskál, emaleruð með blárri rönd við kantinn. Skálin er frekar djúp og hefur mögulega verið notuð sem, öskubakki.
Minjasafn 514
Gripur nr. 514. 11 stykki matardiskar, grunnir. Blá rönd á kantinum og tvær gullrendur örlítið innar.
Minjasafn 71
Gripur nr. 71. Brúnn rammi með sex portrett myndum af fólki og einni mynd af Höfðahólum á Skagaströnd.
Minjasafn 242
Gripur nr. 242. Skrautskál ílöng úr brenndu gleri (brotin).
Minjasafn 53
Gripur nr. 53. Brúnn rammi sem geymir tvær myndir af systkinunum Birni Ólafssyni og Björgu Ólafsdóttur frá Árbakka. Gefandi: Helga Berndsen.
1
…
110
111
112
…
167
Leita í myndasafninu
Leita