Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Leikklúbbur Skagastrandar - safn186
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Þórhildi Jakobsdóttur sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 617
Gripur nr. 617. Gömul plaköt sem auglýsa Kántrýbæ.
Minjasafn 94
Gripur nr. 94. Gylltur rammi með Lions Club skírteini Guðmundar Guðnasonar.
Minjasafn 387
Gripur nr. 387. Lítill pappakassi með íhlutum úr einhvers slags snúningsvél. Á henni stendur "Spin - fix". Tveir silfurmálaðir bútar/völur voru með í kassanum.
Minjasafn 150
Gripur nr. 150. Vasapeli undan víni, kringlóttur. Brúnn á litinn með hvítu staupi, sem tappa. Hæð 14 cm. Líklega úr eigu Kristmundar Jakobssonar og gæti verið frá 1930 - 1940. Var í Ásbergi. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála Skagaströnd 1994.
Minjasafn 640
Gripur nr. 640. Tveir kúlulaga ljósakúplar úr hvítu gleri.
Minjasafn 524
Gripur nr. 524. Sósukanna, dröppuð með gullrönd um miðjuna og aðra mjórri með barminum.
umf Fram 336
Síðaskálinn var vígður 1985 með almennri kaffiveislu. Á þessari mynd, sem tekin var í veislunni eru frá vinstri við borðið næst okkur: Jens Jónsson, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007) og Karl Berndsen (d. 12.2.1995). Við borðið fjær sitja hjónin Adolf J. Berndsen og Hjördís Sigurðardóttir.
Minjasafn 430
Gripur nr. 430. Járnbox notað undir rakvélablöð. Á lokinu stendur, upphleypt: "ROYALITY".
Minjasafn 484 no2
Gripur nr. 484. Dúkar af ýmsum stærðum. Gefandi: Hildigunnur Jóhannsdóttir Stórholti, Skagaströnd árið 1993.
Minjasafn674
Aftan á þessari mynd stendur: "<em>Sigurður Jónsson frá Eivindarstöðum"</em>. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd.
Minjasafn 38
Gripur nr. 38. Hlutabréf í Eimskipafélagi Íslands í ramma. Teikning eftir listamanninn Samúel Eggertsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn114
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ólaf Bernódusson sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins og var jafnframt starfsmaður við margar þeirra. Auk þess var hann formaður Leikklúbbsins árin 1979 - 1981.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn008
Mynd frá Norrænu skíðagöngukeppninni 1964 tekin við Vetrarbraut á Skagaströnd en þar norður frá var lögð skíðagöngubraut. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og svo var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Þátttaka í keppninni á Skagaströnd var góð eins og sjá má á þessari mynd þó fólkið sé óþekkt.
Minjasafn692
Húni Hu 1 með fullfermi af síld í höfninni á Skagaströnd 1959 eða 1960. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar gefin af Helgu Berndsen frá Karlsskála í september 1996. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Minjasafn 419
Gripur nr. 419. Hefill, smíðaður úr tré.
Minjasafn 564
Gripur nr. 564. Ýmsir lyklar sem fundist hafa hér og þar.
Minjasafn 243
Gripur nr. 243. Skónál. Var notuð til að brydda sauðskinnsskó. Er spísslöguð fram. Lengd 5 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í mars 1995.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn123
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Jónas Baldursson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir og lengst til hægri sér í Hallbjörn Hjartarson.
Minjasafn 418
Gripur nr. 418. Falshefill úr tré.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn057
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Ásgeirs Sigurvaldasonar.. Þessi mynd var tekin í hléi á sýningu í Fellsborg af Kristjáni Blöndal í gervi sínu sem sjúkraliði.
Minjasafn 551
Gripur nr. 551. Upptakari. "Canada dry" er meitlað í hann. Álupptakari til að opna flöskur með áþrykktum tappa.
Minjasafn 518
Gripur nr. 518. Djúpur, hvítur diskur með breiðri bleikri rönd með barminum. Í botninum er mynd af fólki í rómantískum stíl.
Skagaströnd - safn367
Sigurvegarar á golfmóti á Háagerðisvelli sumarið 1991 með verðlaunagripi sína. Frá vinstri: Steinþór Karlsson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Rolf Árnason (d. 3.6.2014) og Guðmundur Kristinsson.
Minjasafn 33
Gripur nr. 33. Tóbaksdolla, gömul og mjög ryðguð. "Skorið tóbak" stendur á henni.
Minjasafn 176
Gripur nr. 176. Skrautskál úr leir. Hún er með tveimur eyrum. Aðallitur er dökk brúnn en í botninum græn og grænblá röndótt. Er orðin smásprungin. Skálina fékk gefandi árið 1945. Gefandi: Guðný Finnsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn 607
Gripur nr. 607. Koffort/ferðataska sem eitt sinn var svört en er nú aflituð brún-grá. Haldið er málað rauðbrúnt. Ryðgað hlífðarjárn á öllum hornum. Tvær litlar læsingar sitthvoru megin við haldið. Taskan er illa farin og rifinn á botninum.
Minjasafn 68
Gripur nr. 68. Smellurammi með níu myndum af byggingum.
Minjasafn770
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Fyrir miðri mynd spjalla þeir saman, Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) frá Garði til hægri og Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) frá Eyri/Holti til vinstri. Aðrir á myndinni eru óþekktir en húsið til hægri er Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd í dag. Lengra frá sér í Bjarmanes.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Minjasafn 559
Gripur nr. 559. Kökukefli úr ljósum viði. Höldin er laus - brotin af.
Minjasafn 454
Gripur nr. 454. Bakki úr tré. Brúnir eru málaðar dökkbrúnar. Þrír svanir, sem eru að hefja sig til flugs, málaðir fyrir miðju.
Minjasafn 478
Gripur nr. 478. Prjónuð skotthúfa. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti, Skagaströnd.
Minjasafn 237
Gripur nr. 237. Sykurkar úr glæru gleri, munstrað. Karið er ílangt og stendur á stétt. Lengd 13 cm, breidd 6,5 cm og hæð 7,5 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 537
Gripur nr. 537. Ál-kaffikanna með svörtu haldi og svartan hnapp á lokinu, sem er fest við könnuna með löm.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn158
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Björk Sveinsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Ástmar Kári Ástmarsson.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn192
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hallveigu Ingimarsdóttur sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 143
Gripur nr. 143. Gjarðishringjur fimm stykki. Ein köntuð, tvær litlar og þrjár rúnnaðar. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn088
Leikklúbbur Skagastrandar sýndi Kardimommubæinn eftir Thorbjörn Egner í litaglaðri sýningu í Fellsborg vorið 1992 undir leikstjórn Árna Blandon. Sýningin var fjölmenn og leikararnir voru á öllum aldri eins og leikritið gerir ráð fyrir. Á þessari mynd, sem tekin var á sýningu, eru frá vinstri á sviðinu: Þorlákur Ómar Guðjónsson, Steindór Haraldsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson, Jón Örn Stefánsson, Fannar Viggósson, Lovísa Vattnes, Elín Njálsdóttir og Hallbjörn Hjartarson. Framan við sviðið eru frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Ólafur Magnússon, Jensína Lýðsdóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson, Jóney Gylfadóttir og baksvipinn á Jón Ingvar Valdimarsson.
Minjasafn 76
Gripur nr. 76. Mynd af es Laura á strandstað 1910 í gylltum ramma. Einnig er annað skip á myndinni.
Minjasafn 270
Gripur nr. 270. Glerskál, kínversk með brúnum barmi og mynd af fólki og blómum um allan bekk. Særð 10 x 10 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Minjasafn 479
Gripur nr. 479. Pappakassi/box sem geymir "skemmtilegt dót" sem fannst í skúffu í borði hjá Fritz Magnússyni.
Minjasafn 510
Gripur nr. 510. Nálapúði á platta. Plattinn er úr ljósum við, fallega útsagaður. Púðinn er dökkrauður og geymir tvær saumnálar.
Guðmundur Guðnason 2 386
Jóhanna Bertelsdóttir sennilega á fermingardaginn sinn.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn105
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ingiberg Guðmundsson sem gegndi mjög margvíslegum störfum við leiksýningar klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 51
Gripur nr. 51. Lítill viðarrammi, rauðbrúnn eins og A í laginu. Í rammanum er mynd af óþekktum manni (Sigurður Guðmundsson frá Laufási?).
Leikklúbbur Skagastrandar - safn175
<p>Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru Einar Haukur Arason og Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) í hlutverkum sínum í verkinu.</p>
Minjasafn 442
Gripur nr. 442. Glær plastpoki sem geymir allskonar saumnálar.
Minjasafn 415
Gripur nr. 415. Mjólkurpokahaldari úr plasti, lítill hvítur á litinn.
Minjasafn 561
Gripur nr. 561. Flökunarhnífur. Skaftið svart úr plasti, blaðið mjög mjótt af mikilli notkun og brýningum.
Höfðaskóli023
Börn fædd 1979 í 7. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Minjasafn 314
Gripur nr. 314. Skæri, sérstaklega blaðlöng, stállituð. Lengd 30 cm. Eigandi var Guðríður Ólafsdóttir frá Höfðahólum á Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 41
Gripur nr. 41. Lítil portrett mynd af manni. Hann er með yfirvaraskegg og röndótt bindi. Ekki er vitað af hverjum myndin er.
Minjasafn 438
Gripur nr. 438. Húfa úr eigu Fritz Magnússonar.Gömul húfa, blá með festingu undir höku. Mögulega gömul reiðhúfa.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn193
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Hjört Guðbjartsson sem tók þátt í nokkrum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn710
Líklega var þessi mynd tekin af Skagaströnd árið 1947 eða 1948. Kolabingur er í kolaportinu við hlið kaupfélagsins, verið að reka niður stálþilið við Skúffugarðinn og verið að bræða síld miðað við að það rýkur úr skorsteininum. Karlsminni og Viðvík er gömlu bæirnir sem standa fyrir miðri víkinni og bátarnir liggja í fjörunni og bíða þess að vera ýtt á flot eitt sumarið enn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd. Gefandi: Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Minjasafn 593
Gripur nr. 593. Stálketill af gamla laginu, mjög ryðgaður. Var hitaður á hellu og/eða yfir eldi. Gæti líka hafa verið smurkanna undir smurolíu. Er eins og gripur nr 592 (mynd 7875) en minna ryðgaður en hann.
Minjasafn 239
Gripur nr. 239. Kökudiskur með eyrum, hvítur. Blóm eru á þrem stöðum. Græn rönd á barmi. Ummál 27 cm, lengd 31 cm. Keyptur hjá Hafsteini Sigurbjarnarsyni í Reykholti. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í ágúst 1992.
Minjasafn795
Manni KE 99. Stærð 72 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1960 í V- Þýskalandi. Vél MWM - Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Keflavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn771
<p>Þessi mynd var tekin á sjómannadaginn 1945 af Sverri Kristóferssyni á Blönduósi. Þetta ár var haldið upp á sjómannadaginn á Hólanesinu. Myndin er þó frá höfninni þar sem nokkrir sjómenn eru á spjalli um borð í bátum sínum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi 28. október 1996. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. </p>
Minjasafn 131
Gripur nr. 131. Stálsmellur á bláu pappaspjaldi. Gefandi: Elínborg Guðmundsdóttir Blönduósi í september 1993.
1
…
109
110
111
…
167
Leita í myndasafninu
Leita