Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 375
Gripur nr. 375. Tvö stykki A4 brúnir rammar; "Quality Photo Frame". Eru nýlegir, hafa sennilega verið keytir fyrir skipulag á fornmununum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 611
Systkinin Árni Geir Ingvarsson og Vala Rós Ingvarsdóttir saman í blómabrekku snemma á áttunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 534
Stefán Kristinsson (d. 19.5.2011) nýtur hér útvistar í óþekktri hraunbreiðu.
Sigurður Bjarnason - safn 041
Anna S. Sölvadóttir (d. 10.10.1965) frá Karlsskála á Skagaströnd.
Minjasafn679
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla en ekki er vitað hvenær. Á henni eru, frá vinstri: Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir Árnesi Skagaströnd, Páll V.G. Kolka (d.19.7.1971) læknir og rithöfundur og kona hans Guðbjörg Guðmundsdóttir Kolka (d. 11.6.1974). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn797
Reynir BA 66. Stærð 53 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1946 í Svíþjóð. Vél Hundsted 150 hestöfl. Heimahöfn Bíldudalur. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn722
Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) Bjarmalandi á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. júní 1996.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 088
Ungu drengirnir á þessari snjáðu mynd voru skólabræður í Höfðaskóla á yngri árum en störfuðu síðan báðir um tíma hjá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Bergþór Gunnarsson er til vinstri og Valdimar Viggósson til hægri.
Minjasafn725
Björn Ólafsson (d. 1935) Árbakka. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 12. september 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 497
Þorvaldur Skaftason til vinstri og Fritz Hendrik Berndsen til hægri við vinnu á vinnupalli við stjórnsýsluhúsið á kuldalegum degi.
Minjasafn 610
Gripur nr. 610. Ferðataska úr brúnu leðri. Með ólalæsingum sitt hvoru megin við haldið. Einnig er járnlæsing undir haldinu. Leðurhlífar á hornum.
Minjasafn 388
Gripur nr. 388. Glær poki með gylltum stöngum með krók á endum. Voru fylgihlutir til að halda uppi Hansa hillum og skápum sem voru vinsæl húsgögn í kringum 1960 - 1980.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 025
Feðgar um borð í Arnari Hu 1 í ókunnri höfn. Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) stendur framan við brúna en sonur hans Birgir Þórbjarnarson skipstjóri á Arnari stendur á brúarvængnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 627
Þessi mynd var tekin í Skíðaskálanum á Skagaströnd sennilega kringum 1990. Á myndinni eru frá vinstri: Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal, Gunnar Tryggvi Ómarsson og Sólveig Eiðsdóttir móðir Sóleyjar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 040
Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) við vinnu á dekkinu á Arnari Hu 1.
Minjasafn 198
Gripur nr. 198. Smörkúpa úr glæru gleri, botn og lok. Glerið er munstarð. Glerhöld til hliðar. Lengd 20 cm og breidd 12 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1982.
Minjasafn 575 no2
Gripur nr. 575. Saumavél. Svört handsnúin saumavél. Var í eigu móður Guðbjarts Guðjónssonar frá Vík, Skagaströnd.
Minjasafn734
Aftan á þessari mynd stendur skrifað:<em> "Efnabær 19 aldar. Haukagil í Hvítarsíðu í Borgarfirði Mindin tekin sumarið 1884. Ljósmynd Sigfús Eymundsson".</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi 8. október 1977.
Minjasafn 401
Gripur nr. 401. Þvottaklemma af gamla laginu, úr tré.
Minjasafn 530
Gripur nr. 530. Tvö pör hurðarhúna. Annað parið er með innskornu munstri á húnunum. Hitt parið er með slétta og glansandi húna.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 011
Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri við vinnu sína við vélaviðgerð um borð í einum af togurum Skgastrendings hf.
Höfðaskóli - safn 314
Í smíðatíma í Höfðaskóla líklega 1988 eða 1989. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Briem og Jón Oddur Hjálmtýsson.
Minjasafn747
Gísli Einarsson (d. 27.10.1969) Viðvík á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Höfðaskóli049
<p>Börn fædd 1993 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Árný Sif Gestsdóttir og Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir. Miðröð frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson, Alex Már Gunnarssson og Davíð Víðisson. Fremsta röð frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Jóna Fanney Svavarsdóttir kennari, Sara Rut Fannarsdóttir og Elísabet Anna Einarsdóttir. </p>
Minjasafn 552
Gripur nr. 552. Kýrhorn
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 048
Jón Indriðason vélstjóri til vinstri og Gísli Snorrason frá Vélaverkstæðinu vinna við vél í einum af togurum Skagstrendings hf.
Minjasafn 663
Gripur nr. 663. Hvítt blómahengi sem farið er að gulna. Úr plasti með keðjum til að hengja það upp.
Minjasafn802
Viðey RE 12. Stærð 231 rúmlest brúttó. Smíðaár 1964 í Noregi. Vél Lister - Diesel 660 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Óþekktur ljósmyndari371
Þessi útstillingar - kassi/skápur var á stafni bragga sem stóð norðan við götuna beint á móti mjölskemmunni. Eigandi kassans/skápsins var Skagastrandarbíó sem notaði hann til að auglýsa kvikmyndasýningar sínar, sem voru, þegar best lét, þrisvar í viku. Að þessu sinni er auglýst "Heimsfræg stórmynd gerð eftir samnefndri metsölubók, sýnd kl 9 í kvöld, sunnudag". Myndin sem um ræðir hét: The Carpetbaggers samkvæmt auglýsingunni. Samkvæmt bókinni "Byggðin undir Borginni" var Skagastrandarbíó stofnað 1958 að frumkvæði Hallbjörns Hjartarsonar, sem var sýningarmaður bíósins, og fleiri. Sýningar voru í Tunnunni, sem þá þjónaði sem samkomuhús bæjarbúa. Snemma á áttunda áratugnum voru sýningarnar færðar í Fellsborg en þá var farið að draga verulega úr aðsókn, einkum vegna samkeppni við sjónvarpið. Skagastrandarbíó seldi síðan Höfðahreppi sýningarvélar sínar 1979 og hætti starfsemi. Félagsheimilið hélt uppi merkinu í nokkur ár en starfsemin fjaraði út hægt og hægt á nokkrum árum.
Minjasafn684
Síldarsöltun 1958 eða 1959 á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd
Minjasafn717
Brautarholt. Ólafur Guðmundsson (d.6.10.1985), íbúi þar, er til hægri en konan er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir með son sinn Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 003
Viðhaldsgengi frá Vélaverkstæði Skagastrandar um borð í einum af togurum Skagstrendings hf að spá í spilin ásamt vélstjóranum. Frá vinstri: Ari Þórsson, Birkir Rafn Gíslason, óþekktur, Óli Axel Óskarsson, Gísli Snorrason og Finnur Kristinsson yfirvélstjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 561
Hér hefur Vilhjálmur Skaftason, sem stendur og virðir aðstæður fyrir sér, búinn að festa Súkkuna sína í skafli. Í baksýn býr Eðvarð Hallgrímsson sig undir að draga Súkkuna úr skaflinum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 587
Hákarl dreginn á land í krikanum sem áður var sunnan við hafnarvogina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 588
Græna húsið á myndinni eru Kárastaðir sem eru nú horfnir. Þar bjuggu Kári Kristjánsson (d.11.12. 1990) og Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) ) ásamt móður sinni Sigurbjörgu Sigurbjörnsdóttur (d. 31.12.1965). Seinna kom til þeirra bræðra ráðskonan Jónína Valdimarsdóttir ásamt dóttur sinni Kristínu Sigurðardóttur. Upphaflega voru Kárastaðir bara jarðhæð með skúrþaki en síðar var hæð byggð ofan á. Enn síðar var svo byggð viðbyggingin með skúrþaki sem sér í vinstra megin.
Höfðaskóli - safn 229
Guðbjörg Ólafsdóttir, heimilisfræðikennari við Höfðaskóla í nokkur ár, í vinnunni í eldhúsi Höfðaskóla í lok nóvember 1998.
Sigurður Bjarnason - safn 006
Ragna Skagfjörð Bjarnadóttir frá Bjargi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið um jól einhverntíma á sjötta áratugnum.
Minjasafn755
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. "Siggi í Siggabúð", eins og hann var oft kallaður, stundaði m.a. útflutning á ull og gærum um tíma meðfram dagvöruverslun sinni. Verslunin Borg var einnig heimili Sigurðar og konu hans Margrétar Konráðsdóttur (d. 17.9.1974) en verslunin var í litlu húsi sem stóð norðan við mjölskemmuna. Seinna var svo rekið rafmagnsverkstæði í húsinu, sem nú hefur verið rifið. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn706
Horfið hús, Ásberg eða Ásbyrgi (Köllubærinn), Breiðablik til hægri. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1994 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 667
Gripur nr. 667. Ferningslaga púði. Verið er dökk-appelsínugult, heklað net. Innan í því er púðinn sem er grænn.
Höfðaskóli025
Börn fædd 1977 í 9. bekk Höfðaskóla 1991-1992 ásamt kennara sínum. Nöfnin eru á myndinni.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 035
Gestur Arnarson slakar á yfir kaffibolla í borðsalnum á Arnari Hu 1.
Sigurður Bjarnason - safn 022
Ragna Bjarnadóttir frá Bjargi.
Minjasafn678
Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar en myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1.desember 1994.
Minjasafn783
Fólkið á myndinni var heimilisfólk að Höfðahólum á Skagaströnd. Mynd af bænum er fyrir miðju en hann stóð þar sem í dag er tjaldsvæðið á Skagaströnd. Guðríður Rafnsdóttir og Ásgeir Klemensson voru hjónin á bænum en Sigríður, Ólafur og Axel voru þeirra börn. Árni Sigurðsson var sonur Guðríðar og þar með hálfbróðir þeirra. Árni ólst upp hjá móður sinni og Ásgeiri manni hennar í Höfðahólum. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 517
Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður á kunnuglegum slóðum í brúnni á Ólafi Magnússyni Hu 54.
Höfðaskóli101
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1957 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Viðar Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson kennari, Axel Jóhann Hallgrímsson og Guðjón Guðjónsson. Fremri röð frá vinstri: Sesselja Guðmundsdóttr, Unnur Gunnarsdóttir, Fjóla Sigurðardóttir, Eyrún Guðbjartsdóttir (d. 7.4.1987) og Guðrún Einarsdóttir.
Höfðaskóli064
Börn fædd 1990 í 2. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Gunnlaug Þ. Gunnlaugsdóttir kennari, Ragnar Már Björnsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Ágústa Lóa Jóelsdóttir, Unnar Már Garðarsson og Arís Eva Vilhelmsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Sunna Gylfadóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Fanney Björk Ingólfsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Katrín Björk Guðmundsdóttir og Steinar Orri Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 639
Myndin sýnir bæina undir Bjarginu (Króksbjargi á Skaga) ásamt útihúsum. Næst okkur er Hlíð, þá Örlygsstaðir og Örlygsstaðir II en fjærst eru Hróarsstaðir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 023
<p>Grétar Smári Hallbjörnsson slakar á í matsalnum á Arnarri Hu 1 á milli hífa.</p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 557
Ólafur Bernódusson dregur hér grásleppunet á bát sínum, Balda, á veiðsvæði sunnan við Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Minjasafn716
Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti fyrir utan Brautarholt. Drengurinn, sem er að skoða hverfisteininn, er líklega Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 586
Gripur nr. 586. Mjólkurbrúsi 25 cm á hæð og 47 cm að ummáli. með loki og haldi. Á lokinu stendur: "A.H. Læk". (Líklega skammstöfun fyrir: Axel Helgason, Læk)
Minjasafn730
Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 659
Gripur nr. 659. Æfingatæki sem hægt er að ýta saman eða toga sundur með "vöðvamæli" eða "Musclometre".
Höfðaskóli060
Börn fædd 1988 í 4. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ívar Gylfason, Arnór Snorri Gíslason, Kristján Pétur Guðjónsson, Jón Atli Magnússon, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Rebekke Maren Þórarinsdóttir, Sigurgeir Snævar Árnason og Garðar Geirfinnsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Kristján Freyr Sigurbjörnsson, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Óðinn Örn Sævarsson, Sindri Jóelsson og Valgerður Guðmundsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 039
Kátir karlar í netavinnu á dekkinu á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Gestur Arnarson, Sævar Hjaltason, Vilhjálmur Jónsson og Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004).
Höfðaskóli087
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1967 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Þórarinn K. Þórsson, Arnar Arnarsson, Ingvar Þór Jónsson, Björn Hallbjörnsson og Hrólfur Pétursson. Fremri röð frá vinstri: Birna Sveinsdóttir, Bergþóra H. Birgisdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir kennari, Svenný Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir og Erna Rós Magnúsdóttir.
Sigurður Bjarnason - safn 048
Sigurður Skagfjörð Bjarnason frá Bjargi á Skagaströnd
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 050
Ungur nemur gamall temur. Friðvin Ingi Ernstson hjálpar Ara Þórssyni við vinnu í vélarúmi eins af togurum Skagstrendings hf.
1
…
117
118
119
…
167
Leita í myndasafninu
Leita