Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 631
Gripur nr. 631. Rafmagnsritvél. "Message Concept 20".
Höfðaskóli107
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1945 - 1948 ásamt kennara sínum. Fyrsta röð (aftast) frá vinstri: Jóhann Björn Þórarinsson, Kristinn Pálsson (d. 21.10.2008) kennari, og Birgir Júlíusson. Önnur röð frá vinstri: Ísleifur Haraldsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Ómar Þorbjörnsson, Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Thorleif Jóhannsson, Búi Birgisson (d. 18.9.2009) og Hallbjörn Björnsson. Þriðja röð frá vinstri: Árni Sigurðsson (d. 14.11.2008) , Pálfríður Benjamínsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Pétur Jóhannsson, Guðrún Þórbjarnardóttir, Ingibjörg Kristinsdóttir og Grétar Haraldsson. Fremsta röð frá vinstri: Birna Guðjónsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir, Sigrún Kristófersdóttir, Dagný Hannesdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Magdalena Axelsdóttir (d. 2015) og Fjóla Jónsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 023
<p>Grétar Smári Hallbjörnsson slakar á í matsalnum á Arnarri Hu 1 á milli hífa.</p><p><br></p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 557
Ólafur Bernódusson dregur hér grásleppunet á bát sínum, Balda, á veiðsvæði sunnan við Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Minjasafn716
Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) frá Brautarholti fyrir utan Brautarholt. Drengurinn, sem er að skoða hverfisteininn, er líklega Vilhelm Harðarson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 663
Gripur nr. 663. Hvítt blómahengi sem farið er að gulna. Úr plasti með keðjum til að hengja það upp.
Minjasafn802
Viðey RE 12. Stærð 231 rúmlest brúttó. Smíðaár 1964 í Noregi. Vél Lister - Diesel 660 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 575
Þessi appelsínuguli skúr var byggður sem verkfæra - verkstæðis- og kaffiskúr þegar Skagastrandarhöfn var í byggingu. Skúrinn var notaður í áratugi- mis mikið eftir því hve miklar framkvæmdir voru í gangi á hverjum tíma. Lengi vel var hann svartur á litinn og var þá alltaf kallaður: "Svarti skúrinn" manna á milli. Hann var staðsettur á a.m.k. þremur stöðum við höfnina en endaði svo æfi sína á þessum stað og var undir það síðasta notaður sem geymsluskúr fyrir útgerðardót.
Minjasafn 557
Gripur nr. 557. Tréhefill, gamall.
Sigurður Bjarnason - safn 040
Þessi börn eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 229
Gripur nr. 229. Vasaúr. Vantar gler og keðju á úrið. Tegund: <strong>Eterna</strong>. Ummál 4,5 cm. Vísarnir eru heilir og eru tölurnar rómverskar. Úrið er í svartri pappaöskju. Eigandi var Skafti Fanndal Jónasson. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi Skagaströnd í september 1994.
Árni Geir Ingvarsson - safn 633
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) sparibúinn um jól á óþekktu ári.
Óþekktur ljósmyndari371
Þessi útstillingar - kassi/skápur var á stafni bragga sem stóð norðan við götuna beint á móti mjölskemmunni. Eigandi kassans/skápsins var Skagastrandarbíó sem notaði hann til að auglýsa kvikmyndasýningar sínar, sem voru, þegar best lét, þrisvar í viku. Að þessu sinni er auglýst "Heimsfræg stórmynd gerð eftir samnefndri metsölubók, sýnd kl 9 í kvöld, sunnudag". Myndin sem um ræðir hét: The Carpetbaggers samkvæmt auglýsingunni. Samkvæmt bókinni "Byggðin undir Borginni" var Skagastrandarbíó stofnað 1958 að frumkvæði Hallbjörns Hjartarsonar, sem var sýningarmaður bíósins, og fleiri. Sýningar voru í Tunnunni, sem þá þjónaði sem samkomuhús bæjarbúa. Snemma á áttunda áratugnum voru sýningarnar færðar í Fellsborg en þá var farið að draga verulega úr aðsókn, einkum vegna samkeppni við sjónvarpið. Skagastrandarbíó seldi síðan Höfðahreppi sýningarvélar sínar 1979 og hætti starfsemi. Félagsheimilið hélt uppi merkinu í nokkur ár en starfsemin fjaraði út hægt og hægt á nokkrum árum.
Sigurður Bjarnason - safn 048
Sigurður Skagfjörð Bjarnason frá Bjargi á Skagaströnd
Höfðaskóli091
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1951 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Björn Bragi Sigmundson og Reynir Sigurðsson. Miðröð frá vinstri: Óskar Jóhannesson (fæddur 1950), Rúnar Jósefsson, Karl Lúðvíksson, Ólafur Halldór Bernódusson, Guðmundur Rúnar Kristjánsson og Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari. Fremsta röð frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Sævar Rafn Hallgrímsson, Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986) og Ísleifur Þorbjörnsson.
Minjasafn756
Skröyfa var líklega norskt síldarskip þar sem saltað var um borð. Myndin er sennilega frá því um aldamótin 1900 og kemur úr búi Carls Berndsen frá Karlsskála á Skagaströnd. Áhafnarmeðlimirnir eru óþekktir enda sennilega allir norskir.Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála 6. maí 1996.
Höfðaskóli083
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1954 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Ingvar Ástmarsson (d.14.10.2018), Magnús Guðlaugsson, Guðbjörg Kristinsdóttir, Gréta Jónsdóttir, Sigríður Ingibjörnsdóttir og Kjartan Bjarnason. Miðröð frá vinstri: Hallbjörn Þorbjörnsson, Heiðar Elvan Friðriksson, Ragnar Smári Ingvarsson, Magnús Lárusson, Heiðar Ólason og Hallbjörn Ágústsson. Fremsta röð frá vinstri: Anna Hannesdóttir, Jónína Baldursdóttir, Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Guðrún Lárusdóttir og Linda Kristjánsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 066
Systrasynirnir Vilhelm Björn Harðarson til vinstri og Ernst Berndsen til hægri.
Minjasafn 654
Gripur nr. 654. "Hoover" ryksuga. Grá og blá með gráum poka og grænni rafmagnssnúru.
Höfðaskóli028
Börn fædd 1980 í 3. bekk Höfðaskóla skólaárið 1988-1989 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Jóhanna Ólafsdóttir kennari, Sigríður Magnúsdóttir, Erla María Lárusdóttir, Gunnar Dór Karlsson og Valrún Eva Vilhelmsdóttir. Miðröð frá vinstri: Kristinn Björnsson, Bjarney Gunnarsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Sigurður Haukur Grétarsson. Fremsta röð frá vinstri: Arnþór Haukdal Rúnarsson, Sigurður S.Ó. Hallgrímsson, Fjóla Ómarsdóttir og Rakel Peta Finnsdóttir.
Minjasafn 265
Gripur nr. 265. Diskur.
Óþekktur ljósmyndari370
Ekki er vitað á hvaða ferðalagi þessir Skagstrendingar voru né hvenær myndin var tekin. Líklega tengist þetta fólk kirkjukórnum á einn eða annan hátt. Á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Ása Jóhannsdóttir, óþekkt, Eygló Guðbjartsdóttir, Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985), Fjóla Sigurðardóttir (krýpur), Ólína Marta Steingrímsdóttir (d. 4.2.1994)(í miðjunni), óþekkt (fjærst), Dagný Hannesdóttir, óþekkt (fjær), Eyrún Guðbjartsdóttir (d. 7.4.1987)(krýpur), Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Þorgerður Guðmundsdóttir (d. 24.4.2008) (situr), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), óþekkt, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) (situr), óþekkt, Elísabet Árnadóttir (situr), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002),? Edda Pálsdóttir?(situr) og óþekkt. Ef þú þekkir einhvern af óþekkta fólkinu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn778
Jaðar til vinstri og Gamli Jaðar til hægri. Gamli Jaðar er nú löngu horfinn. Börnin á myndinni eru óþekkt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Lækjarbakka á Skagaströnd. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Sigurður Bjarnason - safn 019
Þessi þrjú börn eru óþekkt og ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá ábendingu.
Höfðaskóli - safn 111
Þessi mynd úr Höfðaskóla hefur líklega verið tekin af einhverju skemmtiatriði á opnu húsi í skólanum einhverntíma um miðjan tíunda áratuginn. Framan við borðin standa Jenný Lind Sigurjónsdóttir til vinstri og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir) til hægri. Uppi á borðunum eru frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Rósa Björk Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen og Hanna Rúna Gestsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 570
Bræðurnir Þorvaldur Skaftason sem er með gítarinn og Vilhjálmur Skaftason í góðum gír í Skíðaskálanum á Skagaströnd.
Höfðaskóli102
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1947 og 1948 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Pétur Jóhannsson, Ísleifur Haraldsson, Jóhann Björn Þórarinsson, María Bjarnadóttir (d. 1984), Jóhann Ingibjörnsson, Jón S. Pálsson kennari, Búi Birgisson (d. 18.9.2009), Steinunn Ellertsdóttir, Sigurður Bjarnason og Árni Björn Birgisson. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Jóhanna Valdimarsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 085
Karl Berndsen (d. verkstæðisformaður á Vélaverkstæði Karls Berndsen á verkstæðisbílnum. Karl gerði ýmsar tilraunir með eldsneyti á bílinn lét hann t.d. ganga á lýsi um tíma auk þess að blanda úrgangsolíu saman við hráolíuna en alltaf gekk bíllinn hjá Kalla.
Árni Geir Ingvarsson - safn 563
<p>Á þessari gömlu mynd af innbænum er byggðin strjálli en í dag. Fellsbraut, Suðurvegur, Sunnuvegur og Túnbraut eru að mestu óbyggðar en einnig sýnir myndin horfin hús s.s. Stóra-Berg, Dagsbrún, Ólafsvellir, Brautarholt, fjárhús o.fl.. </p>
Minjasafn787
Auðbjörg Hu 6. Báturinn var smíðaður í Stykkishólmi 1973 fyrir Auðbjörgu hf en eigendur félagsins voru Árna Björn Ingvarsson, Gunnar Sveinsson, Jón Stefánsson og Stefán Jósefsson. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Árni Björn Ingvarsson í október 1994.
Minjasafn 567
Gripur nr. 567. Tómt hulstur undan rakhníf. "GONG" stendur á hulstrinu ásamt fleiru.
Minjasafn 530
Gripur nr. 530. Tvö pör hurðarhúna. Annað parið er með innskornu munstri á húnunum. Hitt parið er með slétta og glansandi húna.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 011
Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri við vinnu sína við vélaviðgerð um borð í einum af togurum Skgastrendings hf.
Höfðaskóli - safn 314
Í smíðatíma í Höfðaskóla líklega 1988 eða 1989. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Briem og Jón Oddur Hjálmtýsson.
Höfðaskóli087
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1967 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Þórarinn K. Þórsson, Arnar Arnarsson, Ingvar Þór Jónsson, Björn Hallbjörnsson og Hrólfur Pétursson. Fremri röð frá vinstri: Birna Sveinsdóttir, Bergþóra H. Birgisdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir kennari, Svenný Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir og Erna Rós Magnúsdóttir.
Minjasafn 659
Gripur nr. 659. Æfingatæki sem hægt er að ýta saman eða toga sundur með "vöðvamæli" eða "Musclometre".
Höfðaskóli060
Börn fædd 1988 í 4. bekk Höfðaskóla veturinn 1997-1998 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Ívar Gylfason, Arnór Snorri Gíslason, Kristján Pétur Guðjónsson, Jón Atli Magnússon, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Rebekke Maren Þórarinsdóttir, Sigurgeir Snævar Árnason og Garðar Geirfinnsson kennari. Fremri röð frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Kristján Freyr Sigurbjörnsson, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Óðinn Örn Sævarsson, Sindri Jóelsson og Valgerður Guðmundsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 039
Kátir karlar í netavinnu á dekkinu á Arnari Hu 1. Frá vinstri: Gestur Arnarson, Sævar Hjaltason, Vilhjálmur Jónsson og Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004).
Sigurður Bjarnason - safn 043
Óþekkt kona. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 179
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í "öðruvísi" fötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er einn hópurinn að skoða hvert næsta verkefni ratleiksins er. Frá vinstri: Helga Ólína Aradóttir, Sólveig Róarsdóttir, Hans Holger Jörgensen og Kristján Birgisson.
Höfðaskóli - safn 322
Myndin var tekin á reiðhjóladegi í Höfðaskóla. Þá komu nemendur með hjólin sín og leystu ýmsar reiðhjólaþrautir eftir að lögreglan hafi yfirfarið hjólin þeirra og athugað hjálmanotkun krakkanna. Fremstur í röðinni er Brynjar Max Ólafsson, númer tvö er Guðlaugur Ómar Guðmundsson, þrjú er Kristbjörg Ragnheiðardóttir og fjórða er Sonja Sif Ólafsdóttir. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson - safn 565
Sólheimar við Skagaveg á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 573
Verðlaunaafhending fyrir kappróður á sjómannadegi. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. Mennirnir á pallinum eru frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d. 29.12.2013), óþekktur, Björn Haraldsson (d. 21.9.1988), baksvipur Ingvars Jónssonar (d. 29.7.1978) , óþekktur, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Jón Stefánsson (d. 3.8.1991) og Gunnar Sveinsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir nema maðurinn með brúna hattinn er líklega Guðmundur Pétursson (d. 30.6.1987) oftast kenndur við Höfðakot. Ef þú þekkir einhvern óþekktan á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 652
Gripur nr. 652. Ofin bastkarfa, ljósleit.
Minjasafn684
Síldarsöltun 1958 eða 1959 á bryggjunni á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Myndina gaf Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd
Sigurður Bjarnason - safn 030
Líklega var þessi mynd tekin af fermingarsystkinum utan við Hofskirkju á Skaga. Drengurinn á myndinni er Ingólfur Bjarnason (d. 17.1.1967) frá Bjargi á Skagaströnd. Stúlkurnar eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 087
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) starfsmaður á Vélaverkstæði Karls Berndsen við veisluborð á Strandgötu 10 sem var heimili eiganda verkstæðisins, Karls Berndsen (d. 12.2.1995).
Árni Geir Ingvarsson - safn 634
Hluti af útbænum á Skagaströnd. Á myndinni, sem tekin er af Vetrarbrautinni (Nýja veginum), má sjá allmörg hús sem ekki eru til lengur. Lengst til vinstri eru Kárastaðir sem hafa veið rifnir. Útihúsin við Bjarmaland eru horfin og sama má segja um Höfðakot, sem er fyrir miðri mynd, með grænu þaki. Höfðaberg, sem stendur upp í Höfðanum og ber yfir Sólheima, er horfið eins og Gunnarshólmi (Grafarbakki), sem er húsið lengst til hægri á myndinni, grænt og gult á litinn. Þegar ákveðið hafði verið að Gunnarshólmi ætti að hverfa fékk slökkviliðið á Skagaströnd að kveikja í því til að æfa sig í að slökkva í því aftur. Að lokum var því svo leyft að brenna til grunna undir eftirliti slökkviliðsins.
Minjasafn764
M/b Svanur Hu 7 frá Akureyri 1930 11 tonn að stærð. Eigendur voru Gunnlaugur Árnason, Jakob Bjarnason og fleiri frá Hvamstanga. Síðar Júlíus og Baldur Árnasynir á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.Gefandi: Gunnlaugur Árnason Karlsskála í september 1996
Minjasafn 611
Gripur nr. 611. Ál-mjólkurbrúsi með loki og haldi. 19 cm djúpur og 45 cm að ummáli.
Árni Geir Ingvarsson - safn 610
Hafísjakar á reki á legunni sunnan við Höfðann. Á Höfðanum má sjá hjalla sem notaðir voru tiil að þurrka skreið. Hjallarnir eru nú löngu horfnir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn799
Geir RE 406. Stærð 73 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1956 í A- Þýskalandi. Vél MAK - Diesel 240 hestöfl. Heimahöfn Reykjavík. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Minjasafn 668
Gripur nr. 668. Gamlir reimaðir boxhanskar.
Minjasafn718
Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1996) Sævarlandi, Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen frá Karlsskála 12. september 1996.
Árni Geir Ingvarsson - safn 508
Það liggur vel á þeim Gunnari Gunnarssyni við stýrið og Ragnari Jónssyni í skemmtiferð um borð í einhverri skektu.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 004
Ernst Berndsen yfirvélstjóri á kunnuglegum slóðum í stjórnherberginu í vélarrúmi Arnars Hu 1.
Höfðaskóli088
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1952 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Ingi Jóhann Hafsteinsson (d. 12.12.1987), María Magnúsdóttir kennari og Hinrik Jóhannesson. Miðröð frá vinstri: Kristinn Ágústsson, Ari Ólafsson, Rúnar Hartmannsson, Skúli Bjarnason, Árni Másson, Helgi Gunnarsson og Kári Lárusson. Fremsta röð frá vinstri: Anna Kristjánsdóttir, Ása Hrólfsdóttir, Steinunn Steinþórsdóttir, Ingibjörg Þorfinnsdóttir, Margrét Guðlaugsdóttir og Eyrún Birgisdóttir.
Minjasafn745
Aftan á þessari mynd stendur: <em>" Jóhanna Benónísdóttir, f. 11/8. 1883 á, Steinýjarstöðum, búsitt síðast í Drangei á Skagaströnd. d, 5/3, 1957."</em> Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 044
Björn Sigmundsson vélstjóri við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 090
Oft hefur verið mikið um að vera í dráttarbrautinni. Bátar af öllum stærðum og gerðum koma þar og fara. Sumir þeirra enda þar ævi sína eins og raunin varð með Auðbjörgu Hu 6, sem er á myndinni og Hinrik? sem er húslaus lengst til vinstri. verið er að hífa Beggu GK 717 upp á pallinn á kranabílnum sem síðan flutti hana burt. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
1
…
118
119
120
…
167
Leita í myndasafninu
Leita