Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 049
Ernst Berndsen yfirvélstjóri vinnur við aðalvélina í einum af togurum Skagstrendings hf.
Óþekktur ljósmyndari374
Guðmundur Þór Hu 17 nýbyggður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf á Skagaströnd í reynslusiglingu. Fólkið um borð er óþekkt.
Höfðaskóli - safn 239
Þessir nemendur Höfðaskóla fæddust árið 1983. Þessi mynd af þeim var tekin 1998 eða 1999 og einhverjum hefur fundist við hæfi að merkja sérstaklega við þrjá nemendur bekkjarins. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Bernódusson kennari, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Jón Oddur Hjálmtýsson, Gunnar Helgason, Vignir Örn Hafþórsson, Marta Kristín Jónsdóttir, Gunnlaugur Briem, Guðjón Ebbi Guðjónsson og Elva Mjöll Þórsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Eyþór Ernstsson, Magnús Filip Sævarsson, Jón Gunnar Einarsson, Adolf Þór Lúðvíksson, Magnús Líndal Þrastarson og María Markovic.
Árni Geir Ingvarsson - safn 505
Kafarinn Kjartan? frá Ísafirði býr sig undir að kafa við rækjubát. Maðurinn sem snýr baki í okkur er Ólafur Ingibjörnsson sem var skipstjóri á bátnum (Hafbjörg Hu 100 ?).
Árni Geir Ingvarsson - safn 550
<p>Líklega eru þessir þrír sjómenn á frívakt. Myndin var sennilega tekin uppi á brúarþakinu á Örvari Hu 21 í blíðskapar veðri innan um íshrafl. Mennirnir eru frá vinstri: Friðrik J. Arngrímsson fv. framkvæmdastjóri LÍÚ, Böðvar Björnsson frá Löngumýri og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.</p>
Höfðaskóli - safn 110
Ekki er vitað hvaða ár þessi mynd var tekin í Höfðaskóla en sennilega hefur það verið á litlu jólum um miðjan tíunda áratuginn. Aftari röð frá vinstri: Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir), Birna Sæmundsdóttir, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, óþekkt, Stefán Agnar Gunnarsson, Birkir Rúnar Jóhannsson og Lýður Ragnar Arason. Fremri röð frá vinstri: óþekktur, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Tinna Gunnarsdóttir, Elva Ösp Gunnarsdóttir og Kristinn Daníel Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 263
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár.Á þessari mynd eru nokkrir nemendur að taka þátt í einhverju þeirra atriða sem fram fóru þennan dag. Frá vinstri: Ólína Selma Þórarinsdóttir, Patrik Snær Bjarnason, Ómar Ísak Hjartarson, óþekkt, Sunna Guðlaugsdóttir, Rósa Björk Einarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir (fjær), Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Hörður Aðils Vilhelmsdóttir, Karl Bender? og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 525
Séra Oddur Einarsson blessar nýsmíðina Björg Hu 40 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 493
Margur hefur gaman af að fara og dorga niður um ís í einhverju af vötnunum í Skagaheiðinni á veturna. Á þessari mynd liggur Guðmundur J. Björnsson flatur og reynir að koma auga á svanga silunga gegnum holuna sína. Lengra frá stendur Baldvin Hjaltason og dorgar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 604
Sigursveit í kappróðri á sjómannadegi. Frá vinstri: Kristófer Árnason (d. 10.5.2000), óþekktur, Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Jón Stefánsson (d. 3.8.1991), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Jón Ingi Ingvarsson og Gunnar Sveinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
larus096
Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (d. 8.12.2003) í Blálandi og Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) í Reykholti eftir að hafa verið heiðruð á sjómannadegi 1990. Heiðursorða sjómannadagsins á Skagaströnd er veitt einstaklingum fyrir áratuga gott starf við sjómennsku og/eða fiskvinnslu á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 529
Árni Guðbjartsson um borð í Hafrúnu Hu 12 býður ljósmyndaranum í nefið. Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) bíður á bryggjunni eftir að röðin komi að honum.
Höfðaskóli - safn 354
Gestir í Höfðaskóla á einhverjum opnum degi í skólanum. Frá vinstri: Inga Valdís Heimisdóttir?, Jónína Valdimarsdóttir, Þórdís Sigurðardóttir, óþekkt og Þorvaldur Skaftason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 555
Mikil ókyrrð var við Skúffugaðinn áður en grjótgarður var gerður þvert á hann, fremst, til að mynda skjól. Síðan kom trébryggja, Smágarður, ofar út frá Skúffufgarðinum þannig að í dag er ákjósanlegt bátalægi við Skúffugarðinn í hvernig veðrum sem er. Á þessari mynd má sjá að bátarnir dönsuðu í landfestunum í sunnan kælunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 583
Nær okkur á myndinni er Jaðar (Efri-Jaðar) með torfi á þaki ásamt sambyggðum fjárhúsum og hlöðu. Þessi hús er nú öllu horfin. Fjær er svo Neðri-Jaðar sem Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) byggði á stríðsárunum fyrir sig og fjölskyldu sína.
Höfðaskóli070
Starfsmenn Höfðaskóla veturinn 1994 - 1995. Aftasta röð frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Jóhanna Jónsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Líney Jósefsdóttir, Helga Ólína Aradóttir og Egill Hallgrímsson. Miðröð frá vinstri: Sólveig Kristjánsdóttir, Elva Þórisdóttir, Bjarni G. Þórmundsson, Unnur Kristjánsdóttir, Þröstur Líndal Gylfason og Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007). Fremsta röð frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Jón Ingvar Valdimarsson aðstoðarskólastjóri, Ingibergur Guðmundsson skólastjóri og Sóley Ægisdóttir.
Höfðaskóli089
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1967 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Kolbrún Þórðardóttir kennari, Sigurjón Karlsson, Ólafur Ásgeirsson, Ingvar Þór Jónsson og Arnar Arnarsson. Miðröð frá vinstri: Svenný Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir, Birna Sveinsdóttir, Jóhanna Hafdís Leifsdóttir og Bergþóra Birgisdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Hrólfur Pétursson, Ingvar Jónsson, Hafsteinn Pálsson og Björn Hallbjörnsson.
Sigurður Bjarnason - safn 014
Hulda Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 564
Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001) fyrir utan heimili sitt Steinholt á Skagaströnd.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 056
Sigursveitin í kappróðri karla á sjómannadegi 1991 kom frá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Á myndinni er sigursveitin. Frá vinstri: Vilhelm Björn Harðarson, Ari Þórsson, Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson, Guðbrandur Magnússon, Gísli Snorrason og Karl Berndsen (d.12.2.1995) stýrimaður. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 082
Björn Viðar Hannesson frá Vélaverkstæði Karls Berndsen við vinnu sína um borð í Örvari Hu 21 í júlí 1994.
Minjasafn753
Sigríður Pétursdóttir (d.?). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli - safn 167
Tóbaksvarnaráð Íslands hélt samkeppni í nokkur ár meðal 8. bekkinga á landinu um besta áróðurefnið gegn tóbaksreykingum. 8. bekkir Höfðaskóla sigruðu tvisvar í þessari keppni en verðlaunin voru vikuferð til Danmerkur. Þessir nemendur sigruðu árið 2001 með áróðursspjöldum og bæklingi sem borinn var í hús á Skagaströnd. Krakkarnir fóru síðan í skemmtilega ferð til Danmerkur í framhaldinu. Krakkarnir eru, frá vinstri: Ásdís Adda Ólafsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir, Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Friðvin Ingi Ernstsson, Eyþór Kári Egilsson, Björn Viðar Jóhannsson, Sindri Njáll Hafþórsson og Kristinn Andri Hjálmtýsson.
Höfðaskóli - safn 185
Jóna Fanney Svavarsdóttir kennari við Höfðaskóla í nokkur ár. Myndin var tekin í íþróttahúsinu.
Höfðaskóli104
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1948 og 1949 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Ómar Jakobsson, Þorvaldur Skaftason, Halldóra Ásmundsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Sigurjón Haraldsson, Guðmundur Guðmundsson og Örn Berg Guðmundsson. Miðröð frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Ástmarsson, Gísli Kristjánsson, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Gunnlaugur Sigmarsson, Steindór R. Haraldsson og Guðmundur J. Björnsson. Fremsta röð frá vinstri: Jóhanna Hallgrímsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Margrét Valdimarsdóttir, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Matthildur Hafsteinsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Guðbjörg Þorbjörnsdóttir.
Minjasafn 638
Gripur nr. 638. Skilti úr tré málað rautt og hvítt með teiknaðri mynd af Andrési önd á tveimur stöðum misstórum. Einnig er teiknuð mynd af einhvers konar snák. Efst á skiltinu stendur: S.R. 1963 sem er skammstöfun fyrir: Síldarverksmiðja Ríkisins. Á skiltinu stand svo fjögur karlmannsnöfn: Óli A., Sigurður B., Frímann L. og Jóhann B. Þ. en allir þessir menn unnu hjá S.R. um tíma.
Höfðaskóli - safn 249
Vilborg Magnúsdóttir kennari við Höfðakóla í nokkur ár. Myndin var tekin vorið 1986.
Höfðaskóli - safn 390
<p>Stöllurnar og kennarar við Höfðaskóla í nokkur ár, Ingibjörg Jónasdóttir til vinstri og Jóna Fanney Svavarsdóttir til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 2000 í einhverri útivist kennara skólans.</p>
Höfðaskóli - safn 274
Þessir hressu nemendur eru að undibúa 60 ára afmæli Höfðaskóla í nóvember 1999. Frá vinstri: fjögur óþekkt, Gunnar Sæmundsson, Hákon Unnar Þórarinsson, Sunna Gylfadóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, óþekktur (nær), Sindri Njáll Hafþórsson (fjær), Elías Sæmundsson og Friðvin Ingi Ernstsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 584
<p>Báturinn Sæborg Hu 177 leggur úr höfn á Skagaströnd í sléttum sjó. Sæborg var smíðuð í Vestur-Þýskalandi 1956 eftir teikningu Hjálmars R. Bárðarsonar og endurbyggður í Keflavík 1978 - 1979. Sæborgin fórst út af Rifi á Snæfellsnesi 8. mars 1989 og með honum einn maður. Maðurinn sem fylgist með á bryggjukantinum er Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) fyrrverandi sjómaður og áhugaljósmyndari. </p>
Höfðaskóli - safn 137
<p>Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi nemenda Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1995-1998. Frá vinstri: Lýður Ragnar Arason og Stefán Agnar Gunnarsson. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.</p>
Höfðaskóli - safn 214
Ingunn Björnsdóttir kennari við Höfðaskóla. Í dyrunum sér í Ólaf Bernódusson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 595
Þessi mynd af Skagatrönd hefur líklega verið tekin kringum 1965. Takið eftir að verið er að byggja ker í slippnum fram af Bjarmanesi og viðbygging við skólann er ekki komin.
Höfðaskóli - safn 226
Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Á myndinni eru frá vinstri: Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Jón Oddur Hjálmtýsson, Jón Ingi Ragnarsson, Gunnlaug Gunnlaugsdóttir kennari, Guðni Már Lýðsson og Hákon Unnar Þórarinsson.
Höfðaskóli - safn 127
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Á myndinni stilla 6 - 7 ára börn sér upp með kennara sínum Báru Þorvaldsdóttur. Fremsta röð frá vinstri: tveir óþekktir, Helga Dögg Jónsdóttir, óþekkt, ?Steinar Ólafsson? og Bára kennari. Önnur röð frá vinstri: tveir óþekktir, Ómar Ísak Hjartarson og Katrín Guðmundsdóttir. Þriðja röð frá vinstri: Alma Eik Sævarsdóttir, Brynja Ágústsdóttir, óþekkt og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir. Efst tróna svo tveir óþekktir nemendur. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 551
Stefán Jósefsson til vinstri og Ragnar Ingvarsson til hægri sansa veiðarfæri um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 í ljósaskiptunum.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 029
Sævar Hjaltason glaðbeittur við vinnu sína um borð í Arnari Hu 1.
Höfðaskóli - safn 140
Þessar þrjár ungu stúlkur eru að vinna við að útbúa jólaskraut með jólamyndum, sem sett er í gluggana á Höfðaskóla yfir jólin. Skrautið er notað ár eftir ár og er þess vegna á trérömmum sem passa inn í gluggana. Stúlkurnar eru frá vinstri: Ragna Magnúsdóttir, Birna Ágústsdóttir og Sigurbjörg Jónasdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 010
Rafvirkameistarinn Hallbjörn Björnsson við vinnu um borð í einum af togurum Skagstrendings hf.. Hallbjörn hefur að stórum hluta séð um viðhald sem snýr að rafmagni og raftækjum um borð í togurum félagsins frá upphafi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 635
Asparlundur (Bogabraut 24) á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 238
Þessir strákar hafa sigrað í einhverri keppni innan Höfðaskóla einhverntíma kringum 1996. Frá vinstri: Gunnar Helgason, Magnús Líndal, Gunnlaugur Briem, Magnús Filip Sævarsson, Vignir Örn Hafþórsson, Eyþór Ernstsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Jón Gunnar Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 572
Myndin var tekin á sjómannadegi af bardagaleik í höfninni á Skagaströnd. Leikurinn fólst í því að mennirnir áttu að reyna að koma andstæðingnum í sjóinn með því að ýta við honum með löngu priki með púða á endanum. Ef grannt er skoðað sést lítill ísjaki í baksýn svo líklega hefur sjórinn verið óvenju kaldur. Mennirnir eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1980.
Höfðaskóli - safn 232
Guðmundur Oddson var kennari í Höfðaskóla í nokkur ár. Á þessari mynd er hann að slaka á í kaffitíma á kennarastofunni.
Sigurður Bjarnason - safn 002
Breiðablik á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin í nóvember 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 586
Eiður Hilmarsson leikur sér að því að lyfta Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007) og halda uppi með annarri hendi. Auðbjörg Hu 6 er í baksýn.
Sigurður Bjarnason - safn 049
Þessi brosmilda stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari376
Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) við vinnu sína sem lagermaður hjá skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf og seinna hjá Mánavör hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 598 no2
Gripur nr. 598. Áldunkur notaður undir sykurmola (sykurmolarnir eru ennþá í honum). Ofan í dunknum er viskastykki sem var gefið með honum.15 cm djúpur og 65 cm að ummáli. Ekkert lok fylgir dunkinum.
Höfðaskóli - safn 198
<p>Tölvuöldin hóf innreið sína í Höfðaskóla með því að keypt var ein tölva sem þótti frábært tæki á þeim tíma með minni upp 512 mb. Að sjálfsögðu var nemendunum ekki hleypt í þetta nýja, dýra tæki nema undir ströngu eftirliti kennara. Á þessari mynd er Ólafur Bernódusson kennari að skrifa á tölvuna en tveir nemendur fylgjast spenntir með. Nemendurnir eru líklega Eyþór Ernstsson? til vinstri og Gunnar Dór Karlsson? til hægri. </p>
Árni Geir Ingvarsson - safn 559
Magnús B. Jónsson leggur flísar í forstofu á ókunnum stað.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 075
Myndin var tekin í kaffi á Strandgötu 10, heimili Karls Berndsen, á óþekktum tíma. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Hörður Ragnarsson og Jóhann Björn Þórarinsson.
Höfðaskóli103
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1944 - 1946 ásamt kennara sínum. Aftari röð frá vinstri: Kristín Lúðvíksdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Þórunn Bernódusdóttir. Fremsr röð frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Hallbjörn Björnsson, Eiríkur Kristinsson (d. 4.10.1994) kennari, Kristinn Lúðvíksson og Ómar Þorbjörnsson.
Höfðaskóli - safn 252
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd standa fjórir nemendur við upplýsingaspjöld um ýmislegt sem tengist skólastarfinu þessi 60 ár. Frá vinstri: Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir og Patrik Snær Bjarnason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 593
Eldri mynd af Skagaströnd. Næst okkur á myndinni er trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar í byggingu.
Minjasafn794
Eyjaberg VE 130. Stærð 94 rúmlestir brúttó. Smíðaár 1959 í A- Þýskalandi. Vél MWM Diesel 400 hestöfl. Heimahöfn Vestmannaeyjar. Strandaði og sökk 1965. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Höfðaskóli - safn 242
Anna María Magnúsdóttir vinstra megin og Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir til hægri hvíla lúin bein á óþekktu torgi í skólaferðalagi Höfðaskóla í Danmörku 2001.
Höfðaskóli - safn 365
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Hópurinn var heppinn með veður og skemmti sér vel. Á myndinni eru nokkrir drengir albúnir í vatnsslag vopnaðir öflugum vatnsbyssum. Frá vinstri: Ólafur Guðmundsson, Gunnar Helgason, Leó Kristberg Einarsson og Jón Gunnar Einarsson.
Höfðaskóli - safn 389
<p>Ólafur Bernódusson í Höfðaskóla. Ólafur kenndi í skólanum í áratugi. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.</p><p><br></p>
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 032
Þessi mynd af Hornbjargi hefur sennilaga verið tekin á heimsiglingu til Skagastrandar. Hornbjargið er vinsæll viðkomustaður göngumanna um Hornstrandir.
Höfðaskóli048
Starfsfólk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftasta röð frá vinstri: Dagbjört Bæringsdóttir, Árdís Indriðadóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir, Ingibjörg Elín Jónasdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Sólveig Róarsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Miðröð frá vinstri: Hans Holger Jörgensen, Kristján Birgisson, Ólafur Bernódusson aðstoðarskólastjóri, Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Valdimar Þórhallsson og Guðmundur Kristinn Oddsson. Fremsta röð frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Helga Ólína Aradóttir, Björn Ingi Óskarsson og Jóna Fanney Svavarsdóttir.
1
…
122
123
124
…
167
Leita í myndasafninu
Leita