Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 215
<p>Þessi mynd var tekin á Borgarhausnum á útivistardegi af hópi nemenda, sem valdi sér það verkefni fyrir daginn að ganga á Spákonufellsborg. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1992. Frá vinstri: Hildur Inga Rúnarsdóttir, Elva Mjöll Þórsdóttir, Hilmar Árdal Eðvarðsson, Hafsteinn Auðunn Björnsson?, Ólafur Bernódusson kennari, Magnús Filip Sævarsson?, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Skúli Már Matthíasson (situr), Salóme Ýr Rúnarsdóttir (í miðið), Þóra Lísebet Gestsdóttir (fjærst), Halla Kristín Árnadóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, óþekkt (krýpur), Ásdís Lýðsdóttir (stendur) og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson. Í baksýn má sjá hafísjaka á reki á Húnaflóa.</p>
Sigurður Bjarnason - safn 018
Anna Bjarnadóttir frá Bjargi á Mósa sínum.
Höfðaskóli - safn 378
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd syngur hópur nemenda fyrir gesti. Frá Vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir), Ómar Ísak Hjartarson, Sunna Gylfadóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson og Laufey Sunna Guðlaugsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 545
Vetur geta verið mis snjóþungir. Þessi mynd var tekin á einum snjóþungum en á henni eru húsin númer 13 og 15 við Bogabraut að mestu á kafi í snjó. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 501
Tveir ungir menn leggjast í víking á litlum bát. Gunnar Gunnarsson við stýrið og Ragnar Jónsson í stafni.
Höfðaskóli - safn 220
Davíð Víðisson til vinstri og Brynjar Max Ólafsson til hægri.
Höfðaskóli - safn 318
Myndin var tekin af nemendum Höfðaskóla og nokkrum kennurum á útivistardegi í Höfðaskóla kringum 1995. Myndin var tekin við vörðuna uppi á Spákonufellsborg - á Borgarhausnum. Í fremstu röð frá vinstri: Gunnlaugur Briem, Gunnar Helgason, Magnús Filip Sævarsson, óþekktur, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Adolf Þór Lúðvíksson, Marta Kristín Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Vignir Örn Hafþórsson, Jón Gunnar Einarsson og Guðjón Ebbi Guðjónsson. Hópurinn þar fyrir aftan frá vinstri: óþekktur, Karen Peta Karlsdóttir, Dusan Markovic, María Markovic, Jón Ólafur Sigurjónsson, Ástmar Sigurjónsson, Gunnar Dór Karlsson (fjær), Guðrún Björk Elísdóttir (nær), Gunnar Guðmundsson, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Magnús Árni Hallgrímsson (fremst), Rakel Petrea Finnsdóttir (næst fremst í bláum jakka), Arnar Ólafur Viggósson (næst aftast), Jóhannes William Grétarsson (aftast), óþekkt (nær), Salóme Ýr Rúnarsdóttir (fjær), Ásta Ýr Ásgeirsdóttir (nær), Trausti Magnússon? (fjær), Andri Ómarsson (fremst með rauðleita húfu), Sigurður Berndsen (fremst), Árni Max Haraldsson (næst fremst), Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir (næst aftast), óþekkt (aftast), Eyþór Ernstsson, Unnur Kristjánsdóttir kennari, óþekktur, Guðrún Elsa Helgadóttir og Carl Erik Lehman Jakobsen kennari. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndina tók Ólafur Bernódusson kennari.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 063
Þessi mynd var sennilega tekin einhverntíma upp úr 1990 á túni við Kerlingarholt. Á henni er Ernst Berndsen með kaðalhönk í hendi en hann var þá nýbúinn að festa kaup á sviffallhlíf sem hægt var að draga á loft með bát eða bíl. Pabbi hans, Karl Berndsen (d.12.2.1995), er að hnýta endana í bílinn til að uppdráttur geti farið fram.
Árni Geir Ingvarsson - safn 523
Sprellað á sjómannadegi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) með embættishúfu sína sem tollvörður, Sigurbjörn Björgvinsson með hvítan hatt og Guðmundur Haukur Sigurðsson í stuttbuxum úr enska fánanum. Aftan við þá félaga fylgist Björn Sigurðsson vel með.
Höfðaskóli - safn 285
<p>Það liggur vel á þeim, talið frá vinstri, Árna Halldóri Eðvarðssyni, Guðna Má Lýðssyni og Birki Rúnari Jóhannssyni við vinnu sína við að gera veggspjöld fyrir 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999. Stúlkan í baksýn er óþekkt. </p>
Skagaströnd - safn 422
Þetta hús, Brautarholt, stóð við Fellsbraut 11. Síðasti íbúi í húsinu var Ólafur Guðmundsson (d. 6.10.1985) og var hann gjarnan kenndur við húsið. Ólafur var blindur síðustu árin sem hann lifði.
Höfðaskóli - safn 134
<p>Myndin var tekin í skólaferð 7. bekkjar Höfðaskóla að Reykjum líklega 1997. Á miðri mynd dregur Ingibjörg Axelma Axelsdóttir Önnu Maríu Magnúsdóttur á einhverskonar hjólabretti. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað um úrslit keppninnar.</p><p><br></p>
Höfðaskóli - safn 328
Andri Þór Ómarsson í myndmenntatíma í Höfðaskóla líklega kringum 1993.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 019
Ari Þórsson til vinstri og Indriði Hauksson til hægri vinna við að setja vél í bíl á Vélaverkstæði Skagastrandar.
Höfðaskóli057
Börn fædd 1989 í 6. bekk Höfðaskóla veturinn 2000-2001. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Ásþór Óðinn Egilsson, Maríanna Ástmarsdóttir og Arnrún Bára Finnsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ívar Kristberg Einarsson, Almar Freyr Fannarsson, Unnur Kristjánsdóttir kennari og Sigþór Ottó Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn 176
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í náttfötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Þessar þrjá kennslukonur mættu í englabúningum utan yfir náttfötin. Frá vinstri: Ingibjörg Jónasdóttir, Jóna Faney Svavarsdóttir og Elva Þórisdóttir.
Höfðaskóli - safn 245
<p>Vorið 2001 fóru elstu nemendur Höfðaskóla í skólaferðalag til Danmerkur ásamt tveimur kennurum og einum stuðningsfulltrúa. Á þessari mynd, sem tekin var á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn, eru frá vinstri: Kristín Kristmundsdóttir stuðningsfulltrúi, Hans Holger Jörgensen kennari og Dóra Rebekka Sævarsdóttir að fá sér hressingu.</p>
Höfðaskóli - safn 207
Myndin var tekin í vinnuviku í Höfðaskóla. Slíkar vikur voru haldnar annað hvert ár en þá var hefðbundin kennsla felld niður í viku og nemendur fengu ýmis konar önnur verkefni að fást við. M.a. var rekið skólaútvarp í einni slíkri viku og hérna eru áhugasamir skólaútvarpsmenn að taka viðtal við skólastjórann úti á skólavelli. Frá vinstri: Páll Leó Jónsson skólastjóri, Viggó Magnússon og Þorlákur Sveinsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var sennilega tekin 1986 eða 1987.
Höfðaskóli - safn 208
Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir vélritar í Höfðaskóla áður en tölvurnar héldu innreið sína í skólastarfið.
Árni Geir Ingvarsson - safn 569
Akurgerði. Akurgerði var rifið 2009 og byggt var nýtt hús á lóðinni sem er Hólabraut 9.
Höfðaskóli - safn 278
Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri Höfðaskóla, til vinstri, með dóttur sína í fanginu ásamt Báru Þorvaldsdóttur kennara til hægri. Myndin var sennilega tekin kringum 1998.
Árni Geir Ingvarsson - safn 631
Ásholt á Skagaströnd. Sólvangur fjær til vinstri.
Höfðaskóli - safn 178
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í "öðruvísi" fötum og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er einn hópurinn að skoða hvert næsta verkefni ratleiksins er. Frá vinstri: Sólrún Ólína Sigurðardóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir,Guðbjörg Ólafsdóttir og Dagbjört Bæringsdóttir.
Höfðaskóli - safn 160
Árið 1999 varð Höfðaskóli 60 ára. Í tilefni af því var undirbúin dagskrá í skólanum einn skóladaginn þar sem öllum var boðið í heimsókn. Eitt af því sem boðið var upp á var frumsaminn leikþáttur þar sem kíkt var inn í hefðbundna kennslustund eins og þær voru 1939 og svo aftur 1999. Leikþátturinn var svo sýndur á klukkutíma fresti allan morguninn og sama gilti um önnur atriði sem voru á dagskránni þennan dag. Á þessari mynd eru frá vinstri: Sindri Njáll Hafþórsson, sem snýr baki í okkur, en hann lék sköllóttan kennara, Hanna María Gylfadóttir, Kristinn Andri Hjálmtýsson, Ívar Gylfason, Friðvin Ingi Ernstsson, Hákon Unnar Þórarinsson, Ásþór Óðinn Egilsson og Anna Dúna Rúnarsdóttir?. Bak við gluggatjaldið er svo hvíslarinn Gunnlaug Gunnlaugsdóttir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 001
Gísli Snorrason á kunnuglegum slóðum að sinna viðhaldi í vélarúmi á togara, sennilega Örvari HU 21.
Höfðaskóli - safn 135
Hér eru Eva Rún Rúnarsdóttir til vinstri og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna Lilja Nótt Sævarsdóttir) til hægri í heimsókn í byggðasafni, sennilega að Reykjum í Hrútafirði.Myndin var tekin seint á 10. áratugnum.
Höfðaskóli - safn 253
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru nokkrir nemendur að flytja stuttan leikþátt sem gerist í skólastofunni. Almar Freyr Fannarsson situr við borðið og Tinna Björk Gunnarsdóttir stendur og hlustar á hann. Hinir tveir leikararnir eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 351
Þessi mynd var tekin 2. nóvember 1999 í Höfðaskóla af þeim Sonju Berndsen vinstra megin og Sóley Elsu Blöndal til hægri.
Höfðaskóli - safn 121
Erla María Lárusdóttir, formaður skólafélagsins Ránar, afhendir Magúsi B. Jónssyni sveitarstjóra skóflu til að taka fyrstu skóflustungu að íþróttahúsinu við skólaslit Höfðaskóla 31. maí 1996. Það gekk eftir og íþróttahúsið var vígt 1998.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 061
Gísli Snorrason til vinstri og Guðjón Árnason til hægri við kaffiborð.
Höfðaskóli - safn 275
Kennarar Höfðaskóla í tiltekt einhverntíma kringum 1985. Vilborg Magnúsdóttir vinstra megin og Inga Matthíasdóttir til hægri.
Sigurður Bjarnason - safn 046
Systkinin Sigurbjörg Agnes Sævarsdóttir og Guðbjartur Sævarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 621
Árni Geir Ingvarsson. Myndin var líklega tekin seint á sjöunda áratugnum. Skeifan í baksýn hægra megin við Árna og Höfðahólar vinstra megin við hann.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 038
Sævar Hjaltason ísar fisk í kassa á millidekkinu á Arnari Hu 1. Þegar myndin var tekin hefur fiskirí verið gott því almennt var ekki hafður fiskur á millidekkinu. E.t.v. var lestin orðin full ?
Höfðaskóli096
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1964 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Bergþór Gunnarsson, Karl Berndsen (d.28.1.2020), Sigurður Georgsson, Skafti Fanndal Jónasson, Vilhelm Jónsson, Sveinn Kristjánsson, Einar Karlsson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) og Hjalti Hólmar Indriðason. Miðröð frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Ólafur Halldór Bernódusson kennari, Kolbrún Viggósdóttir og Kristín Jónsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir og Anna Elínborg Gunnarsdóttir.
Höfðaskóli - safn 379
Nemendur Höfðaskóla við vinnu í skólanum. Frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefaánsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 606
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Þórarinn Brynjar Ingvarsson láta fara vel um sig í sólskinsbrekku. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 616
Konan vinstra megin á myndinni er óþekkt en hægra megin er Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986). Þær standa utan við Akur (Hólabraut 13) sem var heimili Þórunnar. Húsið sem sér í til vinstri eru Bergsstaðir sem nú eru horfnir.
Höfðaskóli - safn 166
<p>Krakkarnir á myndinni eru hreyknir af föndrinu sínu. Frá vinstri í aftari röð: Kristján Ýmir Hjartarson, Þórir Óskar Björnsson og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Karl Aron Bender, Laufey Inga Stefánsdóttir og Þórður Indriði Björnsson. </p>
Höfðaskóli - safn 260
Lárus Ægir Guðmundsson kennari við vinnu í Höfðaskóla. Bak við Lárus sér í Guðjón Örn Kristjánsson.
Höfðaskóli - safn 397
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs. Allir þurftu að mæta í einhverjum óvenjulegum búningi og svo var farið í ratleik um allan bæ og leystar hinnar ýmsu þrautir. Hér er hópurinn fyrir utan íþróttahúsið áður en lagt er af stað út í bæ að leysa þrautirnar. Frá vinstri í fremri röð: Sólveig Róarsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Sólrún Ólína Sigurðardóttir. Aftari röð frá vinstri: Helga Ólína Aradóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Finnur Magnús Gunnlaugsson (d. 31.12.2015), Dagbjört Bæringsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Fjóla Jónsdóttir og Hans Holger Jörgensen. myndi var tekin einhvertíma kringum árið 2000.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 062
Jóhannes Sveinsson til vinstri og Bergþór Gunnarsson til hægri við vinnu sína á Vélaverkstæði Karls Berndsen.
Minjasafn788
Birgir Árnason (d. 2.2.2005) Straumnesi á Skagaströnd sker hákarl til að setja hann síðan í kösina til kæsingar. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason 1994.
Höfðaskóli004
Nemendur fæddir 1996 fá afhentar einkunnir sína úr höndum Fjölnis Ásbjörnssonar við skólaslit Höfðaskóla, líklega 2005 eða 2006. Nemendurnir eru frá vinstri talið: Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Freyja Einarsdóttir, Bergrós Hafsteinsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir, Aron Snær Fannarsson, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Einar Ari Einarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Svandís Hallgrímsdóttir og Sigurlaug Máney Hafliðadóttir.
Höfðaskóli - safn 189
Stundum getur hávaðinn í skólanum orðið dálítið mikill og það er misjafnt hve vel fólki líkar það. Kristjáni Gunnari Guðmundssyni finnst greinilega hávaðinn of mikill því hann grípur fyrir eyrun og dregur sig út úr hópnum. Myndin var tekin á seinni hluta níunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 566
Fjár- og hesthús við Skagaveg, nú löngu horfin. Húsin stóðu ca 50 metar norðan við Sólheima. Skepnuhúsin átti Ingvi Guðnason (d. 31.12.1991) á þeim tíma sem algengt var að menn á Skagaströnd ættu nokkrar kindur "til heimilisins" og jafnvel tvo þrjá hesta sér til yndisauka.
Sigurður Bjarnason - safn 026
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 528
Þegar vélin bilar er gott að geta gripið til vöðvaaflsins til að koma sér í land. Á þessari mynd eru mágarnir Hjörtur Guðmundsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri róa í land með bilaðan utanborðsmótor á lítilli skektu í austan kælu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 577
Litla-Fell er nær okkur á myndinni og tilheyrir Sveitarfélaginu Skagaströnd. Lengra frá er Árbakki en hann tilheyrir Skagabyggð. Á milli bæjanna liggur Hrafná sem markar skilin á milli hreppanna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 618
Gunnar Sveinsson er sigurreifur með kappróðrarbikarinn í höndum á sjómanndegi. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Rúnar Ingvarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, ?Steinunn Berndsen?, Þórarinn Eiðsson (d. 14.6.2002), Hjördís Sigurðardóttir og Eiður Hilmarsson.
Höfðaskóli - safn 398
Hákon Unnar Þórarinsson sker út laufabrauð í matsal Höfðaskóla 26. nóvember 1998.
Höfðaskóli105
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1949 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Sigurjón Ástmarsson, Sigurjón Haraldsson og Árni Ólafur Sigurðsson. Miðröð frá vinstri: Sigríður Ágústsdóttir, Halldóra Ásmundsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Margrét Valdimarsdóttir og Jóhanna Hallgrímsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson, Ómar Jakobsson, Þorvaldur Skaftason, Steindór R. Haraldsson, Guðmundur J. Björnsson og Guðmundur Guðmundsson.
Höfðaskóli - safn 169
Á myndinni leiðbeinir Líney Jósefsdóttir þeim, Árný Guðrúnu Ólafsdóttur til vinstri og Ólínu Laufey Sveinsdóttur til hægri, við að strauja íslenska fánann í heimilisfræðitíma í Höfðaskóla.
Höfðaskóli - safn 281
Allt tilbúið fyrir 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999. Glæsilegar hnallþórur bíða gesta skólans og starfsfólkið hlakkar til afmælisins. Frá vinstri á myndinni: Dagný Úlfarsdóttir kennari, Aðalheiður Sif Árnadóttir kennari, Kamilla Hildur Gísladóttir kennari og Sigrún Guðmundsdóttir húsvörður og skólaliði.
Árni Geir Ingvarsson - safn 509
Selvík Hu 2 í höfninni á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 257
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er unnið að undirbúningi dagsins. Frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Jón Atli Magnússon, óþekktur, Ásþór Óðinn Egilsson, óþekktur, Gunnlaug Gunnlaugsdóttir stuðningsfulltrúi, Almar Freyr Fannarsson, Hanna María Gylfadóttir, Ragnar Már Björnsson, Brynja Hödd Ágústsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Höfðaskóli - safn 360
Sigríður Laufey Einarsdóttir kenndi í Höfðaskóla um tíma. Með henni á myndinni, sem var tekin einhverntíma kringum 1990, eru Guðjón Ebbi Guðjónsson (nær) og Gunnar Dór Karlsson (fjær). Aðrir eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 156
Þessi mynd var tekin í skólaferðalagi í Kaupmannahöfn á einu af torgum borgarinnar líklega vorið 1998. Maðurinn, sem er að mynda hópinn, er Ólafur Bernódusson kennari en krakkarnir eru frá vinstri: Jón Ingi Ragnarsson, sem er að ganga út úr myndinni, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Gunnar Helgason, Karen Peta Karlsdóttir, óþekktur, Adolf Þór Lúðvíksson, Gunnlaugur Briem, Marta Kristín Jónsdóttir, Sveinn Elvar Jóelsson, Rebekka Laufey Ólafsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 155
Þessir tveir ungu drengir, nemendur Höfðaskóla, tóku þátt í stærðfræðikeppni 9. bekkinga í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Keppnin fer þannig fram að undankeppni er haldin í 9. bekkjum í öllum grunnskólum á Norðurlandi vestra og síðan komast 15 bestu áfram í aðalkeppnina á Sauðárkróki. Strákarnir, Jón Gunnar Einarsson til vinstri og Eyþór Ernstsson til hægri, komust í aðalkeppnina og stóðu sig báðir vel þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Sigurður Bjarnason - safn 017
Anna Andrésdóttir (d. 4.9.1998) frá Röðli.
1
…
123
124
125
…
167
Leita í myndasafninu
Leita