Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 384
Hlustað og fylgst með í Höfðaskóla á einhverjum fundi. Frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, óþekkt, óþekkt, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Eiður Örn Þórsson og Jón Ólafur Sigurjónsson. Sennilega var myndin tekin kringum 1995. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 007
Myndin var líklega tekin á Hótel Íslandi einhverntíma kringum 1990. Þá bauð Hólanes hf starfsfólki sínu í helgarferð til Reykjavíkur og til skemmtunar og hátíðakvöldverðar á Hótel Íslandi. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Óli Axel Óskarsson, Björgvin Brynjólfsson, Vilborg Magnúsdóttir, Kristinn Guðmundsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Sólveig Róarsdóttir og Haraldur Árnason. Hægra megin við borðið, frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Charlotta Traustadóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Gunnar Sveinsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Hrefna Björnsdóttir og Gunnar Albertsson.
Fisk Seafood - safn 012
SH eða Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna átti 50 ára afmæli í febrúar 1992. Hólanes hf frystihúsið var eitt af félögunum í Sölumiðstöðinni. Í tilefni afmælisins bauð Hólanes hf starfsfólki sínu því til kaffisamsætis í kaffistofu frystihússins þar sem afhentar voru gjafir frá afmælisbarninu. Á myndinni er Lárus Ægir Guðmundsson framkvæmdastjóri Hólaness hf að afhenda Sigrúnu Benediktsdóttur pakkann sinn frá Sölumiðstöðinni. Fjóla Dögg Björnsdóttir fylgist forvitinn með. Myndina tók Ólafur Bernódusson.
Höfðaskóli - safn 256
<p>Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Þessi mynd var tekin af leikþætti þar sem sett var á svið dagur í skólanum. Fremst á myndinni sér aftan á Sindra Njál Hafþórsson. Hinir eru frá vinstri: Hanna María Gylfadóttir, ?Ívar Gylfason?, Ásþór Óðinn Egilsson, óþekkt, Kristinn Hjálmtýsson og Hákon Unnar Þórarinsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Fisk Seafood - safn 021
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á myndinni eru frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Rúnar Backman og Guðmundur Ólafsson.
Höfðaskóli - safn 225
Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri, Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir og Jóna María Guðrún Guðmundsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 032
Heyskapur við Syðra Hól. Á myndinni sést glöggt sú tækni sem notuð var við heyskap á sínum tíma þegar hesturinn var enn þarfasti þjónninn í sveitum landsins. Svona vélar, eins og sú á myndinni, gjörbreyttu heyskap til sveita sem fram að því hafði nánast eingöngu notast við orf, ljá og hrífur. Maðurinn á myndinni er líklega Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli)(d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 218
Á þessa mynd er skrifað: "Signý á Balaskarði með Björgu".
Árni Geir Ingvarsson - safn 636
Lækjarbakki er fyrir miðri mynd. Til vinstri eru fjárhús og hlaða sem tilheyrðu Lækjarbakka en eru nú horfin. Til hægri er braggi sem er horfinn en þar var m.a. rekið bílaverkstæði og var seinna slökkvistöð Skagastrandar.
Fisk Seafood - safn 127
Igvar Þór Jónsson við vinnu sína í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 060
Sigurjón Ingólfsson vinnur við rennibekkinn á Vélaverkstæði Karls Berndsen.
Höfðaskóli - safn 261
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á myndinni er þeir klárir til að taka þátt í týskusýningu, Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Ívar Kristberg Einarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 620
Hér eru þrjú systkini sem áttu heima á Bogabraut 16, frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Gréta Ingvarsdóttir. Á myndinni eru þau utan við Akur (Hólabraut 13). Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 511
Ragnar Ingvarsson smúlar dekkið um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54.
Höfðaskóli - safn 129
Skólabræður úr Höfðaskóla, Birkir Rúnar Jóhannsson til vinstri og Kristinn Daníel Guðmundsson til hægri. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 020
Hér vinna fjórir menn saman að því að endurskapa draumabílinn á Vélaverkstæði Skagastrandar. Frá vinstri: Bjarni Ottósson, Ari Þórsson, Indriði Hauksson og Hjalti Reynisson.
Fisk Seafood - safn 081
Þessi mynd var tekin af Haraldi Árnasyni verkstjóra til margra ára í frystihúsi Hólaness hf 22. júní 1991.
Höfðaskóli - safn 339
Auður Eva Guðmundsdóttir vinnur verkefni í Höfðaskóla líklega kringum 1990.
Sigurður Bjarnason - safn 047
Sævar Bjarnason frá Bjargi á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 546
Ólafur Magnússon Hu 54 nýskveraður og flottur í höfninni á Skagaströnd.
Fisk Seafood - safn 093
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Á þessari mynd má þekkja vinstra megin við ganginn: Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Hægra megin við ganginn: fremst: Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Í næstu sætum eru Lárus Ægir Guðmundsson og Anna H. Aspar (d.1.9.1999). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 355
Líklega eru stúlkurnar tvær á myndinni að undirbúa árshátíð Höfðaskóla eða einhverja aðra sýningu. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1990. Til vinstri er Karen Peta Karlsdóttir en til hægri er óþekkt stúlka (?Svava Magnúsdóttir?) . Ef þú þekkir stúlkuna til hægri vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 202
Þessi mynd var tekin á útivistardegi hjá Höfðaskóla einhverntíma kringum 1985. Gunnar Borg Jónsson reynir sig við að ganga eftir slá með því að nota tvo steina sem hann þarf að færa til skiptis og standa á. Vilborg Magnúsdóttir kennari og Þorlákur Sveinsson fylgjast með að farið sé að settum reglum.
Fisk Seafood - safn 053
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd eru nokkrir árshátíðargestir að spjalla. Við borðið fjær eru Viggó Brynjólfsson með gleraugu og Vilhelm Þórarinsson ásamt tveimur óþekktum konum. Vinstra megin við borðið nær okkur eru frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Sigvaldi Þorsteinsson og Kristín Mogesen. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Ómar Jakobsson (snýr baki í okkur), Gunnlaugur Sigmarsson, Steinunn Friðriksdóttir og tveir óþekktir menn.
Höfðaskóli - safn 187
Hér er kíkt inn í kennslustund í íþróttahúsinu einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Nemendurnir eru, frá vinstri: Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Elna Ragnarsdóttir, Andrea Kristjánsdóttir, óþekkt stúlka, Kristján Ýmir Hjartarson og Þórður Indriði Björnsson.
Höfðaskóli - safn 298
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Frá vinstri: Elvar Arinbjörn Grétarsson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Sverrir Berndsen, Birna Ágústsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir og Birkir Rafn Gíslason.
Fisk Seafood - safn 085
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Fjærst frá vinstri: Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Sólveig Eiðsdóttir, Kári Lárusson, Ólafur Bernódusson, Guðrún Pálsdóttir, Óskar Þórðarson með óþekkt barn, Rósa Jónsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Kristinn Guðmundsson, Erla Kristinsdóttir, Vilborg Magnúsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Jón Indriðason (fjærst), Svanur Árnason (í miðju), Halldór Gunnar Ólafsson (næst), Vilhelm Jónsson, Stefán Ægir Lárusson, Jón Heiðar Jónsson (fjær), óþekkt, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Hólmgeir Kristmundsson (fjær) og óþekkt (nær). Nær okkur, sitjandi, frá vinstri: Óþekkt barn, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) (fjær), Guðný Finnsdóttir (í miðið), óþekkt (næst),Hafdís Ásgeirsdóttir, Soffía Pétursdóttir, Bára Þorvaldsdóttir (fjær), Anna Guðrún Ásgeirsdóttir (nær), Edda Pálsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, Súsanna Þórhallsdóttir og óþekkt barn. Lengst til vinstri í hópnum sem er standandi er Hallgrímur Björgvinsson (d.10.8.2010) síðan koma frá vinstri: Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Þröstur Árnason, Óli Axel Óskarsson, Vilhjálmur Skaftason, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir,Kenny Hallbjörnsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (í hvítri peysu). Næst okkur á myndinni frá vinstri: óþekkt höfuð, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir, óþekkt, Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) og Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993).
Höfðaskóli - safn 126
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Á myndinni stilla börn fædd 1990 sér upp með kennara sínum Unni Kristjánsdóttur. Fremsta röð frá vinstri: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og óþekktur. Miðröð frá vinstri: Ívar Gylfason, Unnur kennari, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekkt, óþekktur, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Árnason og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftasta röð frá vinstri: Hákon Þórarinsson, Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon, Óðinn Örn Sævarsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 341
Þessir ungu menn, með verlaunapening um hálsinn, eru sennilega fótboltalið frá Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1998 -2000. Frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Friðvin Ingi Ernstsson, Ívar Gylfason, Sindri Njáll Hafþórsson, Kristján Freyr Sigurbjörnsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Albert Ingi Haraldsson og Eyþór Kári Egilsson.
María Magnúsdóttir - safn 084
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli til vinstri og Rannveig? til hægri. Ef þú veist föðurnafn Rannveigar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 289
Á myndinni er hluti starfsfólks Höfðaskóla í eldhúsi skólans. Líklega var myndin tekin í nóvember 1999 á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla. Frá vinstri: Dagný Úlfarsdóttir kennari, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Guðbjörg Ólafsdóttir kennari, Guðrún Soffía Pétursdóttir stuðningsfulltrúi og Unnur Kristjánsdóttir kennari.
Höfðaskóli - safn 236
Þessi mynd var tekin 1983 eða 1984 í tíma hjá fjórða bekk í Höfðaskóla. Við borðið nær okkur eru: óþekkt (?Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir?), Björn Sigurðsson til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson. Við borðið fjær eru frá vinstri: Ása Ósk Ásgeirsdóttir, óþekkt, Atli Þórsson, óþekkt og Reynir Lýðsson.
Höfðaskóli - safn 345
Þessi mynd var tekin af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum líklega árið 1984 eða 1985. Frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Ingunn Kristjánsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, fimm óþekktir, Jensína Lýðsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Baldvin Sveinsson, Þráinn Bessi Gunnarsson og Guðmundur Óskarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 552
Ernst Berndsen (nær) og Gísli Snorrason leika sér á hraðbát í höfninni á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 640
Þeir sem kunnugir eru á Skagaströnd munu sjá að bærinn hefur breyst töluvert frá því að þessi mynd var tekin, sennilega upp úr 1980. Sökkull er komin undir nýju kirkjuna en sú gamla stendur enn, bygging íþróttahússins er ekki hafin, Stóra-Berg stendur enn og sama má segja um Ásbyrgi, Drangey, Rjúpnafell og Sæborg (Góubærinn) en öll þessi hús eru nú horfin. Kántrýbær er eins og hann var fyrir bruna og endurbætur á Bjarmanesi eru ekki hafnar.
Höfðaskóli - safn 300
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Hér eru krakkarnir að útbúa sér nesti til dagsins. Vinstra megin við borðið eru frá vinstri: Bæring Skarphéðinsson, Sverrir Berndsen, Elva Dröfn Árnadóttir og Ásdís Lýðsdóttir. Hægra megin við borðið eru: Davíð Bragi Björgvinsson (næst), Guðjón Hall Sigurbjörnsson (í miðið) og Heiðrún Ósk Níelsdóttir (fjærst).
Fisk Seafood - safn 060
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er fjöldasöngur í gangi og mikið fjör. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Þorvaldur Skaftason með gítar, Guðbjörg Viggósdóttir, Lovísa Vattnes og Ástmar Kári Ástmarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 251
Þessi mynd var líklega tekin einhverntíma á árunum 1998 - 2000. Þetta góða fólk kom í heimsókn í Höfðaskóla á einhverjum opnum degi þar. Frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Lárus Ægir Guðmundsson og séra Guðmundur Karl Brynjarsson. María og Lárus voru bæði fyrrverandi kennarar við skólann og Guðmundur var sóknarprestur.
Höfðaskóli - safn 138
Þessi mynd, úr skólastofunni Hreiðrinu, var sennilega tekin á öskudegi einhverntíma kringum 1995. Frá vinstri: Erla María Lárusdóttir, óþekktur, Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Auður Eva Guðmundsdóttir og Ástmar Sigurjónsson. Ef þú veist hver óþekkti nemandinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 183
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs meðal annars með því að fara í ratleik um allan bæ og leysa hinar margvíslegustu þrautir. Ein þrautin var að fá lánaða hluti út í bæ til að geta síðan bakað pönnukökur í skólanum á eftir. Hér hefur einn hópurinn í ratleiknum bankað upp á að Oddagötu 5 til að fá eitthvað lánað. Frá vinstri: Sigrún Guðmundsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Jóhanna Karlsdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson, Hrefna Björnsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Jóhanna, Bessi og Hrefna eiga (áttu) heima á Oddagötu 5.
Höfðaskóli - safn 128
Hér er greinilega hópavinna í gangi í skólastofunni. Fremst til vinstri eru Birna Ágústsdóttir og Sigrún Líndal, sem er í appelsínugulum bol. Aftan við þær er Hallgrímur Axelsson. Strákurinn í hvíta bolnum er Bæring Skarphéðinsson en hann situr við borð með Birki Rafn Gíslasyni.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 068
Líklega var þessi mynd tekin á Strandgötu 10, heimili Karls Berndsen, í kaffiboði um jól fyrir starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur sennilega verið kringum 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Gísli Snorrason, Bergþór Gunnarsson, Vilhelm Björn Harðarson (snýr baki í okkur), Guðjón Árnason, Sigurjón Ingólfsson, Jóhannes Sveinsson og Karl Berndsen (d. 12.2.1995).
Höfðaskóli - safn 353
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru Leó Kristberg Einarsson og Eydís Inga Sigurjónsdóttir að æfa sig í að lesa eitthvað upp sem þau svo fluttu á afmælisdeginum sjálfum.
Höfðaskóli - safn 186
Laufey Inga Stefánsdóttir við skólavinnu í íþróttahúsinu. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003.
Árni Geir Ingvarsson - safn 603
1969 heiðraði sjómannadagsráð tvo gamalgróna Skagstrendinga þá Guðmund Pétursson (d. 30.6.1987) frá Höfðakoti til vinstri og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) úr Norður-Skála (upphaflega frá Brúarlandi) til hægri. Milli þeirra er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) úr Stórholti sem var kynnir sjómannadagsins 1969 og afhenti þeim félögum heiðurskrossana fyrir hönd sjómannadagsráðs.
Sigurður Bjarnason - safn 051
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Sigurður Bjarnason - safn 035
Tómas Gíslason sonur Önnu Bjarnadóttur frá Bjargi.
Höfðaskóli - safn 130
Birna Sæmundsdóttir. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 387
Líney Jósefsdóttir í Höfðaskóla þar sem hún kenndi um tíma. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 392
Einhverntíma á jólaföstunni hittist starfsfólk Höfðaskóla gjarnan og gerir saman laufabrauð. Þessi mynd var tekin við þetta tækifæri 2. desember árið 2000. Þarna fletja þau út kökurnar sínar Hans Holger Jörgensen og Ingibjörg Jónasdóttir sem bæði voru kennarar við skólann á þessum tíma.
Fisk Seafood - safn 075
15. maí 1990 hlaut starfsfólk frystihúss Hólaness hf viðurkenningu fyrir vandaða framleiðslu frá Coldwater Seafood, sem keypti vörur frá frystihúsinu og dreifði þeim erlendis. Á þessari mynd er starfsfólkið að fylgjast með ræðuhöldum áður en Jóhanna Jónasdóttir tók við viðurkenningunni fyrir þeirra hönd. Frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Úrsúla Kristjánsdóttir (næst), Fjóla Jónsdóttir (í miðið), Guðmundur Ólafsson (fjærst), Ingibjörg Skúladóttir, óþekktur, Súsanna Þórhallsdóttir, Þórunn Þorláksdóttir (fjær), Sólveig Róarsdóttir (nær), óþekkt barn, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Málfríður Jóhannsdóttir (nær) og Erna Högnadóttir (fjær).
Höfðaskóli - safn 241
Nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku vorið 2001. Frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir (nær), Eva Dögg Bergþórsdóttir (fjær), Hörður Aðils Vilhelmsson, Guðrún Hjáltýsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Eiður Bjarki Þórarinsson, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen (nær), Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir) (fjær), Ragnar Einarsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir (nær), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir (fjær), Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir (næst), Stefán Agnar Gunnarsson (í miðju), Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir (fjærst), óþekkt, Pétur Jensen (nær) og Birkir Rúnar Jóhannsson (fjær). Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 094
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Vinstra megin við ganginn eru, talið framan frá: óþekkt kona, Gunnar Sveinsson, Bára Þorvaldsdóttir, Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) og Magnús Blöndal (d.7.9.2001). Hægra megin við ganginn, talið framan frá: Gylfi Sigurðsson (snýr baki í okkur), María Magnúsdóttir (d. feb. 2016), Hjördís Sigurðardóttir, Adolf J. Berndsen, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Kristófer Árnason (d.10.5.2000), Friðbjörg Oddsdóttir og Karl Guðmundsson (d.11.12.2011).
Fisk Seafood - safn 236
Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og seinna skipstjóri á skipum Skgatrendings hf. Þessi mynd af honum var tekin í hans fyrsta túr sem skipstjóri á Örvari Hu 14 árið 1971. <font size="1">Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Höfðaskóli - safn 288
Efnt var til spurningakeppni í Höfðaskóla milli elstu bekkja skólans einhverntíma kringum 1990. Þessi mynd er af einu keppnisliðinu þ.e. nemendur fæddir 1978. Frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Þóra Ágústsdóttir og Sigurður Berndsen. Lukkudýr bekkjarins er á borðinu hjá liðinu.
Fisk Seafood - safn 229
Högni Jensson var kokkur á skipum Skagstrendings hf í allmörg ár. Hér er hann á kunnuglegum slóðum við pottana.<font size="1"> Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.</font>
Fisk Seafood - safn 059
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er fjöldasöngur í gangi og mikið fjör. Frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Sigmar Jóhannesson (d.2.4.2000), Helga Guðmundsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Lárus Ægir Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 329
Kaffitími á kennarastofunni í Höfðaskóla. Frá vinstri eru kennararnir: Ólafur Bernódusson, Sigríður Stefánsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Reynir Grímsson. Myndin var tekin á tíunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn 149
Sandkastalakeppni nemenda Höfðaskóla í fjörunni við Sandlækinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 213
<p>Þrír starfsmenn Höfðaskóla láta fara vel um sig í skólanum þegar næði gafst. Frá vinstri: Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) ræstitæknir, Elínóra Rafnsdóttir kennari, með dóttur sína í fanginu, og Jóhanna Jónsdóttir kennari með dóttur sína, Lindu Hafdal, í fanginu.</p>
1
…
125
126
127
…
167
Leita í myndasafninu
Leita