Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 229
Högni Jensson var kokkur á skipum Skagstrendings hf í allmörg ár. Hér er hann á kunnuglegum slóðum við pottana. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Höfðaskóli - safn 149
Sandkastalakeppni nemenda Höfðaskóla í fjörunni við Sandlækinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1996. Á myndinni eru frá vinstri: Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Sonja Hjördís Berndsen, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 213

Þrír starfsmenn Höfðaskóla láta fara vel um sig í skólanum þegar næði gafst. Frá vinstri: Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) ræstitæknir, Elínóra Rafnsdóttir kennari, með dóttur sína í fanginu, og Jóhanna Jónsdóttir kennari með dóttur sína, Lindu Hafdal, í fanginu.

Árni Geir Ingvarsson - safn 597
Á myndinni eru frá vinstri: Rúnar Ingvarsson, Sveinn S. Ingólfsson og Sigurður S. Bjarnason. Hér sitja þeir í besta yfirlæti utan við Staðarskála eins og hann var upphaflega. Líklega hafa þeir félagar verið í einhvers konar skólaferð því Sveinn var kennari á Skagaströnd um árabil. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 286
Efnt var til spurningakeppni í Höfðaskóla milli elstu bekkja skólans einhverntíma kringum 1990. Á þessari mynd er lið eins bekkjarins þ.e. nemenda fæddra 1975. Frá vinstri: Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), Jóhannes Óskarsson og Svanur Árnason. Á borðinu hjá þeim er lukkudýr bekkjarins. .
Fisk Seafood - safn 042

Fólkið á þessari mynd var starfsfólk Hólaness hf meðan þar störfuðu kringum 40 manns við fiskvinnslu. Fólkið sat námskeið á vegum fyrirtækisins 1987 og útskrifaðist 3. júní það ár og hlaut eftir það starfsheitið: Sérhæfður fiskvinnslumaður. Hólanes hf hélt sínu fólki kaffisamsæti við lok námskeiðsins og öllum voru afhent skírteini og blóm í tilefni dagsins. Frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Sólveig Róarsdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Guðbjartur Sævarsson, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Anna ? ( Bakka í Skagahreppi), Rúnar Jóhannsson er á bakvið Önnu, Fjóla Jónsdóttir, Magnús Guðmannsson, Guðrún Magnúsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Gunnar Stefánsson, Soffía Pétursdóttir, Arnar Arnarsson, Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), Amy Eymundsdóttir (d. 7.3.2012), Þórunn Þorláksdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Matthildur Jónsdóttir (d. 5.6.2015), Þorgeir Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Erna Högnadóttir, Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) og Erna Sigurbjörnsdóttir. Myndin var tekin í kaffistofu Hólaness hf.

Árni Geir Ingvarsson - safn 608
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Árni Geir Ingvarsson fyrir utan Akur þar sem amma þeirra, Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) bjó. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.
Höfðaskóli - safn 320
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd er Sara Rut Fannarsdóttir, þá sex ára gömul, að leika kennslukonu í leikþætti sem sýndur var þennan dag í skólanum.
María Magnúsdóttir - safn 115
Helgi Jónsson (d. 23.2.1985) frá Engihlíð.
Höfðaskóli - safn 184
Ingibergur Guðmundsson skólastjóri Höfðaskóla 1991 - 2005. Myndin var tekin í íþróttahúsinu sem var vígt 1998.
Fisk Seafood - safn 240
Áhöfn Arnars Hu 1 í sínu fínasta á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fremri röð frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gunnar Jón Jónsson, Sævar Rafn Hallgrímsson, Magnús Sigurðsson, Bergþór Gunnarsson, Guðjón Guðjónsson og Ragnar Högnason. Aftari röð frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Rúnar Jósefsson, Jón Helgason (d.1.12.2019), Högni Jensson, Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004), Árni Ólafur Sigurðsson, Eiður Hilmarsson, Hafþór Smári Gylfason, Guðjón Ebbi Sigtryggsson, Finnur Kristinsson, Birgir Þórbjarnarson og Ólafur Ingibergsson. Myndin er úr bæklingnum: "Skagstrendingur hf 1968 - 2000 í máli og myndum" og er þess vegna mjög grófkornótt.
Fisk Seafood - safn 024
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á þessari mynd ávarpar Lárus Ægir Guðmundsson framkvæmdastjóri Hólaness starfsfólk sitt og gesti í veislunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 548
Karlarnir um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 fá smá pásu meðan stímt er að næstu trossu. Maðurinn í lúkarskappanum er Stefán Kristinsson (d. 19.5.2011) en hinir eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 064
Sigursveit Hólanes - kvenna í kappróðri á sjómannadegi 4. júní 1989. Frá vinstri: Þorvaldur Skaftason stýrimaður, Jensína Lýðsdóttir, Katrín Sigurjónsdóttir, Linda Krsitjánsdóttir, Drífa Kristjánsdóttir, Erna Magnúsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Höfðaskóli - safn 297
Þessir nemendur Höfðaskóla tóku sig til og söfnuðu peningum fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. Peningana afhentu þau síðan sóknarprestinum séra Agli Hallgrímssyni (d.9.6.2021) sem þjónaði á Skagaströnd 1991 - 1997. Á myndinni er frá vinstri: Davíð Björgvinsson, Ásdís Lýðsdóttir (nær), Ragna Magnúsdóttir (fjær), Sveinþór Ari Arason (fjær), Þóra Lísebet Gestsdóttir (nær), Karen Peta Karlsdóttir (nær), Andri Ómarsson (fjær), Bæring Skarphéðinsson, Elva Dröfn Árnadóttir (nær), séra Egill (fjær), Ólafur Guðmundsson (fjær), Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir (nær), Hafsteinn Auðunn Björnsson (fremst), Sigrún Líndal Þrastardóttir (næst fremst), Birna Ágústsdóttir (næst aftast), Unnur Kristjánsdóttir kennari (aftast), Elvar Arinbjörn Grétarsson, Magnús Hallgrímsson (fjær) og Heiðrún Ósk Níelsdóttir (nær). Myndina tók Ólafur Bernódusson einhverntíma á árunum 1991 - 1993.
Höfðaskóli - safn 224
Myndin var tekin í heimilisfræðitíma í eldhúsinu í Höfðaskóla í nóvemberlok 1998. Líklega er verið að steikja laufabrauð. Á myndinni eru frá vinstri: Leó Kristberg Einarsson, Guðbjörg Ólafsdóttir kennari, Guðni Már Lýðsson, Árni Halldór Eðvarðsson og Jón Ingi Ragnarsson.
Fisk Seafood - safn 186
Í allmörg ár unnu þessir karlar hin ýmsu störf hjá Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Þórarinn Grétarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Gylfi Sigurðsson og Vilhjálmur Skaftason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 361
Nemendurnir eru mis alvarlegir á fundi í Höfðaskóla með kennara. Ef miðað er við bækurnar á borðunum er umræðuefnið landafræði. Myndin var sennilega tekin einhverntíma 1993 - 1995. Frá vinstri: Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Hjörtur Jónas Guðmundsson, Linda Hafdal, Auður Eva Guðmundsdóttir (við borðið), Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Gunnar Helgason, Magnús Filip Sævarsson og Guðrún Ásta Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 201
Þessi mynd var tekin í eldhúsinu í Höfðaskóla einhverntíma 1978- 1980. Frá vinstri: María Jóna Gunnarsdóttir, óþekkt, Guðrún Elsa Helgadóttir, Gunnar Borg Jónsson?, óþekktur, Gunnar Tryggvi Ómarsson og Gunnar Dór Karlsson.
Höfðaskóli - safn 196
Í svokallaðri Vinnuviku, sem haldin var í Höfðaskóla annað hvert ár, var hefðbundið skólastarf lagt til hliðar og nemendurnir fengu önnur verkefni til að fást við. Á þessari mynd, sem tekin var í einni slíkri viku á níunda áratugnum, er Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir að vinna við skólaútvarpið sem rekið var þessa viku. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 162
Skúli Már Matthíasson flokkar sorp í eldhúsinu í Höfðaskóla einhverntíma upp úr 1990.
María Magnúsdóttir - safn 039
Aftan á þessari mynd stendur: Helga Ragnheiður Gunnlaugsdóttir 13 ára 1972.
Árni Geir Ingvarsson - safn 642
Myndin var tekin á sjómannadegi þar sem róðrarsveit er að róa til baka að upphafsmarki að kappróðri loknum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. í baksýn má m.a. sjá mjölrörið sem tengdi síldarverksmiðjuna og mjölskemmuna saman. Mjölið sem varð til í verksmiðjunni var sogað/blásið eftir rörinu og fór í síló í skemmunni og var sekkjað þar í 50 kílóa poka. Eins og sjá má var rörinu haldið á lofti með þremur möstrum, sem vinsælt var meðal ungra ofurhuga að klifra í, þó það væri stranglega bannað vegna slysahættu. Miðjumastrið stendur mjög nálægt þeim stað þar sem hafnarvogin er í dag.
Árni Geir Ingvarsson - safn 556
Ólafur Bernódusson dregur hér grásleppunet á bát sínum, Balda, á veiðsvæði sunnan við Skagaströnd. Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum.
Fisk Seafood - safn 036
Ný flæðilína var tekin í notkun í frystihúsi Hólaness hf 13. janúar 1989. Þá var þessi mynd tekin af nokkrum starfsstúlkum fyrirtækisins. Lengst til vinstri eru Jóhanna Jónasdóttir og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999). Næst okkur er Guðrún Magnúsdóttir og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Höfðaskóli - safn 377
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd syngja og spila hópur nemenda fyrir gesti. Frá vinstri: Ólína Selma Þórarinsdóttir, Ómar Ísak Hjartarson, Hörður Aðils Vilhelmsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir), Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn 113
Myndin sýnir nemendur Höfðaskóla reyna sig í þrautabraut sem komið var upp á skólalóðinni í vinnuviku skólans um miðjan 10. áratuginn. Á myndinni er Hafþór Freyr Sigmundsson kennari að skrá keppendur sem eiga að komast ákveðna vegalengd eftir kaðalbrautinni sem sést á myndinni. Í brautinni er Marta Kristín Jónsdóttir en í biðröðinni eru frá hægri: María Markovic, Guðrún Ásta Guðmundsdóttir, Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, Magnús Filip Sævarsson og aftast, með bláa húfu, er Jón Ingi Ragnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
María Magnúsdóttir - safn 052
Þessi prúðbúna kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 329
Kaffitími á kennarastofunni í Höfðaskóla. Frá vinstri eru kennararnir: Ólafur Bernódusson, Sigríður Stefánsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Reynir Grímsson. Myndin var tekin á tíunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn 126
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Á myndinni stilla börn fædd 1990 sér upp með kennara sínum Unni Kristjánsdóttur. Fremsta röð frá vinstri: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og óþekktur. Miðröð frá vinstri: Ívar Gylfason, Unnur kennari, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekkt, óþekktur, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Árnason og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftasta röð frá vinstri: Hákon Þórarinsson, Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon, Óðinn Örn Sævarsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 341
Þessir ungu menn, með verlaunapening um hálsinn, eru sennilega fótboltalið frá Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1998 -2000. Frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Friðvin Ingi Ernstsson, Ívar Gylfason, Sindri Njáll Hafþórsson, Kristján Freyr Sigurbjörnsson, Sigurgeir Snævar Árnason, Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Albert Ingi Haraldsson og Eyþór Kári Egilsson.
Höfðaskóli - safn 168
Tóbaksvarnaráð hélt samkeppni í nokkur ár meðal 8. bekkinga á landinu um besta áróðurefnið gegn tóbaksreykingum. 8. bekkir Höfðaskóla sigruðu tvisvar í þessari keppni en verðlaunin voru vikuferð til Danmerkur. Þessir nemendur sigruðu árið 2001 með áróðursspjöldum og bæklingi sem borinn var í hús á Skagaströnd. Krakkarnir fóru síðan í skemmtilega ferð til Danmerkur í framhaldinu. Á þessari mynd eru krakkarnir að kynna framlag sitt til keppninnar í Samkaupum og reka áróður gegn reykingum í leiðinni. Frá vinstri: Ásdís Adda Ólafsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir (situr), Björn Viðar Jóhannsson (með rauða húfu), Eyþór Kári Egilsson (með bláa húfu), Friðvin Ingi Ernstsson, Kristinn Andri Hjálmtýsson, Hanna Rúna Gestsdóttir, Albert Ingi Haraldsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir (með gula húfu), Katrín Inga Hólmsteinsdóttir og Rósa Björg Einarsdóttir (í hvítri úlpu).
Fisk Seafood - safn 020
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á þessari mynd er fólk að streyma í salinn til að njóta veitinga. Frá hægri á myndinni eru: Sylvía Hrólfsdóttir, Elísabet Kristjánsdóttir (d. 21.3.1991), Gunnar Helgason (d.19.10.2007), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Anna H. Aspar (d.1.9.1999), þrjár óþekktar konur, Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992), óþekkt, Guðmundur Guðmundsson, óþekktur og Rúnar Loftsson. Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003) situr við borð í brúnleitum jakka og lengra frá sitja þeir saman við borð (frá vinstri) Gylfi Sigurðsson, Gunnar Sveinsson og Adolf J. Berndsen. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 576

Í bókinni: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908-2010, eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um þetta skip: " Ísberg. Þetta var 350 tonna flutningaskip sem keypt var frá Noregi 1983 og var í eigu félagsins Ok h/f en í því átti Skagstrendingur h/f um fjórðungshlut. Skipið sökk í fyrstu ferð sinni en mannbjörg varð". Myndina tók Árni Geir Ingvarsson þegar verið var að lesta skipið í Skagastrandarhöfn fyrir síðustu för þess. Dagblaðið DV sagði frá sjóslysinu á eftirfarandi hátt 2. maí 1983:

"Mannbjörg varð er nýasta skip íslenska kaupskipaflotans, Isberg IS,
sökk eftir árekstur um 70 sjómílur
austur af Grimsby síðdegis á laugardag.

Atburðurinn átti sér stað um
klukkan 4 að íslenskum tíma. Þýskt
flutningaskip, Tilla, keyrði inn í Isberg
á miðju skipi bakborðsmegin. Isberg
fór á hliðina á nokkrum mínútum og
var sokkið eftir tæpa klukkustund.
Skipverjarnir fimm komust í björgunarbát
og var bjargað upp í þýska
skipið, sem var tiltölulega lítið laskað.
Skipverjar voru fluttir til Grimsby og
komu síðan til landsins í nótt.
Skipstjóri á Isberg var Jón Steinar
Árnason. Að hans sögn var mikil þoka
yfir þegar atburðurinn átti sér stað og
skyggni aðeins um 300 metrar. Áreksturinn
gerðist mjög snöggt, en skipstjóri
Isbergs hafði þó séð hvað verða
vildi. „Við vorum byrjaðir að beygja
og reyna að forða okkur og síðan
stoppuðum við og gáfum þokumerki.
Eg prófaði að kalla til þeirra á örbylgjustöð
en það gekk ekkert og næsta
skref var bara að forða sér því skipið
var oltið. Það lagðist á hliðina á 3 til 5
mínútum enda fór þýska skipið alla
leið inn í lest," sagði skipstjórinn, er
DV ræddi við hann við heimkomuna í
nótt.
Isberg er 360 tonna frystiskip sem
var keypt frá Noregi og kom fyrst til
landsins fyrir tíu dögum. Það var
byggt árið 1972 og því 11 ára gamalt.
Eigandi þess var OK h/f á Isafirði.
Þetta var fyrsta f
Höfðaskóli - safn 376
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Eitt af atriðunum sem sýnd voru var dans nokkurra stúlkna. Á myndinni er hluti þeirra. Frá vinstri: óþekkt, María Guðrún Guðmundsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir, Anna María Magnúsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 057
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd eru Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) til vinstri og Þorgeir Jónsson til hægri glaðir í lund.
Höfðaskóli - safn 165
Aðalheiður Sif Árnadóttir kennari í jólastuði í Kántrýbæ þegar starfsfólk Höfðaskóla kom þar saman til að fá sér að borða. Allir urðu að klæða sig upp í einhverja óvenjulega búninga til að fá að vera með. Myndin var tekin 27.maí 2000.
Höfðaskóli - safn 125
Myndin var tekin í heimsókn yngri nemenda Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Allir verða að vera með hjálma í heimsókninni eins og sjá má. Fjær eru frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir og Katrín Björk Guðmundsdóttir. Nær okkur frá vinstri: Brynja Ágústsdóttir og Ástrós Villa Vilhelmsdóttir.
Höfðaskóli - safn 152
Nemendur fæddir 1982 í stærðfræðitíma í Höfðaskóla líklega 1997 eða 1998. Aftasta röð frá vinstri: Þóra Lísebet Gestsdóttir, Geirþrúður Guðmundsdóttir og Karen Peta Karlsdóttir. Miðröð frá vinstri: Ásdís Lýðsdóttir, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Ólafur Guðmundsson. Fremsta röð frá vinstri: Sveinn Elvar Jóelsson og Magnús Árni Hallgrímsson.
Fisk Seafood - safn 164

Skipstjórarnir á Arnari Hu 1 Guðjón Guðjónsson (Jonni) og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri baksa hér við að opna kampavínsflöskur til að skála við áhafnir sínar. Myndin var tekin 23. desember 1999 í tilefni þess að þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð króna.Gárungarnir sögðu við þetta tækifæri að þeir félagar væru miklu færari í að fiska en að ná tappa úr kampavínsflösku. Hjá þeim félögum á myndinni er sonur Guðjóns, Kristján Pétur Guðjónsson.

Höfðaskóli - safn 133

Ekki er vitað hvenær né hvar þessi mynd var tekin en það liggur greinilega vel á þeim vinkonunum Guðrúnu Hjálmtýsdóttur til vinstri og Önnu Maríu Magnúsdóttiur til hægri.

María Magnúsdóttir - safn 289
Feðginin Fjóla Jónsdóttir og Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi (Bogabraut 24). Myndin var líklega tekin vegna fermingar Fjólu vorið 1961.
Höfðaskóli - safn 200
Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari aðstoðar, frá vinstri: Björn Sigurðsson, Árný Elfu Helgadóttur og Svövu Magnúsdóttur við einhverja skólavinnu í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 524
Helga Hermannsdóttir brýtur kampavínsflösku á stefni Bjargar Hu 40 og gefur henni nafnið um leið. Björg Hu 40 var smíðuð í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf fyrir feðginin Jakob Guðmundsson og Þórhildi Jakobsdóttur á Árbakka í Skagabyggð. Helga er eiginkona Jakobs og móðir Þórhildar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 514
Sigurbjörn Björgvinsson, lengst til hægri, býr sig undir að prófa að fara í sjóinn í flot-björgunarbúningi. Í slíkum búningi fljóta menn og á þeim er belti sem nota má til að hífa viðkomandi upp í þyrlu ef þarf. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er Ragnar Högnason en sá sem hann er að tala við er Axel Jóhann Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn 243
Þessar þrjár vinkonur úr Höfðaskóla hvílast og fá sér nammi í skólaferðalagi í Danmörku 2001. Fremst er Tinna Björk Gunnarsdóttir en aftan við hana er Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Anna Dúna Rúnarsdóttir til hægri
Höfðaskóli - safn 287
Efnt var til spurningakeppni í Höfðaskóla milli elstu bekkja skólans einhverntíma kringum 1990. Á þessari mynd fer Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010) með gamanmál í hléi. Bakvið sitja spyrill og dómari keppninnar kennararnir Sigríður Einarsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Fisk Seafood - safn 073
Hér tekur Jóhanna Jónasdóttir, elsti starfsmaður Hólaness hf, við viðurkenningu fyrir hönd starfsfólks frystihússins. Viðurkenninguna hlaut frystihúsið frá Coldwater Seafood fyrir vandaða framleiðsu á vörum til Coldwater. Það var Páll Pétursson gæðastjóri hjá Coldwater Seafood sem afhenti viðurkenninguna þann 15. maí 1990.
Höfðaskóli - safn 393
Sigrún Guðmundsdóttir var húsvörður og skólaliði við Höfðaskóla í allmörg ár. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 619
Óþekktur bátur á handfæraveiðum fyrir tíma rafknúinna færarúlla. Karlarnir um borð eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 045
Þessi hópur starfsfólks Hólaness hf útskrifaðist 15. desember 1988 sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Fremri röð frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Jón Indriðason, Sveinn Jónasson, Jónas Jónasson, Hjalti Indriðason, Guðrún Ágústsdóttir og Kristín Birna Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 601
Árni Geir Ingvarsson með bítlahár á unglingsaldri upp úr 1975.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 033
Þessi mynd var tekin á dekkinu á Arnari Hu 1. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, Magnús Hjaltason (d. 16.6.2014), Guðmundur Guðmundsson og óþekktur. Ef grannt er skoðað sést að þeir félagar hafa nýlokið við að skera hákarl í beitur sem er næst okkur á myndinni.
Höfðaskóli - safn 294
Páll Leó Jónsson skólastjóri Höfðaskóla 1986 - 1991. Myndin var tekin vorið 1987.
Höfðaskóli - safn 319
Krakkar úr Höfðaskóla í heita pottinum í sundlauginni á Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin einhverntíma á árunum 1993 - 1996. Frá vinstri: Gunnar Helgason, óþekktur, Sveinþór Ari Arason, tveir óþekktir, Ólafur Guðmundsson, óþekktur, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Magnús Líndal Þrastarson, óþekktur, Magnús Filip Sævarsson (nær), Þóra Lísebet Getsdóttir (fjær), Karen Peta Karlsdóttir, Marta Kristín Jónsdóttir (fjærst), María Markovic (í miðið), Eyþór Ernstsson (næst), Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir og Elva Mjöll Þórsdóttir.
Höfðaskóli - safn 143

Beðið eftir litlu jólunum í Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1997 - 1999. Vinstra megin við borðir eru, talið inn eftir borðinu: Patrik Snær Bjarnason, óþekkt, Kristján Heiðmar Kristjánsson, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Eyþór Vilhjálmsson og Sævar Hlynur Tryggvason?. Hægra megin við borðið: Jóhann Örn Stefánsson, Gunnar Már Sæmundsson, Elna Ragnarsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Guðjón Arason og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Höfðaskóli - safn 334
Þessar stúlkur taka þátt í morgunsöng á sal í Höfðaskóla 1988 eða 1989. Frá vinstri: óþekkt, Ása Ósk Ásgeirsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 033
13. janúar 1989 var tekin í notkun ný flæðilína í frystihúsi Hólaness hf og þá var þessi mynd tekin. Konurnar við bandið höfðu margar langa starfsreynslu en þær eru frá vinstri: Jóhann Jónasdóttir, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999), Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (Stella) (d.8.12.2003) og Ingibjörg Skúladóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 598
Réttað í Spákonufellsrétt. Hér á árum áður, allt fram á níunda áratuginn, var fjáreign almenn á Skagaströnd og allt að 3000 fjár í Höfðahreppi. í dag má telja kindurnar í sveitarfélaginu í tugum en ekki þúsundum eins og þá. Konan fremst á myndinni, í köflóttri skyrtu með skuplu á höfði, er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Stúlkan í grænu peysunni er líklega Ragnheiður Sigurjónsdóttir frá Sunnuhlíð og Anna Bára Sigurjónsdóttir, systir hennar, með henni með ljósa skuplu yfir hárinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 117
Kristín Ólafsdóttir kennari afhendir nemendum sínum einkunnir vetrarins á skólaslitum 31. maí 1996 í Höfðaskóla. Nemendurnir eru frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Þórunn Júlía Guðmundsdóttir, ?Heiða Berglind Fannarsdóttir?, Stefán Agnar Gunnarsson, Tinna Gunnarsdóttir, Kristinn Daníel Guðmundsson, tvö óþekkt, Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Anna María Magnúsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1

126
127
128

167
Leita í myndasafninu
Leita