Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn 228
Krakkarnir í heimilisfræði útbjuggu jólaveislu fyrir sjálf sig og skólastjórnendur Höfðaskóla í lok nóvember 1998. Lögðu þau fallega á borð og skreyttu það og báru síðan fram veislumatinn eftir kúnstarinnar reglum. Á myndinni eru frá vinstri: Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, Leó Kristberg Einarsson,óþekktur, Vignir Örn Hafþórsson og hægra megin við borðið sér aftan á Hákon Unnar Þórarinsson.
Fisk Seafood - safn 050
<p>15. desember 1988 útskrifaðist hópur af starfsfólki Hólaness hf sem sérhæft fiskvinnslufólk. Í tilefni dagsins bauð fyrirtækið til kaffiveislu í kaffistofu félagsins. Þessi mynd var tekin í veislunni af hluta fólksins sem þar mætti. Frá vinstri: óþekkt, Sævar Bjarnason, formaður Verkalýðsfélags Skagastrandar á þessum tíma, Kristinn Guðmundsson og Sveinn Jónasson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Höfðaskóli - safn 150
Sandkastalakeppni nemenda Höfðaskóla í fjörunni við Sandlækinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1996. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna Lilja Nótt Sævarsdóttir) krýpur, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Ingbjörg Axelma Axelsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Alma Eik Sævarsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir.
Höfðaskóli - safn 131
Bekkjarsysturnar Eva Dögg Bergþórsdóttir til vinsri og Anna Dúna Rúnarsdóttir til hægri. Myndin var tekin seinni hluta 10. áratugarins.
Höfðaskóli - safn 199
Jón Örn Stefánsson vinstra megin og Hildur Inga Rúnarsdóttir hægra megin vinna við að mála í smíðastofunni í Höfðaskóla í vinnuviku. Eftir málun var svo smíðað einhvers konar leiktæki úr timbrinu. Að sjálfsögðu eru þau klædd viðeigandi hlífðarfötum - svörtum ruslapokum. Í dag er Jón Örn sjómaður og fiskeldisfræðingur en Hildur Inga er prestur í Þingeyrarprestakalli við Dýrafjörð. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1985.
Höfðaskóli - safn 395
Dagbjört Bæringsdóttir var skólaliði við Höfðaskóla í allmörg ár. Til hægri á myndinni sér í Sigrúnu Guðmundsdóttir húsvörð og skólaliða við skólann.
Fisk Seafood - safn 148
<p>Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, afhendir Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, hjónunum June og Dennis Lumbard, eigendum Norbrit, steinskjöld með ágrafinni mynd af Örvari Hu 21 með Spákonufellið í baksýn sem þakklætisvott fyrir löng og góð viðskipti. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum áhafnarmeðlimum Örvars persónulegan viðurkenningarskjöld fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin. </p><p><br></p>
Fisk Seafood - safn 145
Sambýlisfólkið Jón Gunnarsson og Ingibjörg Kristinsdóttir í mat á hótel Dagsbrún. Ingibjörg vann á hæðinni ofan við hótelið á skrifstofum Hólaness hf og Skagstrendings hf en Jón vann á netagerðaverkstæði Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var.
Höfðaskóli - safn 259
Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á þessari mynd eru nokkrir nemendur að bíða eftir að röðin komi að þeirra atriði. Frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Katrín Inga Hólsteinsdóttir , Ásdís Adda Ólafsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Arís Eva Vilhelmsdóttir og Kristján Pétur Guðjónsson.
Fisk Seafood - safn 031
Hér vinna konurnar í vinnslusal frystihúss Hólaness hf við nýja flæðilínu. Línan var tekin í notkun 13. janúar 1989 og þá var þessi mynd tekin. Vinstra megin við línuna eru frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, óþekkt, Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) , Katrín Sigurjónsdóttir (Stella) (d. 8.12.2003) og óþekkt. Hægra megin við bandið er Þórunn Þorláksdóttir næst okkur en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Vélaverkstæði Skagastrandar - safn 022
Hér slappa af um borð í togara Skagstrendings hf, þeir Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) til vinstri og Ernst Berndsen til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 109
Hafþór Freyr Sigmundsson kennari við vinnu sína í Höfðaskóla. Hafþór kenndi á Höfðaskóla í nokkur ár á tíunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn 338
Guðbjörg Kristmundsdóttir til vinstri og Hugrún Lind Pálsdóttir til hægri vinna að verkefnum sínum í Höfðaskóla. Líklega hefur myndin verið tekin kringum 1986.
Höfðaskóli - safn 393
Sigrún Guðmundsdóttir var húsvörður og skólaliði við Höfðaskóla í allmörg ár. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 619
Óþekktur bátur á handfæraveiðum fyrir tíma rafknúinna færarúlla. Karlarnir um borð eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 045
Þessi hópur starfsfólks Hólaness hf útskrifaðist 15. desember 1988 sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Fremri röð frá vinstri: Málfríður Jóhannsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Jón Indriðason, Sveinn Jónasson, Jónas Jónasson, Hjalti Indriðason, Guðrún Ágústsdóttir og Kristín Birna Guðmundsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 019
Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) við vinnu í Rækjuvinnslunni hf. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Höfðaskóli - safn 244
Brugðið á leik í Roskilde. Krakkarnir úr Höfðaskóla fóru í skólaferðalag til Danmerkur 2001 og komu meðal annars við í Roskilde. Á þessari mynd bregða þau á leik meðan beðið var eftir rútu til að flytja þau á næsta stað. Í neðstu röðinni eru, frá vinstri: Hörður Aðils Vilhelmsson, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (Lilja Nótt Sævarsdóttir). Í miðröðinni frá vinstri: Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Efst er svo Anna María Magnúsdóttir og stúlkan til hægri er Anna Dúna Rúnarsdóttir en strákurinn á bak við hópinn er óþekktur.
Höfðaskóli - safn 284
Anna Dúna Rúnarsdóttir glósar og Tinna Björk Gunnarsdóttir les ástarsögu í hlutverkum sínum í leikþætti um skólann í gamla daga á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Fisk Seafood - safn 088
Pétur Eggertsson við vinnu sína í Hólanesi hf. Pétur var vélstjóri hjá frystihúsinu í mörg ár.
Höfðaskóli - safn 190
Ingibergur Guðmundsson leggur sig í sófann á kennarastofunni þegar stund gefst á milli stríða í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin á níunda áratugnum meðan Ingibergur var kennari en hann var svo skólastjóri árin 1991 - 2005.
María Magnúsdóttir - safn 121
Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) bóndi og fræðimaður frá Syðra Hóli.
Fisk Seafood - safn 056
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd syngur föngulegur hópur fyrir gestina. Frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Hafdís Þorvaldsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Herborg Þorláksdóttir og Hans Birgir Högnason.
Höfðaskóli - safn 268
Valgerður Guðmundsdóttir vinstra megin og Katrín Guðmundsdóttir hægra megin við vinnu í Höfðaskóla 1999.
Höfðaskóli - safn 265
<p>Í tilefni af 60 ára afmæli Höfðaskóla 1999 voru alls kyns uppákomur í skólanum einn skóladaginn í nóvember það ár. Á myndinni ávarpar Ingibergur Guðmundsson skólastjóri gesti í afmælinu. Á bak við hann er veggspjald sem gert var í líki Spákonufells en á því er stiklað á stóru í sögu skólans. </p>
Höfðaskóli - safn 372
Skólaferðalag í Danmörku líklega 1998. Þá fóru nemendur elstu bekkjanna í viku langt skólaferðalag til Danmerkur ásamt þremur kennurum. Hér bíður hópurinn fyrir utan Tívolí í Kaupmannahöfn eftir einhverjum sem enn eru inni í skemmtigarðinum. Frá vinstri: Kristín Ólafsdóttir kennari, óþekktur, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Jón Oddur Hjálmtýsson, Jón Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Briem, Ólafur Guðmundsson, Magnús Líndal Þrastarson, Hermann Freyr Guðjónsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Guðni Már Lýðsson og Jón Ingi Ragnarsson.
María Magnúsdóttir - safn 168
Gígja Snædal
Fisk Seafood - safn 211
Hallbjörn Björnsson rafvirki við vinnu í Rækjuvinnslunni árið 2003 eða 2004.
Fisk Seafood - safn 159
Bogabraut 9 eftir útlitsbreytingu og eftir að hafa verið járnklætt. Lengi var skrifstofa Skagstrendings hf á miðhæðinni og Hólaness hf á efstu hæðinni. Þá var um tíma bókhaldsskrifstofa í kjallaranum/jarðhæðinni.
Fisk Seafood - safn 004
<p>Sigurður Bjarnason tekur hér við viðurkenningu frá framkvæmdastjóra Marfangs fyrir hönd starfsfólks Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd. Marfang var útflutningsaðili á rækju frá Rækjuvinnslunni og viðurkenningin var veitt fyrir framúrskarandi gæðaframleiðslu á rækju um langt árabil. Myndin var tekin 9. maí 1989. </p>
Fisk Seafood - safn 132
<p>Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í vinnslusal Rækjuvinnslunnar hf. Á henni er Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) næst okkur. Til hægri við hana er Þórunn Óladóttir og gegnt Þórunni við færibandið er Sigrún Jónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.</p>
Höfðaskóli - safn 136
Jenný Lind Sigurjónsdóttir til vinstri og Elva Ösp Gunnarsdóttir til hægri líklega í heimsókn í Reykjaskóla í Hrútafirði einhverntíma upp úr 1995.
Árni Geir Ingvarsson - safn 592
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) Akri á Skagaströnd situr hér með ömmubarn í fanginu, líklega Völu Rós Ingvarsdóttur.
Höfðaskóli - safn 299
Þessi mynd var tekin í einhverju skólaferðalagi sennilega kringum 1993 en ekki er vitað hvar. Frá vinstri: Sigrún Líndal Þrastardóttir, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Heiðrún Ósk Níelsdóttir og Kolbrún Freyja Þórarinsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 195
Á þessari mynd stendur:"Páll Steingrímsson frá Neðstabæ í Norðurárdal A-Hún. Var lengi ritstjóri dagblaðsins Vísir í R.vík".
Höfðaskóli - safn 142
Umferðarfræðsla er einn þáttur sem farið er yfir í skólanum. Þar er lögð mikil áhersla á hjálmanotkun krakka á reiðhjólum. Stundum hefur einhvert fyrirtæki gefið hópi yngri nemenda reiðhjólahjálm og þessi mynd er frá einni slíkri hjálma-afhendingu 1996 eða 1997. Lögreglan er gjarnan fengin til að afhenda hjálmana eða a.m.k. vera viðstödd til að auka áhrifamáttinn. Á þessari mynd eru frá vinstri, í fremri röð: Þröstur Líndal kennari og húsvörður, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Arís Eva Vilhelmsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir kennari. Aftari röð frá vinstri: Hermann Ívarsson lögreglumaður, Unnar Már Garðarsson, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Marinó Freyr Jóhannesson, Sunna Gylfadóttir, Fanney Ingólfsdóttir, Ágústa Lóa Jóelsdóttir og Steinar Orri Hafþórsson.
María Magnúsdóttir - safn 003
Messu í gömlu Hólaneskirkju lokið. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til hægri og óþekktur prestur til vinstri þakka fólki fyrir komuna. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir með Erlu Maríu Lárusdóttur í fanginu, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), óþekktur maður (nær), Hjördís Sigurðardóttir (fjær), Stefán Ægir Lárusson, Pétur, óþekkt kona, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Lárus Ægir Guðmundsson. Aðrir á mybndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 025
Þessi mynd var tekin í veislu í nýrri kaffistofu Hólaness hf þegar hún var vígð 24. janúar 1987. Þá var lokið gagngerri endurbyggingu á frystihúsi félagsins þar á meðal kaffistofunni. Á þessari mynd ávarpar Sigurjón Guðbjartsson, stjórnarformaður Hólaness hf á þessum tíma, starfsfólk og gesti.
María Magnúsdóttir - safn 043
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi (Bogabraut 24).
María Magnúsdóttir - safn 053
Lárus Björnsson (d.1985) frá Syðra Hóli. Lárus var smiður og iðnrekandi á Akureyri ókvæntur og barnlaus. Hann var sósíalisti alla æfi og arfleiddi Alþýðubandalagið að húsi sínu að Eiðsvallagötu 18 árið 1970 og er það síðan kallað Lárusarhús.
Fisk Seafood - safn 046
Sævar Bjarnason þáverandi formaður Verkalýðsfélags Skagastrandar í ræðustól í kaffistofu Hólaness hf 15. desember 1988. Tilefnið var að þann dag var að útskrifast hópur af starfsfólki Hólaness sem sérhæft fiskvinnslufólk. Fyrirtækið bauð til kaffidrykkju í tilefni dagsins og þá tók Sævar til máls ásamt fleirum.
Fisk Seafood - safn 062
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Á þessari mynd er dansað af hjartans list. Fremst á myndinni eru Haraldur Árnason og Hrafnhildur Jóhannsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 182
Starfsfólk Höfðaskóla gerir sér glaðan dag í lok skólaárs meðal annars með því að fara í ratleik um allan bæ og leysa hinar margvíslegustu þrautir. Ein þrautin var að fá lánaða hluti út í bæ til að geta síðan bakað pönnukökur í skólanum á eftir. Hér hefur Sigrún Guðmundsdóttir bankað upp á hjá Stefáni Jósefssyni og fengið eitthvað lánað hjá honum.
Höfðaskóli - safn 162
Skúli Már Matthíasson flokkar sorp í eldhúsinu í Höfðaskóla einhverntíma upp úr 1990.
Höfðaskóli - safn 296
Ragnheiður Erla Stefánsdóttir æfir sig í upplestri fyrir 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999.
Fisk Seafood - safn 191
Skagstrendingur hf keypti gömlu síldarverksmiðjuna á sínum tíma og gerði vel við húsið. Jarðhæðinni var breytt í frystiklefa og geymslu, miðhæðin er geymsla - aðallega fyrir umbúðir - og efsta hæðin er lítið notuð geymsla. Húsið var klætt að utan með bárujárni eins og sjá má en löngu seinna voru svo þrærnar, sem ekki sjást á myndinni en voru sambyggðar til vinstri, rifnar.
Höfðaskóli - safn 385
Sverrir Brynjar Berndsen einbeitir sér í skriftartíma í Höfðaskóla. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin kringum 1988.
Árni Geir Ingvarsson - safn 580
Óþekktur bátur (Hu 20) í höfninni á Skagaströnd á friðsælum degi. Ef þú veist hvað báturinn heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn 291
Ómar Ingi Ómarsson skoðar sýningu á ýmsu tengdu náttúrufræðikennslu á 60 ára afmælishátíð Höfðaskóla í nóvember 1999. Ómar er klæddur í gömul tískuföt sem hann sýndi á tískusýningu, sem var eitt af atriðunum á afmælishátíðinni.
Höfðaskóli - safn 304
Valdimar Þórhallsson var kennari við Höfðaskóla um tíma.
Höfðaskóli - safn 147
Strandblak nemenda Höfðaskóla í fjörunni hjá Sandlæknum á útivistardegi að vori. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn 174
Myndin var tekin í skólaferðalagi elstu nemenda Höfðaskóla í Danmörku. Maðal þess sem krakkarnir skoðuðu var hið fræga tákn Kaupmannahafnar, Litla hafmeyjan. Margir höfðu ímyndað sér hana stærri en hún er í raun og veru og urðu því fyir dálitlum vonbrigðum í fyrstu. Á myndinni hafa fjórar stúlkur stillt sér upp fyrir framan styttuna. Þær eru frá vinstri: Ásdís Lýðsdóttir, Karen Peta Karlsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir og Geirþrúður Guðmundsdóttir. Myndin var tekin 1997 eða 1998.
Höfðaskóli - safn 115
Myndin sýnir nemendur Höfðaskóla reyna sig í þrautabraut sem komið var upp á skólalóðinni í vinnuviku skólans um miðjan 10. áratuginn. Á myndinni er Stefán Agnar Gunnarsson? að reyna að hoppa gegnum eina þrautina á sem skemmstum tíma. Páll Pálsson kennari tekur tímann.
Höfðaskóli - safn 158
Pósturinn efndi til samkeppni um hönnun á nýju frímerki meðal grunnskólanemenda á Íslandi einhverntíma nálægt aldamótunum. Jóna Gréta Guðmundsdóttir, nemandi í Höfðaskóla, sigraði í keppninni og hlaut vegleg peningaverðlaun fyrir myndina sína. Á þessari mynd, sem tekin var í höfðustöðvum Póstsins, eru frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Dagbjört Bæringsdóttir, móðir Jónu Grétu, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir (nær), sem líka tók þátt í samkeppninni og varð í einu af efstu sætunum, Svenny Hallbjörnsdóttir (fjær), móðir Katrínar, óþekktur maður og Unnur Kristjánsdóttir myndmenntakennari stúlknanna tveggja. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Fisk Seafood - safn 001
Hér skoðar Magnús Sigurðsson, útgerðarstjóri hjá Skagstrendingi hf, vinnsluþilfarið á einhverjum óþekktum togara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 086
11. mars 1989 héldu Hólanes hf og Rækjuvinnslan hf sameiginlega árshátíð í Fellsborg. Meðal gesta á árshátíðinni voru þessi systkin; Ómar Jakobsson og Drífa Kristjánsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 308
Kötturinn barinn úr tunnunni á öskudegi í Höfðaskóla. Kennarinn með mjólkurhattinn er Ólafur Bernódusson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn 269
Hress nemendahópur í Höfðaskóla. Frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Almar Freyr Fannarsson, Kristinn Hjálmtýsson (nær), Sindri Njáll Hafþórsson (fjær), Ragnar Már Björnsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Höfðaskóli - safn 321
Ungir töffarar í Höfðaskóla. Myndin var sennilega tekin 1999. Frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Karl Aron Bender og Ómar Ísak Hjartarson.
Höfðaskóli - safn 217
Knattspyrnulið úr Höfðaskóla 28. júní 1997 ásamt þjálfara sínum. Fremri röð frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson, Kristján Sigurbjörnsson, Jón Atli Magnússon, Sigurgeir Snævar Árnason og Ívar Gylfason. Aftari röð frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Garðar Geirfinnsson þjálfari.
1
…
127
128
129
…
167
Leita í myndasafninu
Leita