Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 003
Myndin var tekin í saumaklúbbi á heimili Amyar Eymundsdóttur í Brimnesi en ekki er vitað hvenær. Frá vinstri eru: Rósa Björg Högnadóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir? (d. 25.9.2006), Þórunn Óladóttir, Árnína Guðrún Fossdal og Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012).
María Magnúsdóttir - safn 248
Aftan á þetta póstkort er ritað sem texti: "Anna til hægri handar Aðalbjörg til vinstri 1912". Viðtakandi er svo: "Húsfrú María Ögmundsdóttir Syðra-Hóli". Síðan er skrifað með annarri rithönd neðst á kortið: "Dætur Ingibjargar Thorlaksson".
María Magnúsdóttir - safn 291
Margt er sér til gamans gert á sjómannadögum á Skagaströnd. Stundum hefur verið keppt í beitingu eins og þessi mynd sýnir. Keppandinn næst okkur á myndinni er Jón Jónsson (d. 9.7.1991) Asparlundi svo kemur Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) Akri en maðurinn í peysunni er óþekktur (?Birgir Árnason?). Til vinstri fylgjast tveir menn með, báðir með húfur og bindi. Sá til vinstri er Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) frá Kárastöðum en til hægri er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) úr Stórholti. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 70
Hafnir Skagahreppi nú Skagabyggð. Gamli bærinn er til hægri á myndinni. Hafnir eru hlunnindajörð með æðarvarpi, selveiðum og reka.
Óþekktur ljósmyndari 391
Elínóra Rafnsdóttir kennari á kennarastofunni í Höfðaskóla 1986.
Héraðsskjalasafn A-Hún 11
María Magnúsdóttir (1909 - 10.2.2005) ljósmóðir frá Vindhæli. Lengst af (1936 - 1979) starfaði María sem ljósmóðir við sjúkrahúsið á Sauðárkróki og sá einnig um mæðra- og ungbarnaeftirlit á Sauðárkróki.
Héraðsskjalasafn A-Hún 13
Þessi mynd sýnir gömlu verslunarhúsin á Hólanesinu en þau brunnu til ösku með öllu sem í þeim var á Þorláksmessu 1892. Myndina tók Evald Hemmert kaupmaður.
Jósef H Sigurðsson - safn 091
Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) var verkstjóri í frystihúsi Hólaness hf um langt árabil. Eitt af skyldustörfum verkstjórans var að greiða fólki út laun fyrir vinnu sína. Þegar þessi mynd var tekin 1965, fékk fólk útborguð laun sín í peningum í umslagi. Þá þurfti Sigurður að telja seðla og smámynt í umslag hvers og eins og allt þurfti auðvitað að stemma. Þetta var fyrir tölvuöld og bankar voru fjarlægar stofnanir á Skagaströnd. Þessa "aukavinnu" vann Sigurður heima hjá sér í Hólaneshúsinu eftir langan dag í frystihúsinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 753
Fyrir Kántrýdaga eitt sinn, en þeir voru bæjarhátíð Skagastrandar, var hlaðið Spákonuhof sem síðan var tjaldað yfir. Þar inni gátu gestir látið spá fyrir um framtíð sína í dulúðugu umhverfi torfhofsins. Síðan þetta var hefur Spákonuhofið flutt í mun betra húsnæði í gömlu Tunnuna á Skagaströnd en hefur tekist að halda stærstum hluta dulúðinnar, sem er við hæfi í starfsemi sem þessari. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Sigrún Lárusdóttir spákona, Rakel Tryggvadóttir og Magnús B. Jónsson.
Jón Jónsson 363
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Á myndinni eru nokkrir krakkar að flytja skemmtiatriði sitt. Frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Anna Guðrún Ásgeirsdóttir, Viktor Pétursson, Gígja Óskarsdóttir, óþekkt, Róbert Gunnarsson og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 018
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016) og Birna Blöndal. Myndina tók Jónas Baldursson.
María Magnúsdóttir - safn 157
Á þessa mynd hefur verið ritað: "Jón Kr. Jónsson Laufási maður Fjólu Sig.".
Jón Jónsson 370
Á myndinni, sem er frá 1985, eru þau glöð á góðri stund Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) og Guðmundur Jóhannesson og taka snúning á vinnustað sínum í Rækjuvinnslunni hf.
Héraðsskjalasafn A-Hún 47
Hjónin Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) og Friðgeir Eiríksson (d. 17.5.1985) bændur á Sviðningi á Skaga.
Héraðsskjalasafn A-Hún 301
Systkinin Björn Magnússon(1855-1921) og Margrét Magnúsdóttir (1850-1945) frá Syðra-Hóli í Vindhælishreppi (nú Skagbyggð).
Jósef H Sigurðsson - safn 010
Mennirnir tveir um borð í þessum óþekkta bát eru að bíða meðan færið er dregið. Axel Gígjar Ásgeirsson til vinstri og ?Hjalti Indriðason? til hægri. Ekki er vitað hver báturinn er né hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 755
Harpa Hlín Ólafsdóttir klikkar ekki á að vera með reiðhjólahjálminn þegar hún ferðast um á hjólinu sínu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 764
Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd, byggt 1899, var endurbyggt í sinni upprunalegu mynd árin 2008 - 2009. Húsið var svo formlega tekið í notkun sem safn 29. júní 2009. Útveggir hússins voru illa farnir og voru þeir endurbyggðir en innréttingar og klæðningar inni voru látnar halda sér óbreyttar. Þá var byggt bíslag við húsið norðanvert fyrir salerni og fleira. Á myndinni má sjá Sigurð Björnsson til vinstri og Einar Gunnarsson til hægri á vegum Trésmiðju Helga Gunnarssonar við að bera á klæðninguna utanhúss fyrir opnunina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 713
Fyrir mistök voru tröppur sem voru vestan á Höfðaskóla, eldra húsinu, eyðilaggðar og brotnar niður. Brotthvarf trappanna hefur gjörbreytt ásýnd skólans sem ekki eru allir sáttir við.
Héraðsskjalasafn A-Hún 257
Fólk frá Höfnum og Víkum í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Myndin var tekin við bæjardyrnar í Höfnum undir útskornu listaverki Guðmundar Pálssonar myndskera, sem kallaður var bíldur. Á myndinni eru Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir sem er dökkklædd og stendur í dyragættinni. Konan til vinstri við Guðrúnu er líklega Elinborg Teitný Björnsdóttir (d.2.5.1971) , fyrri eiginkona Jóns Benediktssonar (d.30.12.2002) bónda í Höfnum. Faðir Elinborgar var Björn Teitsson, bróðir Guðrúnar Teitsdóttur, svo þær Elinborg voru náskyldar. Drengurinn framan við Elínborgu er líklega sonur hennar, Benedikt Jónsson og telpan framan við Guðrúnu sennilega Lára Bjarnadóttir dóttir Elínborgar og fósturdóttir Jóns. Hin stúlkan, sem stendur framan við óþekkta manninn er þá Birna Jónsdóttir sem er dóttir Elínborgar og Jóns. Maðurinn lengst til hægri er líklega Karl Árnason (d.25.12.1995) bóndi í Víkum. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern af hinu fólkinu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson588
Sigfús Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd 1984 - 1986 í ræðustól í Fellsborg. Tilefnið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson618
Gríðarlegur fjöldi gesta kom á kántrýhátíð í ágúst 2001. Öll tjaldsvæði í bænum voru yfirfull og tjaldað var allsstaðar þar sem hægt var að koma fyrir tjaldi. Allt fór þó ótrúlega vel fram og fólk skemmti sér á fallegan hátt. Á myndinni má sjá yfir bæinn þar sem Kaupfélagstúnið er fullnýtt. Sama má segja um Karlsminnistúnið í miðjum bænum og einnig tjaldsvæðið upp við Hólabergin. Þess utan voru tjaldsvæði sunnan við Fellsborg og víðar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 445
Börnin á þessari mynd eru óþekkt en myndin er merkt hjá Héraðsskjalasafninu á eftirfarandi hátt: Systkinin frá Skrapatungu - drengur og 2 telpur. Tilgáta er að þetta séu börn Finns Guðmundssonar og Ingibjargar Jónsdóttur bænda í Skrapatungu. Þau áttu fjögur börn: Ottó Val (d.10.11.1998) á Blönduósi, Guðnýju á Skagaströnd, Kristínu (Síta)(d.26.10.1987) á Blönduósi og Elísabetu á Blönduósi. Ef þú þekkir eitthvert barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Árni Geir Ingvarsson - safn 673
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Hafþór Gylfason. Baksvipinn á Ólafur Bernódusson. Ártalið er óþekkt.
María Magnúsdóttir - safn 112
Aftan á þessari mynd stendur:"Fjóla Sigurðardóttir Laufási dóttir Margrétar Björnsdóttur frá Syðra Hóli". Fjóla (d.15.7.1988) en Margrét (d. 11.9.1993).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 072
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri: óþekkt, Andri Þór Ómarsson, Elín Ósk Ómarsdóttir, Bryndís Ingimarsdóttir og Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993).
Jón Jónsson 449
Myndin var líklega tekin 1985. Á henni er fólk að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf við að hreinsa frá skeljabrot og annað sem ekki á heima á borði neytenda. Konurnar á myndinni eru, talið frá vinstri: Sólveig Eiðsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Angantýsdóttir og Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990).
Héraðsskjalasafn A-Hún 122
Jón Árnason (d.1888) bókavörður og þjóðsagnasafnari frá Hofi í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 275
Björk Axelsdóttir kennari frá Skagaströnd
Héraðsskjalasafn A-Hún 385
Nýbyggð Höskuldstaðakirkja var vígð 31.mars 1963 og þá var þessi mynd tekin. Biskupinn yfir Íslandi Herra Sigurbjörn Einarsson vígði kirkjuna að viðstöddum prestum úr prófastsdæminu og fleirum. Á myndinni er Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) fyrir miðju. Vinstra megin situr séra Þorsteinn Gíslason í Steinnesi nær en séra Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991) í Bólstaðahlíð fjær.Hægra megin situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) Skagaströnd og Höskuldsstöðum nær en hinn presturinn er óþekktur. Til vinstri við kórinn má sjá séra Gísla H. Kolbeins fjærst og maðurinn með gleraugun er Jón Ísberg (d.24.6.2009) sýslumaður Húnvetninga. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 219
Hjónin Auður L. Sigurðardóttir (d. 6.4.2009) og Ingimar Sigvaldason (d. 4.5.1991) frá Hróarsstöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 436
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987) sem lengst af bjó í Þórsmörk. Á myndinni bregða synir hennar á leik í afmælinu. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Reynir Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
María Magnúsdóttir - safn 257
Á þetta póstkort er ritað: "Synir Ingibjargar Thorlaksson. Haraldur nærri 3. ára, Edward nærri 7 ára, Jóhann 10 mánaða". Engin undirskrift er á kortinu né nafn viðtakanda.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 030
Haustið 1992 var haldið námskeið í skrifstofutækni fyrir fullorðið fólk í Höfðaskóla. Þessi mynd var tekin í lokahófi sem haldið var 19.desember af kennurum og nemendum á námskeiðinu í hótel Dagsbrún. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingvar Valdimarsson, Erla Kristinsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, óþekktur, óþekkt, Ragnar Jónsson (með skalla) og Helgi Marínó Magnússon.
María Magnúsdóttir - safn 171
Aftan á þessari mynd stendur:"Systurnar á Neðstabæ í Norðurárdal A-Hún. Auðbjörg í karlmannsfötum og Guðrún á hvíta kjólnum".
Héraðsskjalasafn A-Hún 165
Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) á Skagaströnd.
Jón Jónsson 446
Þegar uppihald varð í vinnslu á rækju í Rækjuvinnslunni hf málaði starfsfólkið húsnæði vinnslunnar að utan í blíðviðrinu. Þessi mynd var tekin 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 745
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni er vinnunni lokið og greinilegt að börnin kunna vel að meta nýframkvæmdirnar. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 239
Kjalarland í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 310
Ingvar Pálsson (d. 18.10.1968) frá Balaskarði. Ingvar var hagyrðingur og eftir hann er m.a. þessi vísa:
Ég hef fullvel fundið það
í flestum lífsins spilum,
hvað það reynist erfitt að
eiga að standa í skilum.

Héraðsskjalasafn A-Hún 136
Gömul mynd af Skrapatungu í Laxárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 070
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu, ásamt mökum, til grillveislu í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið 2. júlí 1992. Margir mættu í veisluna og nutu veitinganna, sem stjórn félagsins grillaði með hjálp Steindórs Haraldssonar matreiðslumanns. Á þessari mynd eru frá vinstri í aftari röð: Einar Gunnarsson, Bergljót Óskarsdóttir (d. 22.2.2004), Ragnar Einarsson, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d. 15.2.2016) og óþekktur strákur. Fremri röð frá vinstri: Björn Hallbjörnsson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Rósa Björg Högnadóttir, óþekkt barn, Guðmundur Óskarsson, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) (nær), Kenny Hallbjörnsdóttir (fjær) og Drífa Kristjánsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 106
Aftan á þessari mynd stendur:"Guðmar Pálsson Njálsstöðum".
Páll J. Pálsson safn 17
Þessi mynd var tekin 1913. Sitjandi eru hjónin Lilja Pétursdóttir (d. 7.8.1921) og Guðjón Einarsson (d. 4.5.1915)bændur á Harrastöðum í Skagahreppi. Milli þeirra stendur María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) sem var tökubarn þeirra hjóna. Standandi eru, frá vinstri: Einar Guðjónsson (d. 1.2.1961) sonur þeirra, Ingibjörg Tómasdóttir (d. 26.8.1980) kona Einars, Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968) sonur Lilju og Guðjóns og Páll Tómasson (d. 3.6.1963) vinnumaður þeirra. Páll og María urðu seinna hjón og bjuggu á Bakka í Skagahreppi 1923 - 1960.
Jón Jónsson 359
Þessi mynd var tekin á árshátíð Höfðaskóla einhverntíma á árunum kringum 1985. Krakkarnir, sem voru öll í sama bekk, eru, talið frá vinstri: Særún Níelsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hafdís Ásgeirsdóttir, Berglind Karlsdóttir, óþekkt, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, standandi: Svanur Árnason, Jóhannes Ægir Óskarsson og Hallgrímur Björgvinsson (d. 10.8.2010), sitjandi: Guðmundur Henry Stefánsson, Óskar Ingi Þórsson (d. 5.4.2007), Börkur Árnason og lengst til hægri með rauðleita hárkollu er Þröstur Árnason.
Páll J. Pálsson safn 29
Þessi mynd var tekin við útför Maríu Ólafsdóttur (d. 4.7.1975) frá Bakka 14. júlí 1975 frá Hofkirkju. Kistuberar eru talið frá vinstri: Hjalti Árnason (d. 4.7.2010) bóndi Skeggjastöðum, Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013) sonur Maríu, Hilmar Árnason (d. 16.3.1988) bóndi á Hofi, Helgi Pálsson (d.22.1.2011) sonur Maríu, Páll J. Pálsson sonur Maríu og Sigurður Björnsson (d. 10.5.1987) bóndi á Örlygsstöðum. Konan sem stendur á tröppunum er Lilja Guðrún Pálsdóttir dóttir Maríu og maður hennar Gunnar Guðmundsson (d. 13.10.2010) er hjá henni í tröppunum. Aftan við Gunnar eru systurnar María Pálsdóttir og Jakobína Pálsdóttir (d. 28.11.2003) dætur Maríu. Pilturinn í kirkjudyrunum er Kolbeinn Högnason sonur Jakobínu en konan lengst til hægri á myndinni er Guðríður Jónasdóttir (d. 20.4.1982) frá Steinnýjarstöðum kona Kristjáns Guðmundssonar (d. 14.2.1979) bónda þar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 728
Á myndinni eru krakkarnir í vinnuskólanum í þökulagningavinnu. Þökurnar voru skornar á túni utan við Sandlækinn og á myndinni eru þau að rífa upp þökur og hlaða á vagn sem flutti þær inn í bæ þar sem krakkarnir lögðu þær niður. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Tanja Rán Einarsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir og Alma Eik Sævarsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 390
Árni Björn Kristófersson (d. 11.10.1982) frá Árnesi á Skagaströnd
Jón Jónsson 414
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1963 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1983. Þau héldu m.a. einkasamkvæmi í Skátaskálanum með mökum sínum og buðu þangað til sín kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson, Sigurjón Ástmarsson, óþekktur, Jökulrós Grímsdóttir, Jóhanna Hallgrímsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og Erna Sigurbjörnsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 103
Króksbjarg.
Héraðsskjalasafn A-Hún 15
Bakki Skagahreppi, nú Skagabyggð. Myndin sýnir vesturhlið bæjarins, hliðina sem sneri að sjónum. Myndin var tekin sumarið 1958 en búið var í bænum til 1960. Síðustu ábúendur í gamla bænum á Bakka voru Páll Tómasson (d. 3.6.1963) og María Ólafsdóttir (d. 4.7.1975) en þau bjuggu þar árin 1923 - 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 735
Á myndinni er verið að vinna við grjótvörn í víkinni frá Hólanesi inn að Hrafná. Sjórinn var farinn að éta úr landinu og veginum á bakkanum en með grjótvörninni tókst að stöðva ágang sjávar á svæðinu.
Hallgrímur Kristmundsson safn048
Félagarnir Snorri Gíslason (d.29.5.1994) til vinstri og Guðmundur Jóhannesson til hægri í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950.
Jón Jónsson 356
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd frá sýningu í Fellsborg eru frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Þorvaldur Skaftason.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn003
Skátaforingjarnir Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd og Gunnhildur Þórmundsdóttir foringi á Blönduósi. Myndin var tekin kringum 1960 á einhverju skátamóti.
Árni Geir Ingvarsson - safn 711
Þetta unga fólk vann að stígagerð á Höfðanum. Fólkið var á vegum Landsvirkjunar sem styrkti verkefnið með því að senda ungt fólk úr vinnuskóla sínum í verkið. Ungmennin dreifðu viðarkurli á stíginn þar sem þess var þörf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en stúlkan í appelsínugula samfestingnum er Helga Dögg Jónsdóttir. Drengurinn á myndinni er óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 134
Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 276
Þetta eru hjónin Indriði Jón Indriðason (1857-1904) og Valgerður Þorsteinsdóttir. Í blaðinu Heimskringla sem út kom í Winnipeg 8. september 1904 er eftirfarandi minningargrein um Indriða:

Æfiminning
Indriði Indriðason frá Ytri-Ey á Skagaströnd i Húnavatnssýslu andaðist af blóðeitrun á almenna
sjúkrahúsinu í Winnipeg, þann 5. ágúst sl. og var jarðaður í Brookside grafreitnum 7. s. m. af séra
Runólfi Marteinssyni, sem flutti lipra ræðu við gröfina.
Indriði var sonur Indriða Jónssonar og konu hans Súsönnu Jóhannsdóttur og fæddur að Reykjaströnd 3. júní 1857. Hann fór á unga aldri til vandalausra og var ýmist í vistum eða lausamaður þar til árið 1889, að hann fluttist til Ameríku og staðnæmdist í Sayerville. Árið 1900 giftist hann Valgerði Þorsteinsdóttur, ættaðri úr Rangárvallasýslu. Nœsta ár fluttu þau til Perth Amboy og voru þar í 3 ár; fluttu því næst til Glouchester og dvöldu þar í 5 ár, og síðan fluttu
þau til Cavalier, þar sem ekkja hans býr nú í eigin húsi þeirra. Indriði sál. aflaði sér talsverðrar
almennrar mentunar og bar glögt skyn á viðburði sinnar tíðar. Hann var glaðlyndur og gestrisinn, og
hafði ánægju af að gera þeim sem heimsóttu hann komuna sem ánægjulegasta. Hann var allvel efnum búinn og notaði þau til að gleðja sig og aðra. Til Íslands ferðaðist hann með konu sína og
ferðaðist þar víða um; og hér í landi fór hann og all-víða. Hann var því fróður um margt, er aðrir
báru eigi skyn á. Engan kostnað sparaði hann til að prýða heimili sitt og gera það sem ánægjulegast. En ekki var hann félagslyndur, eins og það er alment skoðað, og ekki vildi hann ganga í lífsábyrgð, því hann hafði sérkennilegar skoðanir á þvi máli, sem mörgum öðrum.
Hann var fáskiftinn um hagi annara og dulur í skoðunum, en vel látinn af öllum er til hans
þektu.
Vinur.
Jón Jónsson 368
Þessi mynd var tekin í Lystigarðinum á Akureyri. Aftan á myndina er skrifað með penna: "Fjölgun 5 í viðbót" en þar fyrir neðan með býanti: "Stúkan í sömu ferð" . Þetta virðist því hafa verið tekið í einhverri skemmtiferð stúkunnar á Skagaströnd en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Í aftari röð eru Úlfar Björnsson ljóshærður næst lengst til vinstri. Jón Jónsson er fjórði frá vinstri með ljósan sixpensara. Framan við Jón krýpur Gunnar Albertsson en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson621
Á myndinni stendur Óli Axel Óskarsson við brunnið færiband á Vélaverkstæði Karls Berndsen í júní 2001. Kviknað hafi í bandinu um nótt og það leit svona út morguninn eftir þegar menn komu til vinnu.
1

145
146
147

167
Leita í myndasafninu
Leita