Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson618
Gríðarlegur fjöldi gesta kom á kántrýhátíð í ágúst 2001. Öll tjaldsvæði í bænum voru yfirfull og tjaldað var allsstaðar þar sem hægt var að koma fyrir tjaldi. Allt fór þó ótrúlega vel fram og fólk skemmti sér á fallegan hátt. Á myndinni má sjá yfir bæinn þar sem Kaupfélagstúnið er fullnýtt. Sama má segja um Karlsminnistúnið í miðjum bænum og einnig tjaldsvæðið upp við Hólabergin. Þess utan voru tjaldsvæði sunnan við Fellsborg og víðar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 445
Börnin á þessari mynd eru óþekkt en myndin er merkt hjá Héraðsskjalasafninu á eftirfarandi hátt: Systkinin frá Skrapatungu - drengur og 2 telpur. Tilgáta er að þetta séu börn Finns Guðmundssonar og Ingibjargar Jónsdóttur bænda í Skrapatungu. Þau áttu fjögur börn: Ottó Val (d.10.11.1998) á Blönduósi, Guðnýju á Skagaströnd, Kristínu (Síta)(d.26.10.1987) á Blönduósi og Elísabetu á Blönduósi. Ef þú þekkir eitthvert barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Árni Geir Ingvarsson - safn 673
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd, sem tekin var á æfingu á skemmtiatriðunum, eru frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Þórey Jónsdóttir, dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Hafþór Gylfason. Baksvipinn á Ólafur Bernódusson. Ártalið er óþekkt.
Jón Jónsson 377
Myndin var tekin 1985 af stúlkum að pakka rækju í Rækjuvinnslunni hf. Það liggur greinilega vel á stúlkunum sem eru, talið frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Guðmunda Ólafsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 95
Jónína Jónsdóttir (d. ?) Þverá í Hallárdal
Jón Jónsson 419
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru hjónin Bjarni Jóhannsson og Guðrún Guðmannsdóttir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 241
Björn Sigurðsson (d. ?) frá Balaskarði í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Hallgrímur Kristmundsson safn023
Þessi mynd hefur sennilega verið tekin utan við Karlsskála. Þar eru á spjalli Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) úr Árnesi til hægri og líklega ?Ernst Berndsen? (d. 21.8.1983) sem átti heima í Karlsskála.
Árni Geir Ingvarsson - safn 723
Gróðursetning í hlíðum Spákonufells fyrir ofan skíðaskálann.Í dag (2016) hafa plönturnar sem verið er að gróðursetja á myndinni náð góðri fótfestu og vaxa nú ár frá ári. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2010. Á myndinni eru frá vinstri: Jóhann Örn Stefánsson, Torfi Friðrik Magnason, Amy Ósk Ómarsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir og tvö óþekkt.
Ólafur Bernódusson616
Á kántrýhátíð í ágúst 2001 var meðal annars boðið upp á námskeið í kántrýdansi í íþróttahúsinu. Eins og sjá má á fjöldanum á myndinni var töluverður áhugi fyrir námskeiðinu. Í horninu til hægri var svo svið en þar voru haldnir tónleikar um þessa helgi þar sem Helgi Björnsson tróð upp ásamt hljómsveit.
Hallgrímur Kristmundsson safn002
Þessi mynd var tekin um borð í Leifi Eiríkssyni frá Dalvík. Tveir karlar eru uppi á stýrishúsinu í bassaskýlinu að reyna að koma auga á síldarvöðu til að kasta á. Karlarnir í ganginum hægra megin eru að súpa kaffi í rólegheitunum meðan leitað er. Þessi háttur var hafður á við síldarleit áður en ný og fullkomin síldarleitartæki komu um borð í bátana. Þá varð að treysta á að síldin væri að vaða til að hægt væri að finna hana. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og sjómenirnir eru óþekktir en miðað við fjöllin í baksýn hefur hún verið tekin skammt norð vestur af Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 156
Hjónin Sigríður Guðlaugsdóttir (d. 25.3.1996) og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) í Bjarmalandi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 250 - Copy
Anna Pétursdóttir (1890 - 1958) frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Anna átti mörg systkini m.a. Halldóru (d.23.12.1987) og Guðmund (d. 30.6.1987) sem áttu lengi heima í Höfðakoti á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 296
Regína Sigríður Indriðadóttir (1858 - 11.12.1913) frá Ytri Ey í Vindhælishreppi ( nú Skagabyggð).<br>Í minningargrein um Regínu í blaðinu Reykjavík frá 13. desember 1913, sem eftirlifandi eiginmaður hennar skrifaði, kemur meðal annars fram að hún flutti til Kanada 1889 þar sem hún dvaldi á nokkrum stöðum til ársins 1897 er hún flutti aftur heim á Ytri-Ey og var þar ráðskona föður síns til ársins 1900. Þá giftist hún, unnusta sínum til nokkurra ára, Guðjóni Sólberg Friðrikssyni. Þau bjuggu á nokkrum stöðum á Íslandi áður en þau fluttu aftur til Winnipeg í Kanada 1911 en þar Regína lést úr krabbameini 11. desember 1913.
Héraðsskjalasafn A-Hún 84
Jakob Möller (d. 5.11.1955) frá Stóra-Bergi á Skagaströnd. Jakob var alþingismaður 1919 - 1927 og aftur 1931 - 1945. Fjármálaráðherra var hann 1939 - 1942 og jafnframt dómsmálaráðherra 1942. Síðan sendiherra í Danmörku 1945 og Finnland bættist við 1947. Jakob hætti sendiherrastörfum 1951.
Héraðsskjalasafn A-Hún 307
Árni Magnús Guðmundsson (d. 27.4.2014) frá Skrapatungu í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Ólafur Bernódusson661
Eldurinn er að ná sér á strik í áramótabrennunni 2010 enda nýbúið að kveikja í. Fólk fylgist með og spjallar á þessum síðasta degi ársins meðan það bíður eftir hápunkti kvöldsins sem er flugeldasýning björgunarsveitarinnar Strönd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 273
Páll Jónsson (d.19.7.1979) Skólastjóri á Skagaströnd. Páll varð fyrsti skólastjóri Höfðaskóla á Skagaströnd þegar Höfðahreppur varð til 1939 eftir skiptingu Vindhælishrepps hins forna í þrjá hreppa. Sinnti hann því starfi allt til ársins 1966 er sonur hans Jón Pálsson tók við.
Héraðsskjalasafn A-Hún 303
Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) frá Brúarlandi á Skagaströnd. Ingvar, sem bjó lengi í Norður-Skála, var hreppsstjóri Höfðahrepps í allmörg ár meðfram því að stunda verkamannavinnu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 705
Eftir að olíutankarnir á Höfðanum voru rifnir var svæðið undir þeim lagað til og fært til betri vegar. Á myndinni eru þrír ungir drengir á vegum vinnuskólans að búa til lítið steinalagt torg þar sem Shell tankurinn stóð við enda vegslóðans upp á Höfðann. Drengirnir eru frá vinstri: Indriði Björnsson, Almar Fannarsson og Jóhann Stefánsson.
Ólafur Bernódusson600
Í september 2001 kom Pétur Eggertsson, þáverandi formaður Rauðakrossdeildar Skagastrandar, færandi hendi í Höfðaskóla. Meðferðis hafði hann reiðhjólahjálma handa fyrstu bekkingum frá deildinni. Á þessari mynd er Pétur í hópi krakkanna sem eru með nýju hjálmana sína. Börnin eru frá vinstri fremst: Sæþór Bragi Ágústsson, Sigurjón Elí Eiríksson, Ernst Guðni Hólmgeirsson, óþekkt og Magnús Jens Magnússon. Miðröð frá vinstri: Saga Lind Víðisdóttir, tvær óþekktar stúlkur og Ingvar Hallgrímsson. Standandi frá vinstri: Ásdís Erla Steingrímsdóttir, óþekktur, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir og Pétur Eggertsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 272
Erla Valdimarsdóttir (d.29.9.2008). Erla var húsmóðir á Skagaströnd gift Guðmundi Lárussyni (d.15.10.2002) athafnamanni þar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 353
Ms Stellgeth T-88-1 var norskt selveiðiskip sem sótti til veiða norður í íshaf. Í áhöfn þessa skips var Jóhann D. Baldvinsson (d.9.4.1990) frá Skagaströnd og er myndin frá honum komin. Myndin var tekin 1929 og eins og sjá má er Sellgeth inni í miðri ísbreiðunni í leit að selum. Jóhann, eða Jói norski eins og hann var gjarnan kallaður, fór sextán selveiðiferðir norður í ísinn með norðmönnum á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Héraðsskjalasafn A-Hún 8
Mennirnir í þessum vinnuflokki eru óþekktir nema sá sem hringur hefur verið dregin um. Hann er Hannes Sigurður Einarsson (1895 - 1940) frá Óseyri á Skagaströnd. Ekki er vitað hvað mennirnir voru að starfa við en það gæti hafa verið mótaka eða vegagerð.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 049
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í rútu í ferðinni af mæðgunum Önnu Guðrúnu Ásgeirsdóttur og Sigrúnu Guðmundsdóttur. Anna Guðrún er að gera grín sem greinilega hrífur vel.
Ólafur Bernódusson579
Myndin var tekin á loftinu í Hólaneskirkju einhverntíma kringum 1997 af unglingastarfi sem þar fór fram. Fremst frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, óþekktur, Eyþór Ernstsson og Jón Oddur Hjálmtýsson. Miðröð frá vinstri: Gunnlaugur Briem?, Gunnar Helgason, Magnús Filip Sævarsson og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir), Birna Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir og óþekkt.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 017
Hart í bak er eitt af þekktustu leikverkum Jökuls Jakobssonar (d. 25.4.1978) en það var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1962. Leikklúbbur Skagastrandar tók verkið til sýninga leikárið 1978 - 1979 og sýndi það í Fellsborg og nágrannabyggðum við góðar undirtektir. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum þeir Hallbjörn Hjartarson til vinstri og Magnús B. Jónsson frá hægri. Myndina tók Jónas Baldursson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 162
Hjónin Dóróthea Hallgrímsdóttir (d. 2004) og Sigurður Magnúson (d. 2.8.2002) verkstjóri í Hólanesi.
Héraðsskjalasafn A-Hún 89
Hafnir í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Þetta er mynd af gamla bænum á Höfnum sem nú er horfinn.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 051
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af þeim stöllum (frá vinstri): Ingibjörgu Skúladóttur, Lindu Kristjánsdóttur og Þórhöllu Þórhallsdóttur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 199
Árni Sigurðsson (d. 1886) Höfnum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Hallgrímur Kristmundsson safn048
Félagarnir Snorri Gíslason (d.29.5.1994) til vinstri og Guðmundur Jóhannesson til hægri í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950.
Jón Jónsson 356
Fyrsta öngstræti til hægri eftir Örn Bjarnason var verkefni leikársins 1987 - 1988 á vegum Leikklúbbs Skagastrandar. Verkinu leikstýrði Þröstur Guðbjartsson sem árið áður hafði leikstýrt Síldin kemur og síldin fer fyrir Leikklúbbinn. Á þessari mynd frá sýningu í Fellsborg eru frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Þorvaldur Skaftason.
Jón Jónsson 383
Vetur á Skagaströnd geta verið mjög snjóþungir. Með það í huga að öll él birtir upp um síðir er alltaf tekið til eftir illviðriskafla og byrjað að moka göturnar til að gera þær bílfærar. Hér er búið að stinga í gegnum skaflana fyrir Víkina en eins og sjá má er þeir sumsstaðar tvær mannhæðir á þykkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 212
Ágúst Jakobsen (d.?) frá Skagaströnd
Héraðsskjalasafn A-Hún 427
Eysteinn Björnsson (d. 2.5.1978) frá Hafursstöðum í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Páll J. Pálsson safn 6
Ingibjörg Tómasdóttir (d. 26.8.1980) var systir Páls Tómassonar bónda á Bakka í Skaghreppi og kona Einars Guðjónssonar (d.1961) en þessi mynd var tekin af Ingibjörgu 1916 en þá var hún 30 ára.
Héraðsskjalasafn A-Hún 188
Gunnar B.S. Pálmason smiður og sjómaður frá Skagaströnd.
Hallgrímur Kristmundsson safn037
Áning í ?Eyjafirði?. Á myndinni taka þeir sér "nestishvíld" Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) til vinstri, Guðmundur Jóhannesson í miðjunni og óþekktur til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1950.
Árni Geir Ingvarsson - safn 785
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar og sýnt við miklar vinsældir. Þessi mynd var tekin á æfingu, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir og Bóel Hallgrímsdóttir. Bak við þær liggur Kristín Jónsdóttir í koju.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 045
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni þar sem fólk er að fá sér kaffi eftir matinn. Fólkið er, talið frá vinstri: Gunnar Jónsson (nær), Erna Högnadóttir (í miðið), Erna Rós Magnúsdóttir (fjærst) Magnús Guðmannsson (nær), óþekktur (fjær), Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Guðný Björnsdóttir, Árni Björn Birgisson, Kristín Sigurðardóttir, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d. 15.2.2016), Bjarnhildur Sigurðardóttir (d. 22.4.2016), Sólveig Róarsdóttir og svo sér í hnakkann á Pálfríði Bjarnadóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 646
Þorrablót hefur verið árviss viðburður í febrúar í Fellsborg í áratugi á vegum kvenfélagsins Einingar með dyggri aðstoð félaga í Leikklúbbi Skagastrandar og fleiri við skemmtiatriði á blótinu. Á þessari mynd er Magnús B. Jónsson á æfingu á skemmtiatriðunum. Ártalið er óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 93
Guðrún Sigurðardóttir seinni kona Björns á Syðri-Ey.
Ólafur Bernódusson611
Tívolí á bílaplaninu neðan við íþróttahúsið á kántrýhátíð í ágúst 2001.
Héraðsskjalasafn A-Hún 191
Gömul mynd af Skagaströnd líklega tekin kringum 1950.
Héraðsskjalasafn A-Hún 49
Ingibjörg Ólafsdóttir (d. 6.3.1991) frá Króksseli og seinna Ytri-Björgum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 797
Þessi mynd var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni árið 1984. Hún fór að mestu fram á tjaldsvæðinu og meðal skemmtiatriða voru ýmis konar hestasýningar. Þar á meðal átti að snara kálf af hestbaki.Kálfurinn var reyndar ekkert hrifinn af uppátækinu og stauk úr gerðinu þannig að sýningaratriðið var í hættu um tíma. Allt fór þó vel og kálfurinn var snaraður eins og vera bar. Myndin sýnir nokkra hestamenn sem eru að ráða ráðum sínum og fólkið bíður eftir framkvæmdinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 757
Skólalóðin var endurskipulögð og gerð fín með nýjum leiktækjum, hellulögnum og steinahleðslum. Á myndinni eru ungir menn á vegum áhaldahússins að leggja gúmmímottur undir eitt af leiktækjunum. Slíkar gúmmí-mottu-hellur eiga að koma í veg fyrir slys því þær eru tiltölulega mjúkar. Ungu mennirnir eru frá vinstri: Óskar Björnsson, Kristján Ýmir Hjartarson og Indriði Björnsson.
Jón Jónsson 437
Lárus Ægir Guðmundsson lét af störfum sem sveitarstjóri árið 1984 eftir 12 ára starf. Í tilefni af því bauð hann helstu samstarfsmönnum sínum heim í kveðjuhóf. Á myndinni eru Lárus til vinstri á tali við Adolf J. Berndsen oddvita Höfðahrepps á árunum 1978 - 1990. þeir voru því nánir samstarfsmenn lengst af þeim tíma sem Lárus var sveitarstjóri.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn005
Hrafnhildur Jóhannsdóttir úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd tekur hér við verkefnablaði á einhveju skátamóti kringum 1960. Skátadrengurinn er óþekktur.
Héraðsskjalasafn A-Hún 314
Ekki er vitað við hvaða tækifæri þessi mynd var tekin af fólkinu á fundi né hvar. Á henni eru frá vinstri: Pálmi Jónsson Akri, séra Gísli Kolbeins Melstað, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012)Skagaströnd, Jón Stefánsson (d. 24.11.1973) Kagaðarhóli og Stefán Jónsson (d. 29.6.2009) Kagaðarhóli.
Héraðsskjalasafn A-Hún 124
Björg Jónsdóttir (d. 1925) Árbakka og Björg Jónsdóttir (d. 1924) frá Háagerði. Samkvæmt Héraðsskjalasafni A-Hún voru Bjargirnar tvíburasystur fæddar 29.8.1844. Myndin var tekin aldamótaárið 1900. Árbakki er í Vidhælishreppi (nú Skagabyggð) en Hágerði er í Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd).
Hallgrímur Kristmundsson safn036
Óþekktur maður í Listigarðinum á Akureyri. Myndin var líklega tekin fyrir 1950. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 233
Pétur Pétursson (d. 1980) Karlsminni Skagaströnd áður frá Tjörn í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 264
Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) frá Skagaströnd og Ólafur Magnússon (d. 23.8.1991) frá Sveinsstöðum á sýslunefndarfundi þar sem þeir voru fulltrúar hvor síns sveitarfélags í nefndinni.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn009
Fánahylling á skátamóti að Hólum í Hjaltadal. Dagur frá 4. september 1963 segir frá þessu skátamóti á eftirfarandi hátt undir fyrirsögninni: "SKÁTAMÓT AÐ HÓLUM Í HJALTADAL". <br>"Um s.l. helgi gengust St.Georgs-skátar á Akureyri fyrir útilegu að Hólum í Hjaltadal. Þar voru samankomnir skátar frá Höfðakaupstað, Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Dalvík og Akureyri, um 70 manns. <br>Laugardagskvöldið leið við leiki og varðeld, en á sunnudagsmorgun kl. 10 f.h., að afloknum föstum dagskrárliðum, svo sem morgunþvotti, tjaldskoðun og fánahyllingu, var gengið til kirkju þar sem sr. Björn Björnsson sagði sögu kirkjunnar og kirkjugripa, að aflokinni bænagjörð.<br>Eftir hádegi lögðu 29 skátar frá Akureyri og Dalvík af stað á heyvagni dregnum af dráttarvél, og var ekið að Skriðulandi í Kolbeinsdal og þaðan síðan gengið sem leið liggur, fram Kolbeinsdal og yfir Heljardalsheiði og var komið niður að Atlastöðum í Svarfaðardal eftir 7 klst. rólega göngu. <br>Þeir, sem eftir urðu á Hólum, gengu upp í Gvendarskál og yfirgáfu síðan staðinn um kl.5."
Héraðsskjalasafn A-Hún 292
Sigurlaug Indriðadóttir (d.15.5.1953) frá Ytri-Ey.
Bjarnhildur Sigurðardóttir - safn 055
Í seinni hluta október 1992 fór starfsfólk Hólaness hf, ásamt mökum sínum, saman í stutta ferð til Dublin. Þessi mynd var tekin í ferðinni af fólki að fá sér bita eftir þreytandi verslunarferð. Fólkið er, talið frá vinstri: Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), Rósa Björg Högnadóttir, Magnús Guðmannsson og Erna Högnadóttir.
María Magnúsdóttir - safn 185
Margrét Finnbogadóttir
Héraðsskjalasafn A-Hún 326
Björn Jörgen Sigurbjörnsson Hlíð á Skagahreppi (nú Skagabyggð).
1
…
146
147
148
…
167
Leita í myndasafninu
Leita