Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
30600008

Unnið að síldarlöndun úr Höfrungi AK 10 á Skagaströnd í júlí 1961

larus057
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991. Ólafur Skúlason biskup predikar en í kórnum sitja prestarnir Egill Hallgrímsson, Guðni Þór Ólafsson og Pétur Þ. Ingjaldsson sem er innstur.
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga 1963 að mig mynni
Útför Þórarins Jónssonar frá Fossi á Skaga árið 1963 frá Hólaneskirkju. Fólkið á myndinni er,
talið frá vinstri: Kristinn Jóhannsson, Jóhann Pétursson. Guðmundur Jóhannesson, Karla Berndsen kona Þórarins, Þórbjörn Jónsson, Magnús Daníelson frá Syðri-ey, Óli Jón Bogason og Guðmann Magnússon frá Vindhæli.
Palli
Páll Jóhannesson (d. 29.1.1989) frá Garði
mundi407
Hyrnt kind með lamb.
mundi524
Tjaldbúðir í Tungudal við Ísafjarðarkaupstað. Myndin var tekin í Vestfjarðaferð starfsfólks Guðmundar Lárussonar 1973? Kári Sigurbjörn Lárusson stendur fyrir miðri mynd í ljósri skyrtu og brúnum buxum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
30680035
Fjársafnið rekið að Fellsrétt.
mundi411
Séra Pétur Ingjaldsson (d.1.6.1996) prestur og prófastur á Skagaströnd og Dómhildur Jónsdóttir (d.18.12.2012), kona hans, með syni sína Jón Hall og Pétur Ingjald. Myndin tekin fyrir utan bæinn Kurf í Skagahreppi
Guðrún Guðbjörnsdóttir002
Brautarholt var bær sem byggður var inn í Gónhól - hólinn sem er á lóðamörkum Fellsbrautar 13. Þar bjó lengi Ólafur Guðmundsson sem í daglegu tali var kenndur við Brautarholt
oþekkt138
Sigurður Magnússon bílstjóri á Volvo vörubíl, á þvottaplaninu sem var við hlið Einbúans. Fyrir aftan bílinn má sjá dúfnakofann sem var á lagerhúsi Sigurðar Sölvasonar kaupmanns í versluninni Borg.
mundi421
Páll Ísólfsson situr við orgelið og Guðmundur Guðnason stendur hjá.
mundi601
Helgi Ólafsson frá Hvammstanga flytur ræðu. Séra Pétur Ingjaldsson situr fremst á myndinni. Aðrir eru óþekktir
hem019

Millilanda- og Strandferðaskipið Laura - Lára - á strandstað á Bótinni, í mars 1910. Allir björguðust en skipið brotnaði á strandstað því ekki tókst að draga það á flot aftur. Í baksýn sér í norðanverðan Höfðann. Svo vildi til að Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi - Guðrún ljósa - var farþegi með skipinu í þessari síðustu ferð Lauru. Hér fyrir neðan fer frásögn Guðrúnar af strandinu en frásögnin er tekin af vefsíðu sem afkomendur Guðrúnar hafa sett út á netið, Myndina tók Evald Hemmert. "Haustið 1909 fór ég til Akureyrar til að læra að sauma. Ég hélt til hjá Valgerði Ólafsdóttur frænku minni. Hún bjó hjá syni sínum Halldóri. Hún kom mér fyrir hjá konu sem kenndi saumaskap. Og var ég þar í 6 mánuði. Mér langar mjög mikið til að læra dönsku því frænka mín var alltaf að lesa dönsku. Kom hún mér þá fyrir hjá Jórunni Sigurðardóttur sem hafði kvennaskóla og tók hún mig í dönskutíma og hafði ég gott af því. Svo fór ég heim í mars með gömlu Láru. Gekk Laura það allt vel þar til við komum inn í Húnaflóa. Þar var hríðarveður. Stýrimaður kom inn til okkar stúlknanna um morguninn og sagði okkur að við skyldum liggja í rúminu þar til við kæmum til Skagastrandar um hádegisbil. Kojurnar okkar voru inn af matsalnum en í honum sátu 13 Fransmenn sem höfðu brotið skip sitt fyrir austan land og voru nú á leið suður. Svo þegar skipið fór að taka niður þá fór að heyrast í körlunum og bar mest á orðinu „malestia“ sem mér var sagt að væri svart blótsyrði og er það eina orðið sem ég kann í frönsku. Við þurftum að drífa okkur í fötin því skipið hallaði gífurlega. Og fórum upp á þiljur þá var skipið strandað og hvítfrissandi bárur allt í kring. Við sáum til lands framundan og okkur var sagt að við hefðum strandað fyrir utan höfðann á Skagaströnd. Svo voru settir út tveir bátar og vorum við stúlkurnar settar ofan í annan bátinn ásamt öðrum. Og kom fyrsti stýrimaður og settist undir stýrið svo var lagt af heimleiðis. Ferðin tók klukkutíma og var það köld ferð. Við komu
mundi430
Sólveig Georgsdóttir á fermingardaginn sinn.
30680022
Síldarævintýri. Síldarsöltun í hverju plássi.
mundi339
Grímuball í Tunnunni. Grímurnar voru gjarnan teknar niður á miðnætti og þá komst upp hver var hver. Þórður Jónsson (d.25.12.2009) er lengst til vinstri uppi á sviðinu.
mundi507
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, smíði eikarbáta. Mennirnir óþekktir.
30680040
Löndunarkraninn og færiböndin tengd við síldarverksmiðuna. Unnið að málningu og viðhaldi. Takið eftir málaranum sem hangir neðst á stokknum hægra megin. Inni í stokkunum tveimur, sinn hvoru megin á krananum, voru skóflufæribönd. Endinn á stokkunum var látinn síga niður í lest skipanna og þannig var síldinni mokað upp á færibandið sem flutti hana upp í þrærnar við verksmiðjuna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960.
larus005
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson, til vinstri, hættir störfum 1981 og Séra Oddur Einarsson tekur við, milli þeirra eru bræðurnir Kristján Hjartarson organisti og kórstjórnandi vinstra megin og Hallbjörn Hjartarson meðhjálpari hægra megin.
hem021
Til vinstri er Einar Blandon en hægra megin er Carl Hemmert í Höephnersverslun á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin,
myndir frá Skagaströnd 033
Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Bogi Ingvar Traustason, Þorgerður Una Bogadóttir, Birna Sólveig Lúkasdóttir og óþekktur maður (? Herbert Ólafsson ?).
30600034
Árný Magnea Hilmarsdóttir (d.3.1.1997) frá Hofi í Skagabyggð.
mundi637
Björgvin Jónsson, formaður byggingarnefndar afhendir Ingvari Jónssyni smið, táknrænan lykil að húsinu. Milli þeirra sést í Hjördísi Báru Þorvaldsdóttur og Guðrúnu Sigurðardóttur
hem002
Á myndinni er til vinstri verslunarstjórahúsið því næst er fjós og hesthús. Við norðurenda þess gægist fram hornið á Assistentastofu. Húsið sem er lengst til hægri upp í Einbúanum var þvottahús. Myndin er frá 1913 eða fyrr, áður en nokkrar landfyllingar komu til sögunnar kringum Einbúann.
mundi525
Þessi mynd er tekin í ferðalagi til Ísafjarðar sem Guðmundur Lárusson bauð sínu starfsfólki í árið 1973. Myndin er liklega tekin í Flókalundi. Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003)spilar á harmóniku en hinn maðurinn á myndinni er óþekktur.
027
Ingiríður Jónsdóttir frá Steinnýjarstöðum ca 15 ára gömul 1939 - 1940
mundi531
Baldvin M. Jóhannesson (d.1.1.1981) frá Ásholti og Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) úr Reykholti gá til kinda.
Jón Jónsson 118
Tilefni veislunnar er sennilega eitthvað tengt byggingu kirkjunnar. Á myndinni eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, óþekkt, Sigmar Jóhannesson, óþekkt, Sigurbjörg Angantýsdóttir og Hörður Ragnarsson
larus080
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989. Kirkjukórinn sem söng við athöfnina. Frá vinstri: Jóhanna Ólafsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Kristján Hjartarson, Sigmar Jóhannesson, Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Rosemary Hewlett. Við hljóðfærið situr Julian Hewlett.
mundi586
Dansleikur á óþekktum stað.
larus081
Fyrsta messan í nýrri Hólanesskirkju 30. júlí 1989 í tengslum við 50 ára afmæli Höfðahrepps.
mundi626
Þorfinnur Bjarnason oddviti(sveitarstjóri) tekur í hönd Björgvins Jónssonar formanns byggingarnefndar.
mundi549
Dansleikur í Fellsborg. Hljómsveitin Gautar frá Siglufirði leikur fyrir dansi.
mundi425

Andrésarbúðin eða verslun A. Guðjónssonar (Verslun Andrésar Guðjónssonar) Lengst til vinstri var heyhlaða síðan fjós og verslun Andrésar Guðjónssonar. Þegar Guðjón Andrésson tók við versluninni af föður sínum var fjósið gert að verslun líka og hlöðunni breytt í lager. Eftir 1970 hét versluninn Fellskjör um tíma en síðan verslun Hallbjörns Hjartarsonar. Hallbjörn hætti svo verslun í húsinu og stofnaði Kántribæ. Húsið brann en fjósið og hlaðan standa enn endurbyggð ásamt nýjum Kántrýbæ.

mundi395
Stefán Ágústsson frá Ytri-ey. Myndin er tekin árið1970.
mundi371
Hvolpur
myndir frá Skagaströnd 025
Jakobína Helga Axelsdóttir frá Læk
mundi643
Skagstrendingar í heimsókn í Hvammstangakirkju af ókunnu tilefni.
hem022
Bærinn Spákonufell og útihús honum tilheyrandi eru til vinstri. Spákonufellskirkja er til hægri, á hlaðinu á Spákonufelli. Spákonufell var landnámsjörð Þórdísar spákonu og höfuðból sem átti stærstan hluta þess lands sem byggðin á Skagaströnd stendur á í dag. Kirkja stóð um það bil þar sem kirkjugarður sóknarinnar er í dag. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en kirkan var aflögð 1928 þegar ný kirkja - Hólneskirkja - var vígð niður á Skagaströnd.
Jón Jónsson160
Lúðrasveit leikur á sjómannadegi á Skagaströnd undir stjórn Skarphéðins Einarssonar.
023
Ingibjörg og Þórey Daníelsdætur frá Búrfelli
30600030
Síldarævintýri. Söltun í fullum gangi á hafnaplaninu um miðjan júlí 1961. Hrafn Sveinbjarnason Gk 255 og Höfrungur Ak 10 bíða löndunar eða eru að landa síld til söltunar.
mundi580
Dansleikur í Fellsborg
Guðrún Guðbjörnsdóttir015

Steingrímur Einarsson frá Drangsnesi og Úlfar Jónsson frá Bæ við vinnu sína um borð í Húna Hu 1 1962 - '63.

mundi468
Skrúðgangan frá höfn til kirkju á sjómannadegi. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) ber fána og við hlið hans er fánaberinn Bjarni Loftsson (d.8.11.1990). Þriðji fánaberinn er óþekktur en aftan við hann er Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
031
Gunnlaugur Björnsson við slátt
mundi397

Þessi mynd er tekin á jólaskemmtun um eða upp úr 1960 á Njálsstöðum. Frá vinstri: Björgvin Kemp Efri-Lækjardal, Guðrún Guðmundsdóttir Neðri-Mýrum, séra Pétur Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum, seinna á Skagaströnd, þá Guðmann Magnússon (d. 22.11.2000) frá Vindhæli, Magnús Daníelsson (d.1.6.1993) frá Syðri-Ey, Sigurður Jónsson (d. 11.1.1968) Mánaskál, Guðlaug Sigurðardóttir (d.17.1.2002) Kúskerpi, Agnes Sigurðardóttir (d. 15.1.2003) Mánaskál, Torfi Sigurðsson (d. 9.10.1993) Mánaskál og Hafsteinn Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum.

hem030
Frú Jóhanna Hemmert kaupmannsfrú við orgelið í stofunni heima hjá sér.
mundi404
Ferming í Hólaneskirkju 1961. Sigrún Kristófersdóttir gengur niður tröppurnar en Steinunn Margrét Ellertsdóttir er í kirkjudyrunum
hem003
Spákonufellshöfði 1915 eða eldra.
mundi536
Tilefni þessarara myndar er óþekkt. Á myndinni má þekkja Jóhönnu Thorarensen (d.6.3.2004) með bláan trefil um hálsin og Hrafnhildi Jóhannsdóttur sem situr á kappanum með sólgleraugu og veski.
mundi491
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973, við heimkomuna en hann var smíðaður í Japan.
mundi419
Guðrún Elvan Friðriksdóttir (14.2.2008) dóttir Friðriks Elvan (d.?) og Bjargar Ólafsdóttur (d.1.3.2007).
Þórir, Gunna og börn
Steinþór Carl Ólafsson og Guðrún Halldórsdóttir með börn sín: Halldór Carl, Steinunni og Kristjönu.
mundi561
Guðmundur Ingi Jónatansson (d.4.12.2015) skálar á skemmtun í Fellsborg. Við borðið nær okkur sér í bak Þórbjarnar Jónssonar (d.22.1.1996) og við hlið hans er kona hans Guðmunda Árnadóttir (d.21.1.2017). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi459
Arnar HU-1 skreyttur við heimkomu frá Japan í október 1973. Örvar Hu 14 í baksýn.
026
Rússajeppi - GAZ - í eigu Sigmars Hróbjartssonar
mundi557
Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) með dóttur sinni Aðalheiði Másdóttur
mundi612
Fermingarbörn 1973 í Hólaneskirkju ásamt Sr. Pétri Ingjaldssyni. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Ragnar Högnason, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Hörður Jónasson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Gréta Ingvarsdóttir, Halldór Jóhann Grímsson, Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020), Lilja Guðjónsdóttir, Adolf H. Berndsen og Guðrún Ágústsdóttir. Séra Pétur Ingjaldsson situr fremst á myndinni.

mundi617
Þórdís Sigurðardóttir í Hólaneskirkju eldri á fermingardaginn sinn vorið 1972.
1

17
18
19

167
Leita í myndasafninu
Leita