Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
mundi557
Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) með dóttur sinni Aðalheiði Másdóttur
mundi574
Linda Kristjánsdóttir og Rúnar Loftsson á brúðkaupsdaginn?.
larus091
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Gunnar Einarsson innanhúsarkitekt og Örnólfur Hall arkitekt, á milli tveggja tíma - gamla kirkjan til vinstri og sú nýja til hægri.
larus092
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Baldur Haraldsson múrari sá um flísalagnir.
022
Óþekktur drengur á Skagaströnd. Gamla Tunnan í baksýn?
mundi638
Myndin var tekin á framboðsfundi í Fellsborg en ártalið er óþekkt. Í ræðustól er Magnús Gíslason (d. 3.2.2013) frá Frostastöðum en við hlið hans situr Þorfinnur Bjarnason ( d. 6.11.2005) fundarstjóri. Aftan við þá sér í Hannes Baldvinsson frá Siglufirði. Magnús og Hannes voru báðir í framboði fyrir Alþýðubandalagið .
Lúkas Kárason
Lúkas Kárason
mundi443
Kappróðrarkeppni á sjómannadegi.
mundi475
<P>Vinstra megin er báturinn Guðmundur Þór Hu 7 en til hægri sést aftan á Guðjón Árnason Hu 12. </P>
larus089
Bygging nýrrar Hólaneskirkju. Sigurjón Ástmarsrson vörubílstjóri t.v. og Jón Hannesson steypustöðvareigandi t.h. standa við vörubíl Sigurjóns
044
Sigríður Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði Skagahreppi ca 15 ára
mundi588
Samkoma í Fellsborg af óþekktu tilefni
mundi532
Erla Björg Másdóttir og Vilborg Másdóttir frá Réttarholti
hem016
Evald Hemmert í verslun sinni
larus017
Vígsla nýju kirkjunnar þann 20. október 1991. Biskup Íslands, vígslubiskup og klerkar sem voru við vígsluna.
mundi379
Óþekkt börn að leik í sundlauginni á Skagaströnd á áttunda áratugnum.
mundi529
Kaffidrykkja í Fellsborg af óþekktu tilefni. Brosmildi maðurinn til vinstri er Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) frá Grund en konan til hægri er Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004).
30600037
Kappreiðar á ókunnum stað. Konan með sólgleraugun á brúna hestinum er Sigurbjörg Jóhannesdóttir frá Merkigili.
mundi441
<p>Unglingasveit bíður eftir startinu. Unglingarnir á myndinni eru frá vinstri: Einar Páll Guðmannsson, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Ragnar Högnason, Jón Hallur Pétursson, Adolf H. Berndsen og Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018).
mundi488
Frá móttöku Arnars HU-1 1973 um miðjan október, hann var smíðaður í Japan. Séra Pétur þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í ræðupúlti
mundi457
Kappróður á sjómannadegi.
larus069
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson í fyrstu messunni í nýrri kálfkláraðri Hólanesskirkju 30. júlí 1989.
052
Bærinn að Brandaskarði
mundi618
Valdimar Guðmundsson (d.4.4.2015) í Hólaneskirkju eldri á fermingardaginn sinn vorið 1972.
larus071
Fyrsta messan í nýrri Hólaneskirkju 30. júlí 1989. Í íslenskum hátíðarbúning, frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Jóninna Þórey Hafsteinsdóttir (d.24.11.1994).
mundi560
Gautar frá Siglufirði leika fyrir dansi í Fellsborg
Guðmundur Jakobsson, Þórdís Alexandra Jósepsd. Stiesen
Guðmundur Jakobsson og Þórdís Alexandra Jósepsdóttir Stiesen móðir hans, sem oft var kennd við Bláland. Konan lengst til hægri á myndinni er Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir í Árnesi.
mundi392
Sveitastjórnarkosningar 1970. Hallbjörn Hjartarsson greiðir atkvæði. Kjörstjórnarmennirnir Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) fylgjast með.
Jón Jónsson 117
Á myndinni eru frá vinstri. Steindór Haraldsson, Sr. Ægir Sigurgeirsson, Níels Grímsson, Sigurgeir Árni Ægisson, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Hulda Árnadóttir og Birna Bjarnadóttir
mundi530
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti við réttarstörf í Spákonufellsrétt.
mundi469
<P>Ingvar Jónsson hreppstjóri í ræðustól á sjómannadegi.</P>
mundi485
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 , hann var smíðaður í Japan. Fremst á myndinni til hægri eru Ingibjörn Hallbertsson (d.14.4.2018) og Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988), með pípu. Einnig er hægt að þekkja á myndinni Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) sem er aftan við þá tvo og Georg Hjartarson (d.13.9.2001) í dökkum jakkafötum og með bindi til vinstri. Björn Guðmundsson (Biddi) frá Árbakka er fremst á myndinni hjá konunni með slæðuna. Til vinstri við konuna er Unnur Gunnarsdóttir.
mundi642
Þessi bíll var í eigu Ástmars Ingvarssonar. Hann þjónaði sem fólksflutningabíll á dansleiki um héraðið ásamt ýmsum öðrum ferðalögum. Ástmar var mikið lipurmenni, vinsæll og vel látinn af öllum sem hann þekktu.
Ólína Björnsdóttir
Ólína Björnsdóttir
mundi629
Á myndinni eru Gestheiður Jónsdóttir og Björgvin Jónsson frá Höfðabrekku
mundi631
Eyjólfur Konráð Jónsson Alþingismaður í ræðustól. Fundarstjóri er Þorfinnur Bjarnason.
039
<P>Systkinin Bergdís Sigmarsdóttir og Gunnlaugur Sigmarsson</P>
30680007
Síldarævintýri. Allt klárt fyrir síldarsöltun.
hem028
Verslunarstjórahúsið í byggingu árið 1906. Þetta hús stóð vestan við gamla kaupfélagið og var, eins og nafnið bendir til, byggt sem íbúð fyrir verslunarstjóra Höphnersverslunar sem þá var á Skagaströnd. Í húsinu voru tvær íbúðir og kjallari. Seinna var húsið í eigu Kaupfélags Skagstrendinga og enn síðar í eigu Kaupfélags Húnvetninga. Lengst af bjuggu í húsinu kaupfélagsstjórar og/eða aðrir starfsmenn kaupfélagsins. Í nokkur ár var síðan húsið leigt út á almennum markaði og síðast bjuggu í því fjölskyldur Eðvarðs Ingvasonar og Þórs Arasonar. Húsið var svo rifið í kringum 1980.
30680025
Síldarævintýri. Löndun úr Húna Hu. Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) við spilið, Björn Haraldsson (d.21.9.1988) til vinstri og óþekktur til hægri. Strákurinn er Sigurjón Ásmarsson.
larus087
Bygging nýrrar Hólaneskirkju 1989. Helgi Gunnarsson yfirsmiður og verktaki í þungum þönkum.
30680003
Húni HU 1 með fullfermi af síld í Skagastrandarhöfn.
Jón Jónsson125
Frá vígslu skíðaskálans á páskum 1985. Magnús Jónsson heldur ræðu í kaffisamsæti í skálanum. Á myndinni má þekkja frá vinstri: Kolbrún Jónsdóttir, Kristjana ??, Anna Aspar Aradóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Magnús Jónsson, Viktor Pétursson, Sigurjón Guðbjartsson, Jón Heiðar Jónsson, Óþekktur, Adolf J. Berndsen, Stefán Kristinsson og Ingibergur Guðmundsson.
Myndir frá Skagaströnd
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (Bibba í Reykholti) (d. 26.8.2008) á hestbaki
hem024
Myndin er tekin frá Spákonufellsey árið 1915-20. Á henni sjást frá vinstri verslunarstjórahúsið, Flankastaðir, Þvottahúsið og hægra megin við Einbúann er Assistentastofa, en þar bjó verslunarþjónninn sem var aðstoðarmaður verslunarstjórans. Pakkhús kemur svo, lengra frá, og verslunin, ljós á litinn, nær okkur. Næst er svo Sæmundsenbúð og lengst til hægri Brúarland.
mundi501
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 við heimkomu frá Japan. Fólkið á myndinni hlustar á eina af ræðum dagsins.
mundi619
Óþekkt stúlka með kettling.
mundi578
Dansleikur í Fellsborg. Á myndinni mé sjá Jón Pálsson, Björk Axelsdóttur, Gylfa Sigurðsson, Guðrúnu Guðbjörnsdóttur, Gunnlaug Árnason, Sigurbjörgu Angantýrsdóttur, Svein Kristófersson, Teitný Guðmundsdóttur ásamt fleira fólki
30600014
Síldarævintýri. Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.3.7.1981) saltar.
30680041
Síldarlöndun á Skagaströnd úr Húna Hu 1. Þessi mynd var líklega tekin rétt fyrir 1960 og sýnir Húna með fullfermi við löndunarbryggjuna á Skagaströnd. Utan á Húna er svo nótabáturinn með síldarnótinni um borð. Á þessum árum var síldarnótin lögð úr nótabátnum og síðan fóru karlarnir um borð í hann og drógu hana inn í bátinn með handafli. Hluti nótarinnar var fastur við Húna og þegar karlarnir í nótabátnum voru búnir að draga nógu mikið af henni inn þá hafði síldin í nótinni safnast saman í þétta torfu við hlið bátsins. Þá var háfnum, sem sést fremst á dekkinu á Húna bakborðsmegin, sökkt í torfuna og síldin þannig háfuð um borð. Eftir að lestin var orðin full var háfað í stíur á dekkinu og gjarnan voru síldarbátar á þessum árum með "merar" á lunningunum. Það voru trégrindur sem settar voru ofan á lunningarnar til að hægt væri að koma meiri síld um borð. Eftir í land var komið og síldin var nógu góð til að salta hana tók við mikill þrældómur hjá sjómönnunum við að landa henni. Við það verk voru notaðir handháfar og mokað með þeim í velti - tunnu eins og sést á myndinni. Tunnan var svo hífð í land og sturtað úr henni í handvagn eins og er á bryggjunni. Vagninum var síðan ekið með handafli að síldakössunum þar sem síldarstúlkurnar biðu óþolinmóðar eftir síldinni. Trégöngubrautin sem sést ofan á síldinni var lögð ofan á síldina og milligerðin í stíunum til að síldin merðist síður þegar gengið var um skipið. Húni Hu 1 var smíðaður í Austur Þýskalandi 1957 og var 75 brl. og kom nýr til Skagastrandar í október það ár. Hann var síðan seldur frá Skagaströnd 1965 og fórst 2. mars 1976 með átta manna áhöfn en hét þá Hafrún ÁR. (Heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
mundi521
<P>Vestfjarðaferð starfsfólks Guðmundar Lárussonar 1973?. Maðurinn í bláu peysunni til hægri á myndinni er Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016) frá Steinholti, konan í lopapeysu yfir bláu peysunni og bláum buxum er Birna Blöndal (d.26.10.2018) yfir vinstri öxl hennar má sjá Skafta Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) kveikja sér í pípu.</P>
024
Ingólfur Pétursson frá Sléttu við Reyðarfjörð. Kennari í Skagahreppi 1946
30680034
Fjársafnið rekið að Fellsrétt.
mundi473
Skagastrandarhöfn á góðviðrisdegi. Guðmundur Þór Hu 17 er til vinstri og báturinn fyrir aftan Guðmund Þór er Ásdís HU 10 sem sjósett var nokkru fyrr. Það er að öllum líkindum Guðjón Árnason sem liggur undir löndunarkrananum. Guðmundur Þór og Ásdís voru fyrstu bátarnir sem smíðaðr voru í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf.
mundi466
Heiðrun á sjómannadegi. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Eiður Hilmarsson og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978).
mundi470
Skrúðgangan, gengið frá höfninni í kirkju. Rauði vörubíllinn í baksýn var útgerðarbíll Bjarna Helgasonar á Stíganda Hu sem átti heima í Holti (Eyri) en það er húsið aftan við göngufólkið. Þar fyrir aftan glittir svo í útibúið sem var verslunarútibú frá kaupfélaginu.
mundi416
Systkinin Hjörtur Guðbjartsson og Eyrún Guðbjartsdóttir (d.7.4.1987) Myndin tekin á heimili þeirra í Vík, líklega 1962 -´63
041
Ósk Þorleifsdóttir og Gunnlaugur Björnsson frá Efri-Harrastöðum með dótturson sinn, Gunnlaug Sigmarsson. Myndin tekin um 1950
mundi526
Óþekktur maður í tjaldferðalagi.
Sigmar Hróbjartsson - safn016
Skreyttir bátar í Skagastrandarhöfn 1945 eða 1946. Verksmiðjan er í byggingu því verið er að byggja löndunarkranann en færibandið frá honum upp í verksmiðju er ekki komið.
1
…
18
19
20
…
167
Leita í myndasafninu
Leita