Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Sigmar Hróbjartsson - safn012
Tungunes á Ásunum (Langadal)
Guðrún Guðbjörnsdóttir010
Jón Ingi Ingvarsson (fremst á myndinni) stjórnar reipitogi á sjómannadegi. á reipinu má sjá Gylfa Sigurðsson og Eið Hilmarsson en fleiri þekkjast ekki.
Jón Jónsson166
Atli Þórsson í búningi sínum á grímuballi Höfðaskóla.
mundi602
Ræðuhöld á sjómannadegi.
Sigmar Hróbjartsson - safn006
1945 - 46 verið að byggja strompinn og stoðirnar í skemmuna eru að rísa. Maðurinn á myndinni vinnur við fráslátt.
Stefán Jósefsson - safn004
Sýnd notkun fluglínutækja á sjómannadegi 1964. Báturinn á myndinni er Vísir Hu 10 en maðurinn í stólnum í sjónum er óþekktur.
Þórður Jónsson121
Bernódus Ólafsson í síldarvinnu á Skagaströnd einhverntíma á sjötta áratugnum.
Gunnar Jónsson004
Um borð í Örvari Hu 14. Jón Jósefsson bíður á dekkinu meðan verið er að hífa.
Guðmundur Guðnason686
Sunnudagaskólabörn sunnan við gömlu kirkjuna á Skagaströnd. Fólkið sem stendur aftan við börnin er, talið frá vinstri: Hrefna Björnsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir, Guðný Hjartardóttir, Guðrún Teitsdóttir, Herra Sigurbjörn Einarsson biskup, Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú, séra Pétur Ingjaldsson, Páll Jónsson, Björk Axelsdóttir og óþekkt kona. Börnin eru óþekkt en eru æska Skagastrandar á þeim tíma sem myndin er tekin.
mundi608
Veisla í Fellsborg af óþekktu tilefni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Jónas Skaftason, Ástmar Ingvarsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, óþekkt fólk. Hægra megin við borðið er Halldóra Pétursdóttir frá Höfðakoti fremst og Sigríður Ásgeirsdóttir frá Lækjarbakka næst.
062
Aðalheiður Frímannsdóttir og Lilja Andrésdóttir á Skagaströnd. Myndin tekin um 1940. Húsið í baksýn er Árnes en til vinstri, með hvítum gafli, er Sæból
mundi616
Svanfríður Sigurðardóttir í Hólaneskirkju eldri á fermingardaginn sinn vorið 1972.
035
Skemma úr torfi og timbri við Efri-Harrastaði
mundi572
Fjölskyldan í Réttarholti. Frá vinstri: Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) og Elísabet Árnadóttir með dætrum sínum Aðalheiði, Erlu Björg og Vilborgu. Hjá þeim eru gestir þeirra Sigurður Ingólfsson og frú ásamt syni þeirra.
Guðmundur Guðnason715
Þessi mynd var tekin á kvikmyndasýningu í Tunnunni. Myndin var tekin áður en reglulegar kvikmyndasýningar hófust þar á vegum Skagastrandarbíós. Á þessum árum voru stundum haldnar kvikmyndasýningar á vegum MÍR ( Menningarsamtökum Íslands og Ráðstjórnarríkjanna) og á vegum Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna. Yfirleitt var ókeypis inn á þessar sýningar sem oftar en ekki byggðust upp á einhverri skemmtimynd í bland við áróðursmyndir viðkomandi aðila.
037
Ásgerður, helgi og María Pálsbörn frá Bakka í Skagahreppi (nú Skagabyggð)
30680018
Unnið að málun og viðhaldi löndunarkranans
Guðmundur Guðnason707
<P>Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum, Bergdís Sigmarsdóttir, Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti, Búi Birgisson frá Straumnesi, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Birna Guðjónsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum og Jóhann Ingibjörnsson. </P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir048
Lúðvík Kristjánsson til vinstri og Gunnar Helgason til hægri heiðraðir á sjómannadegi.
Guðrún Guðbjörnsdóttir082
Myndin er tekin á jólaballi í Fellsborg. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Charlotta Traustadóttir, Magnús Sigurðsson, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir og Karla Helgadóttir.
Ólafur Bernódusson007
Hrólfur Pétursson og Sigurður Björnsson við vinnu að endurbyggingu Bjarmaness 2003 - 2004
012
Gunnlaugur Björnsson frá Efri-Harrastöðum
Gunnar Jónsson007
Finnur Kristinsson bátsmaður á Örvari Hu 14 leysir frá fullum poka af fiski.
Guðrún Guðbjörnsdóttir052
Birkir Rafn Gíslason fær að prófa að sitja á fjórhjóli. Stúlkan í bláu úlpunni er líklega Rakel Sara Gunnarsdóttir. Rússajeppann í baksýn átti Guðmundur Björnsson
Ólafur Bernódusson012
Fjölmenni var við vígslu Bjarmaness eftir endurbygginguna 19. júní 2004
Gunnar Jónsson006
Allar stíur fullar af fiski um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971 - 1973.
Stefán Jósefsson - safn009
Frá vinstri eru: Eiður Hilmarsson frá Hofi, Jón Stefánsson frá Kambakoti og Sigmar Jóhannesson. Myndin er tekin á sjómannadegi og þeir eru með verðlaunapening fyrir unninn kappróður í barminum. Myndin er tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum fyrir utan Skjaldbreið, sem þá var heimili Eiðs.
043
Kári Kristjánsson ? snýr heyi einhverntíma í kringum 1938 með snúningsvél frá bænum Efri-Harrastöðum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir039
Tónlistarfólkið og hjónin Julian og Rosemary Hewlett
Gunnar Jónsson001
Finnur Kristinsson bindur fyrir pokann um borð í Örvari HU 14.
Guðrún Guðbjörnsdóttir041
Myndin er tekin á sjómannadegi. Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason eru fremst á myndinni. Nýbúið að heiðra Gunnlaug með orðu sjómannadagsins. Í ræðustól er Magnús B. Jónsson og konan í brúna jakkanum er Kolbrún Viggósdóttir með syni sína þá Eyþór Kára og Ásþór Egilssyni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir007
Bjarni Helgason skipstjóri blæs í blöðru í leik á sjómannadegi. Í baksýn má þekkja Karl Guðmundsson (með mjótt bindi) og Björn Sigmundson
mundi541
Þau sem þarna gaumgæfa eitthvað undir steini eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Dagný Hannesdóttir (Lilla), Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) frá Bjarmalandi
054
Jón Árnason frá Steinnýjarstöðum - seinna á Ólafsvöllum á Skagaströnd
058
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í snjó. Spákonufell í baksýn.
Gunnar Jónsson012
Trollið tekið um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar).
Gunnar Jónsson003
Jón Jósefsson æfir skotfimi á frívakt á Örvari Hu 14. Gylfi Guðjónsson fylgist með.
Guðrún Guðbjörnsdóttir004
Pálína Freyja Harðardóttir er hér til vinstri en Kristjana Erlingsdóttir til hægri
Stefán Jósefsson - safn003
Vísir Hu 10 heldur í róður frá Skagaströnd upp úr 1960
051
Þórey Daníelsdóttir frá Búrfelli með hest ca 1940
Guðrún Guðbjörnsdóttir014
<P>Þorskanet dregin í góðu veðri á Húna Hu 1. Gunnlaugur Árnason er við rúlluna en maðurinn í stakknum er Þorleifur Þórarinsson (Diddi) frá Neðstabæ.</P>
Sigmar Hróbjartsson - safn001
Á myndinni er verið að byggja færibandið á löndunarbryggjunni 1945 - 46. Skipið sem sjá má við bryggju er varðskipið Ægir, smíðað árið 1929.
029
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum og Brynhildur Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði bregða sér í karlmannsföt. Myndin tekin ca 1948.
013
Björgvin Guðmundsson frá Saurum. Myndin tekin ca 1939
Sigmar Hróbjartsson - safn003
Skemman, strompurinn og verksmiðjan rísa 1945 - 46
006
Anna Pálsdóttir frá Húnsstöðum og Þuríður Steingrímsdóttir frá Reykjavík. Myndin var tekin 1946
030
Þorsteinn Guðlaugsson á Litla-felli við sláturhúsið á Skagaströnd ca 1938
30680019
Unnið í löndunarkrananum
Ólafur Bernódusson014
Frá vígslu Bjarmaness eftir endurbyggingu. Á myndinni má þekkja frá vinstri: Halldór G. Ólafsson, Elías Björn Árnason, Sigríði Stefánsdóttur, Adolf J. Berndsen og Sigurð Björnsson
30680028
Síldarævintýri. Söltun í fullum gangi á hafnarplaninu.
053
Una Jónsdóttir frá Steinnýjarstöðum á hestbaki með hund með sér
Gunnar Jónsson013
Ólafur Ingibjörnsson við vinnu um borð í Arnari Hu 1 (Japans-Arnar)
Sigmar Hróbjartsson - safn010
Strompurinn að ná fullri hæð 1945 - 46
Sigmar Hróbjartsson - safn011
Fjögur af húsunum á þessari mynd eru nú horfin. Myndi er tekin úr garðinum á Hólabraut 6. Húsið lengst til vinstri er hét Sóllundur og stóð þar sem nú er Hólabraut 8. Næsta hús hét Goðhóll og stóð þar sem nú er Hólabraut 10. Fyrir ofan Goðhól er svo hlaða/fjárhús. Fyrir aftan drenginn - Braga Þór Haraldsson - glittir í Vinaminni eða Hólabraut 16 í dag. Húsið fyrir miðri mynd hét Baldursheimur og stóð við Sólarveg.
005
Gunnar Albertsson frá Keldulandi og Jón Vilhjálmsson frá Brandaskarði. Á myndinni eru þeir ca 11 - 13 ára gamlir
Jón Jónsson124
Steypuvinna við Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason751
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd. Greinileg hefur verið húsfyllir á ballinu en þeir sem ekki eru í búningum eru fram við dyr meðan grímubúna fólkið dansar með númer á bakinu.
Guðmundur Guðnason710
Smalamennska í Borginni. Féð rekið heim að rétt.
017
<P>Smári Gunnlaugsson í snjó </P>
Guðrún Guðbjörnsdóttir003
Bærinn Brautarholt var byggður inn í Gónhól. Það er hóllinn sem er á lóðamörkum Fellsbrautar 13. Ólafur Guðmundsson bjó lengi í Brautarholti og var gjarnan kenndur við bæinn - Óli í Braut
1
…
22
23
24
…
167
Leita í myndasafninu
Leita