Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
mundi520
Verðlaunaafhending á sjómannadegi. Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er með bikar í höndum. Næst honum er Jón Stefánsson (d.3.8.1991) þá Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Árni Ólafur Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
025
Til vinstri er Heimir Sigmarsson, Smári Guðlaugsson í miðjunni en óþekktur til hægri
Ólafur Bernódusson009
Austur og norður hliðar Bjarmaness. Búið að brjóta niður annan skorstein hússins og framkvæmdir í fullum gangi
mundi625
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) flytur frumsamið ljóð við vígslu Fellsborgar
mundi593
Sólarlag á óþekktum stað
mundi452
Hátíðargestir. Mennirnir með hattana eru Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992) frá Höfðakoti til vinstri og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) til hægri þá kemur óþekktur gráhærður maður en maðurinn með húfuna er Lárus Guðmundsson (d.21.9.1981). Konan með loðhúfuna lengst til hægri er Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012). Aðrir eru óþekktir.
30680029
Síldarævintýri. Síldarsöltunarstúlkur. Í efri röð f.v.: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir og Guðbjörg Lárusdóttir. Neðri röð Halldóra Jónsdóttir og Guðrún Sigurðadóttir.
30600022
Landað úr Haraldi AK-10 á Skagaströnd
Guðmundur Guðnason694

Þessir þrír heiðursmenn settu svip sinn á Skagaströnd hér á árum áður. Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), sem er lengst til vinstri, ólst að mestu upp á Vindhæli í Skagabyggð og átti þar heimili þar til hann flutti til Skagastrandar og stofnaði fjölskyldu með konu sinni Dagnýju Hannesdóttur. Einar Haraldsson (d.14.11.1983) , sem er í miðið, var bóndi að Kjalarlandi í Skagabyggð áður en hann flutti til Skagastrandar með sinni konu, Ólínu Hjartardóttur (d. 27.7.1983) frá Vík. Á Skagaströnd bjuggu þau í Dagsbrún, sem er horfin en stóð u.þ.b. þar sem stjórnsýsluhúsið er nú. Lengst til hægri er svo Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) bóndi á Litla Felli í Sveitarfélaginu Skagaströnd. Þar bjó hann með konu sinni Sigrúnu Guðmundsdóttur og þeirra fjölskyldu. Allir eru þessir þrír menn minnisstæðir þeim sem til þeirra þekktu.

Guðrún Guðbjörnsdóttir008
Myndin tekin á sjómannadegi þegar einhver leikur er í gangi. Lögreglumaðurinn er Hjálmar Eyþórsson en Bjarni Helgason blæs í blöðruna. Konan á milli þeirra er óþekkt en ungi maðurinn fyrir aftan þá er Björn Sigmundson
hem012
Verslunarstjórahúsið á Skagaströnd er næst okkur á myndinni. Í baksýn er verslun Höpnersverslunar ljós og lágreist en viðbyggingin var pakkhús verslunarinnar. Öll þessi hús eru nú horfin en þau stóðu rétt við Einbúann. Húsin lengst til hægri er sennilega Efri Lækur, sem einnig er löngu horfinn.
30680013
Allt tilbúið til að hefja síldarsöltun á planinu.
30680012
F.v. Birgir Árnason (d.2.2005) og Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986)við vinnu sína á planinu. Á bak við þá má sjá bíl Birgis H 40
mundi615
Laufey Karlsdóttir Berndsen í Hólaneskirkju eldri á fermingardaginn sinn vorið 1972.
mundi584
Fjöldasöngur í veislu í Fellsborg af ókunnu tilefni. Konan í íslenska búningnum er Guðrún Björnsdóttir (Góa) (d. 11.8.1971) í Sæborg og maðurinn við hlið hennar er Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) er við hlið hennar í gráum fötum. Konan fremst á myndinni til hægri er Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990). Lengst til vinstri sér í Karl Berndsen (d. 12.2.1995) en fyrir aftan Hafstein er Knútur Berndsen (d.31.8.2013), og þar fyrir aftan er Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016) læknir.
Sigmar Hróbjartsson - safn018
Neðri Harrastaðir ca 1940
mundi451
Sigurður Jónsson upp í mastri á bát á sjómannadegi.
036
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum
003
Finnur Frímannsson frá Jaðri á Skagaströnd. Myndin tekin ca 1938
mundi550
Dansleikur í Fellsborg. Hljómsveitin Gautar frá Siglufirði leikur fyrir dansi.
Gunnar Jónsson008
Blóðgaður fiskur í öllum stíum á dekkinu á Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971 - 1973
Guðrún Guðbjörnsdóttir031
Úr saltfiskvinnslu Hólaness hf. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Þórhalla Þórhallsdóttir, Danica Zupancic, Sigfús Sævar Sigurðsson, Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Sigmar Hróbjartsson - safn014
Réttað í Landsendarétt. Réttin stóð á sjávarbakkanum norðan við Réttarholt - á Landsenda
Gunnar Jónsson002
Finnur Kristinsson fylgist með þegar verið er að taka trollið inn á síðuna á Örvari Hu 14
mundi533
Vilborg Másdóttir frá Réttarholti við orgelið.
010
Talið frá vinstri: Björn Arason Örlygsstöðum, Brynhildur Vilhjálmsdóttir Brandaskarði, Gunnar Albertsson Keldulandi, Ásgerður Pálsdóttir Bakka, María Pálsdóttir Bakka, Helgi Pálsson Bakka, Benedikt Vilhjálmsson Brandaskarði, Árni Hólm Skeggjastöðum, Jón Vilhjálmsson Brandaskarði, Páll Vilhjálmsson Brandaskarði, Örn Guðmundsson kennari frá Þverárdal. Myndin tekin ca 1944.
Stefán Jósefsson - safn001

Á þessari merkilegu mynd sést innrásarkarið sem keypt var til Skagastrandar til að nota í hafnargarðinn (Útgarð). Karið kom hingað í júlí 1948 og var þá sett í geymslu þarna sem sést á myndinni. Í desember brotnaði karið og ef myndin er skoðuð vel sést að karið er brotið í tvennt. Karið var síðan notað til að lengja hafnargarðinn eftir mikið japl og jaml og fuður. Þar hefur það verið til endalausra vandræða því það misseig og á það komu göt neðan við sjávarmál. Einnig hefur komið í ljós að verksvik hafa verið stunduð við smíði þess því járnið, sem átti að binda sem stoðgrind í veggjum karsins, var bara skellt í stórum búntum ofan í steypuna og gerði því lítið gagn. Báturinn á myndinni, sem er að koma úr róðri, er Stígandi Hu 9 sem var í eigu Bjarna Helgasonar frá Holti

055
Ósk Þorleifsdóttir Efri-Harrastöðum við heyskap. Í baksýn eru gömlu fjárhúsin á Efri-Harrastöðum
Jón Jónsson 119
Frágangur við topp kirkjuturnsins á Hólaneskirkju.
040
Jóhanna Gunnlaugsdóttir á hlaðinu á Efri-Harrastöðum í Skagahreppi
Guðrún Guðbjörnsdóttir025
Gylfi Sigurðsson og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) (með húfu) salta grásleppuhrogn.
30680026
Á miðri mynd er Gunnar Albertsson vélstjóri á Húna HU-1. Drengurinn sem situr er Sigurjón Ástmarsson, Sigmar Jóhannesson er við löndunartunnuna.
Ólafur Bernódusson006
Hrólfur Pétursson vinnur við uppslátt á tröppum sunnan á Bjarmanesi 2003 eða 2004
Jón Jónsson122
Steypuvinna við nýju kirkjuna
hem026
Réttardagur í óþekktri rétt.
mundi538
Hér eru skagstrendingar á ferðalagi. Á myndinni eru frá vinstri: Páll Jónsson (.d.19.7.1979) skólastjóri, Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) frá Vík, Hafsteinn Jónasson (d.11.6.1975) frá Njálsstöðum (seinna Sæbóli), Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) frá Bjarmalandi, Guðlaugur Guðlaugsson (d.8.7.1990) og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004).
067
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir (eldri), Sigurður Magnússon (Siggi pípa), Sigmar Hróbjartsson með barn í fanginu, ?Laufey Helgadóttir?, Haraldur Hróbjartsson, óþekkt kona og óþekkt lítil stúlka en drengurinn er sennilega Bragi Þór Haraldsson. Stúlkan lengst til hægri er Bergdís Sigmarsdóttir. Myndin er tekin á Hólabrautinni á Skagaströnd
Sigmar Hróbjartsson - safn015
Myndin er tekin á Hólanesinu sennilega á sjómannadegi. Húsið sem sést í lengst til vinstri er Árnes en hvíta stóra húsið með áletruninni er Hólaneshúsið. Miðnes og Bláland eru á milli þeirra.
066
Sigmar Hróbjartsson með hestinn Grána
mundi613
Ferming í Hólaneskirkju eldri 14. maí 1972, skrúðgangan í kirkjuna. Fremst er Díana Kristjánsdóttir en á vinstri hönd við hana er Laufey Berndsen og sést í Svanfríði Sigurðardóttir hægra megin.
30680021
Vilhjálmur Skaftason í löndunarkrananum
050
Jónína Benediktsdóttir og Sigvaldi Sigvaldason, Harrastöðum ca 1949
mundi622

Myndin er tekin ofan af svölum á dansleik í Fellsborg. Fv. að dansa: Elínbjörg Kristjánsdóttir og Ingimar ST Guðmundsson, Stefán Jósefsson( í bleikri skyrtu) og Bjarney Valdimarsdóttir t.h. í rauðu pilsi.

000
Jón Vilhjálmsson (d.31.8.201) frá Brandaskarði u.þ.b. átta ára.
30600021
Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum við beykistörf.
Guðrún Guðbjörnsdóttir011
Jón Ingi Ingvarsson stjórnar reiptogi á sjómannadegi. Á reipinu má sjá Jóhann Björn Þórarinsson. Til vinstri, meðal áhorfenda, má þekkja Kristin Jóhannsson (með gleraugu) og Sveinbjörn Blöndal
30680008
Húni HU-1 í höfn á Skagaströnd með síldarfarm. Nótabáturinn liggur utan á.
mundi577
Þorfinnur Bjarnason (d.6.11.2005) oddviti í ræðustól í Fellsborg.
30680023
Síldarævintýri. Saltað í fjörtíu plássum á hafnarplaninu í Skagstrandarhöfn.
mundi564
Ókunnugt fólk á ókunnum stað
033
Heimir Sigmarsson í snjó
Guðrún Guðbjörnsdóttir013
Kappróður á sjómannadegi á hafísári. Í baksýn (lengst til hægri) má sjá að verið er að byggja ker í karaslippnum
Jón Jónsson123
Nýja kirkjan steypt. Gamla kirkjan í baksýn.
008
Guðmundur Guðnason í Ægissíðu, póstur á Skagaströnd. Mynd tekin ca 1939
021
Ingibjörg Daníelsdóttir Búrfelli, Erlendur Hallgrímsson Tungunesi, Þórey Daníelsdóttir Búrfelli
mundi568
Signý Gunnlaugsdóttir (d.4.5.2015) hjá ömmu sinni Signý Benediktsdóttur frá Balaskarði.
Gunnar Jónsson005
Mokafli um borð í Örvari Hu 14 einhverntíma á árunum 1971- 1973
Guðmundur Guðnason688

Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Inga Stefánsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Jósef Sigurðsson. Þrjú barnanna voru börn Sigurðar Magnússonar og Dórotheu Hallgrímsdóttur frá Hólanesi. Inga dvaldi hjá þeim hjónum á táningsárum sínum.

Guðrún Guðbjörnsdóttir021
Tunnuleikur á sjómannadegi. Jón Pálsson skólastjóri skríður í gegnum tunni og blæs í blöðru í leiðinni. Meðal áhorfenda má þekkja Helgu Berndsen, og Guðrúnu Sigurðardóttur. Drengurinn með gleraugun á milli þeirra er Jón Hallur Pétursson og ungi maðurinn aftan við hann er Árni Björn Birgisson.
Guðmundur Guðnason700
Myndin er tekin í Spákonufellsrétt. Stúlkan í köflóttu skyrtunni er Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi og ljóshærða stúlkan er Guðbjörg Kristinsdóttir. Skeggjaði maðurinn með húfuna er Einar Haraldsson fá Kjalarlandi (seinna í Dagsbrún). Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Bernódus Ólafsson og til hægri við hann er Jóhann Jakobsson.
1

21
22
23

167
Leita í myndasafninu
Leita