Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
guðmundur004
Frá vinstri: Laufás, Melstaður, Réttarholt og Ægisíða. Í baksýn er Sólvangur. Myndin er tekin á hafísári því íshrafl er á víkinni fram undan Sólvangi.
Óþekkt087
Snjótroðarinn á ferð í skafrenningi og miklum snjó á Túnbraut.
guðmundur009
Mynd af útbænum á Skagatrönd tekin af Höfðanum. Helmingur húsanna á myndinni eru nú horfin.
Óþekkt105

Veisla á hótel Dagsbrún 1991 til að fagna verklokum við smíði Sægarðs. Við borðið fremst á myndinni eru, frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Birgir Árnason (snýr baki í myndavélina), Ólafur Bernódusson og Magnús Blöndal. Við borðið þar fyrir aftan eru, frá hægri: Rúnar Jóhannsson, Sigurjón Ástmarsson, óþekktur og Lúkas ?? kranastjóri. Við borðið til vinstri má þekkja Viggó Brynjólfsson. Maðurinn í röndótta bolnum er vertinn á hótel Dagsbrún, Steindór Rúniberg Haraldsson. Aðrir eru óþekktir.

Guðmundur132
Þorrablót í Fellsborg. Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson og Þorvaldur Skaftason skemmta ásamt fleirum.
Óþekkt116
Helgi Gunnarsson vinnur að frágangi lóðarinna við Hólaneskirkju.
Guðmundur088
Lárus Ægir Guðmundsson í ræðustól við Hafnarhúsið á sjómannadegi.
Guðmundur034

Innst eru Sigríður Guðnadóttir (d.4.3.1964) og Páll Jónsson (d.19.7.1979)skólastjóri næst honum er Þorfinnur Bjarnasson (d.6.11.2005), Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974), Kristinn Pálsson (d.21.10.2008) , Björgvin Jónsson (d.4.5.1992) ,Hallbjörn Hjartarsson og síðast er Ingólfur Ármannsson. Fólkið til vinstri er óþekkt og tilefni samsætisins er einnig óþekkt.

Guðmundur094
Sigmar Jóhannesson, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir baksvipurinn gæti verið Lárus Ægir Guðmundsson
Guðmundur127
Arnar Hu 1 að koma til hafnar, fyrir framan má sjá byrjunarframkvæmdir við byggingu á frystiklefa Hólnesfrystihússins á uppfyllingu við Skúffugarðinn.
Guðmundur067
Á myndinni sést gamla Tunnan sem seinna varð Spákonuhof. Hafði áður þjónað sem samkomuhús, íþróttasalur, kvikmyndahús og áhaldahús sveitarfélagsins. Við hlið Tunnunnar eru leyfarnar af gamla hafnartrukknum en í baksýn sér í Ólafsvelli (Náttbrún) og raðhúsið við Suðurveg 2 - 8. Yfir Tunnuna til vinstri sér í hornið á Iðavöllum.
Guðmundur080
Hér er glatt á hjalla í Fellsborg. Fólkið sem þekkist á myndinni er frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, Gunnar Sveinsson, Jakob Guðmundsson á Árbakka og Sigurður Bjarnason frá Bjargi. Aftan við Sigurð og til hægri sér í Guðrúnu Guðbjörnsdóttur og Helgu Hermannsdóttur á Árbakka.
guðmundur160
Á þessari mynd er stund milli stríða hjá verkamönnunum sem halla sér upp að jarðýtutönninni í smá pásu. Eftir bakgrunninum að dæma er verið að vinna við lagningu Vetrarbrautarinnar norðan við núverandi byggð á Skagaströnd. Maðurinn lengst til hægri í fremri röð er Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) póstur og ljósmyndari frá Ægissíðu. Við hlið hans er Ágúst Jakobsson (d. 1.6.1989) í Blálandi en aðrir eru óþekktir. Takið eftir bókelska manninum, hann nýtir pásuna í vinnunni til að líta í bók ! Myndin hefur líklega verið tekin um 1950. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Óþekkt125
Kirkjukórar Hólaneskirkju og Blönduóskirkju syngja í veislu í Fellsborg vegna byggingar nýrrar kirkju á Skagaströnd
Guðmundur050
Kirkjukórinn syngur undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar í óþekktu kaffisamsæti í Fellsborg.
Guðmundur098
Fjöldasöngur í skátaskálanum sennilega í afmæli Guðmundar Guðnasonar (d.28.11.1988). Frá vinstri má þekkja: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur, Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006), Guðbergur Stefánsson (d.15.9.1991), óþekkt, Sófus Guðmundsson (d.2.8.1991) frá Skrapatungu, óþekkt, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016). Svo koma sex óþekktar manneskjur. Þá sést í hálft andlit Lárusar Ægis Guðmundssonar yfir höfuð Helga Ólafssonar frá Hvammstanga síðan Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Bjarney Valdimarsdóttir, Jón Pálsson og Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007).
Óþekkt115
Baldur Haraldsson múrari vinnur við flísalögn í Hólaneskirkju.
Guðmundur121
Við borðið fremst á myndinni eru:Óskar Axelsson, Þorgerður Guðlaugsdóttir og Bjarney Valdimarsdóttir. Við næsta borð sér aftan á Eðvarð Hallgrímsson og Helgu Guðmundsdóttur þá eru líka við borðið Gunnlaugur Sigmarsson, Steinunn Friðriksdóttir og Jón Kr. Jónsson. Á næsta borði þar fyrir aftan má þekkja Guðrúnu Sigurðardóttur og Fríðu Hafsteinsdóttur.
Guðmundur090
Sjómannadagur á Skagaströnd. Heiðrun sjómannadagsins fer fram um borð í Örvari Hu 21 sem notaður var sem svið þennan dag. Þarna er Lárus Ægir Guðmundsson í ræðustól að heiðra Björn Sigurðsson frá Jaðri (vinstra megin) og Bernódus Ólafsson. Ábúðafulli maðurinn fremst á myndinni er Guðbjartur Guðjónsson í Vík.
Guðmundur134

Afgreiðslan á pósthúsinu. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir póstmeistari til hægri en Ása Jóhannsdóttir situr við símaskiptiborðið.

Guðmundur119
Helgi Ólafsson, Anna Skaftadóttir og Kristján Hjartarson syngja saman í veislu í skátaskálanum. Við hljóðfærið er Guðmundur Gunðnason
guðmundur156
Kristín Lúðvíksdóttir frá Steinholti 8 - 10 ára gömul.
guðmundur012
Hér er Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari í fullum skrúða á pósthjólinu fyrir utan heimili sitt að Ægissíðu.
Guðmundur049
Óþekkt kaffisamsæti í Fellsborg. Kvartett syngur fyrir gesti. Lengst til vinstri í kvartettnum er Sigurður Bjarnason og annar frá hægri er Sigmar Jóhannesson. Hinir söngmennirnir eru óþekktir.
Jón074
Erna Berglind Hreinsdóttir með dóttur sína Heiðu Berglindi Fannarsdóttir við vígslu slippsins 1985. Í baksýn má sjá Sigfús Jónsson sveitarstjóra.
Óþekkt090
Hallbjörn Hjartarson skemmtir á afmælishátíð í tilefni af 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989.
Snorri001
Arnar Hu 1 frá Skagaströnd.
Óþekkt112
Hér er prédikunarstóllinn úr Hólaneskirkju eldri sem var í notkun frá 1928 til október 1991 en kirkjan var rifin skömmu síðar. Hún var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni. Prédikunarstóllinn er nú geymdur í kjallara núverandi Hólaneskirkju.
Guðmundur113
Myndin er tekin af hlaði Ægissíðu sem var heimili ljósmyndarans Guðmundar Gunasonar. Til hægri sést Sólvangur en Ásholt til vinstri. Milli þeirra eru fjár- og hesthús.
Guðmundur036

Leikritið "Klerkar í klípu" sýnt í Tunnunni. Maðurinn til vinstri er Gunnar Benónýsson en hinn maðurinn er Friðjón Guðmundsson. Konurnar eru Björg Ólafsdóttir og Guðný Sigurðardóttir. Leikritið var sýnt við vinsældir á Skagaströnd lílklega veturinn 1969 undir leikstjórn Birnu Jónsdóttur Blöndal.

Guðmundur054
Aðpalheiður Guðmundsdóttir flytur ræðu á sviðinu í Fellsborg af ókunnu tilefni.
Óþekkt061
Hreppsnefndarfólk, ásamt mökum, úr Skagahreppi (nú Skagabyggð) og Höfðahreppi (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) bíða komu Vigdísar Finnbogadóttur forseta á Hnappstaðatúni á Skagaströnd árið 1988. Við þetta tækifæri gróðursetti frú Vigdís nokkur tré á svæðinu sem enn standa. Frá vinstri: Jónas Hafsteinsson Njálsstöðum, Óþekkt, Jakob Guðmundsson Árbakka, Kristján Kristjánsson og Árný Hjaltadóttir frá Steinnýjarstöðum, Ingibjörg Ólafsdóttir og Rafn Sigurbjörnsson frá Örlygsstöðum, María Kristjánsdóttir og Sveinn Sveinsson frá Tjörn, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Kristín Sigurðardóttir, Sigurbjörn Kári Lárusson, Herborg Þorláksdóttir og Axel Hallgrímsson öll frá Skagatrönd
Guðmundur078

Frá vinstri: Sigrún Lárusdóttir, Helga Hermannsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Eðvarð Hallgrímsson, Sigurður Bjarnason

Guðmundur091
Skemmtiatriði á sjómannadegi um borð í Örvari Hu 21 sem var notaður sem svið. Skemmtikraftarnir eru óþekktir en voru allir heimamenn á Skagatrönd.
Guðmundur145
Hólaneskirkja, sú gamla, á messudegi. Sér í byrjunarframkvæmdir við þá nýju framan við gömlu kirkjuna.
Guðmundur140
Kaffiveisla í Skátaskálanum sennilega í tilefni af 60 ára afmæli Guðmundar Guðnasonar (d.21.11.1988). Á myndinni má þekkja Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) næst okkur. Guðbergur Stefánsson (d.15.9.1991) situr við næsta borð og konan í bláa kjólnum er líklega Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007).
Guðmundur138
Kaffiveisla í Skátaskálanum sennilega vegna 60 ára afmælis Guðmundar Guðnasonar. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Allar sungu þær í kirkjukór Hólaneskirkju með Guðmundi.
Guðmundur133
Á myndinni sjást á sviðinu í Fellsborg talið frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson og Þorvaldur Skaftason að syngja. Milli Ástmars og Ólafs eru líklega systurnar Hallbjörg og Sigrún Jónsdætur
Guðmundur116
Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) á sviðinu en sr. Pétur Ingjaldsson (d.1.6.1996) stendur við ræðustólinn. Í forgrunni myndarinnar má þekkja Bjarney Valdimarsdóttur og Jón Ísberg (d.24.6.2009) sýslumann. Myndin var tekin í kveðjuhófi þegar sr. Pétur lét af störfum sem prestur.
Guðmundur064
Kjörstjórn að störfum á kjörstað í Fellsborg. Frá vinstri: Guðmundur Rúnar Kristjánsson, Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007) og Kristófer Árnason (d.10.5.2000).
Guðmundur130
Skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg í gangi. Á sviðinu eru frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Ástmar Kári Ástmarsson og Ólafur Bernódusson. Konurnar eru óþekktar.
guðmundur007
Vetrarmynd af Skagaströnd tekin af Höfðanum.
Óþekkt029
Viggó Magnússon, Magnea Harðardóttir, Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir með Jón Atla og Pétur Eggerts á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989
guðmundur163

Einar Guðjónsson (f. 26. 6.1887 - d. 1. 2.1961). Einar var sonur hjónana Guðjóns Einarssonar og Lilju Pétursdóttur, er voru bændur á Efri-Harrastöðum í Skagahreppi. Þau hjón komu frá Munaðarnesi á Ströndum. Kona Einars var Ingibjörg Tómasdóttir, og áttu þau einn son sem hét Guðjón og á hann afkomendur. Einar var bróðir Andrésar kaupmanns sem var lengi verslunarmaður á Skagaströnd.

guðmundur214
Hólaneshúsið sennilega á sjómannadegi. Óþekktur ræðumaður talar af svölum hússins.
Óþekkt113
Altaristafla og altari Hólaneskirkju eldri.
Óþekkt107
Veisla á hótel Dagsbrún til að fagna verklokum við smíði Sægarðs 1991. Á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Rolf Árnason tæknifræðingur, Aðalsteinn Aðalsteinsson verkstjóri, Adolf J. Berndsen oddviti, Elín Njálsdóttir hreppsnefndarmaður og Þorvaldur Skaftason hreppsnefndarmaður
Guðmundur079

Við borðið næst okkur eru frá vinstri: Friðjón Guðmundsson Lækjarhvammi, Hulda Árnadóttir kona hans, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekkt, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Kristján Hjartarson í Grund. Við borðið fjær eru Bára Þorvaldsdóttir og Helga Guðmundsdóttir. Þá má líka sjá baksvipina á Sigurði Bjarnasyni, Eðvarð Hallgrímssyni og Gunnari Sveinssyni. Tilefni veisluhaldanna er óþekkt.

Óþekkt124
Julian Hewlett á píanó og Skarphéðinn Einarsson á trompet í hófi vegna byggingar nýrrar Hólaneskirkju. Áheyrendur eru frá vinstri: Pálmi Jónsson Alþingismaður, Helga Sigfúsdóttir kona hans og Ragnheiður Sigurjónsdóttir. Aðrir við borðið eru óþekktir. Við næsta borð eru Guðbjörg Viggósdóttir og Linda Kristjánsdóttir.
Guðmundur033
Presturinn og gestur flýta sér til messu í Hólaneskirkju.
Guðmundur108
Fremst á myndinni er Sigríður Gestsdóttir og fyrir aftan hana má sjá Helgu Guðmundsdóttur. Guðrún Berndsen stendur á myndinni.
Guðmundur125
Ekki er vitað hvað vekur svona mikla athygli fólksins á myndinni. Frá hægri má þekkja: Hrafnhildur (Abbý) Jóhannsdóttir, Björk Axelsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, óþekktur, Sigurjón Guðbjartsson, María Magnúsdóttir og Elínborg Kristmundsdóttir. Myndin er tekin í Fellsborg.
guðmundur199
Guðmundur Guðnasson póstur og ljósmyndari kominn á hestbak tilbúinn til ferðalaga. Myndin er sennilega tekin fyrir utan Hvamm í Laxárdal, en Guðmundur ólst upp hjá foreldrum sínum á nokkrum bæjum í dalnum. Myndin er sennilega tekin á fimmta áratugnum því Guðmundur og foreldrar hans fluttu frá bænum 1948 til Skagastrandar.
guðmundur219
Þarna er verið að vinna í 5 punda pakkningar í gamla Hólanesfrystihúsinu. Sylvía Hrólfsdóttir er lengst til vinstri og Teitný Guðmundsdóttir við hlið hennar. Sigurður Magnússon verkstjóri er fyrir innan. Konan með köflótta höfuðklútinn lengst til hægri er Jóhanna Vilbjörg Bertelsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur069
Á myndinni sjást framkvæmdir við byggingu nýrrar Hólaneskirkju einhverntíma á níunda áratugnum.
Óþekkt086
Bíll á kafi í snjó fyrir utan skólann. Bílinn átti Einar Haukur Arason, sem var húsvörður í skólanum þegar myndin var tekin og bjó í íbúð, sem þá var í norðurenda skólans. Í baksýn sér í hornið á palli Volvo vörubíls Harðar Ragnarssonar. Barnið á myndinni er óþekkt.
guðmundur178
Myndin er tekin á Ráðhústorginu á Akureyri. Sennilega 17. júní Þarna sést niður Strandgötuna með Nýja Bíó til hægri. Mynd sennilega tekin á árunum milli 50 og 60
guðmundur216
Hólaneskirkja (eldri) stóð mjög nærri þeim stað sem núverandi kirkja er. Kirkjan þjónaði Skagstrendingum frá 1928 - 1991.
Óþekkt104
Veisla á hótel Dagsbrún til að fagna verklokum við gerð Sægarðs. Skeggjaði maðurinn til vinstri er Þorvaldur Skaftason. Við borðið í forgrunni myndarinnar sitja, frá vinstri: Magnús Blöndal, Birgir Árnason, Ólafur Bernódusson (snýr baki í myndavélina) og Árni Björn Ingvarsson. Rolf Árnason sést yfir höfuð Magnúsar og Hjalti Indriðason sést á milli Ólafs og Árna. Aðrir eru óþekktir.
Óþekkt102
Veisla á hótel Dgsbrún vegna verkloka við Sægarð 1991. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús, B. Jónsson, óþekktur, Sveinn Ingólfsson og Rolf Árnason.
1
2
3
4
5

167
Leita í myndasafninu
Leita