Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
guðmundur186
Markið skoðað í réttunum.
Jón064
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti og Ástmar Kári Ástmarsson inni í spilhúsinu við vígslu dráttarbrautarinnar 1985
Guðmundur068
Byrjunarframkvæmdir við byggingu söluskála Olís (sjoppunnar) á Skagaströnd. Myndin tekinn einhverntíma á áttunda áratugnum.
Óþekkt119
Séra Egill Hallgrímsson heldur tölu í veislu til að fagna byggingu nýrrar Hólaneskirkju. María Alexandersdóttir og Linda Kristjánsdóttir hlusta á Egil.
Guðmundur103
Sigfús Jónsson sveitarstjóri flytur ræðu í Fellsborg af óþekktu tilefni.
Guðmundur042
Kristján Hjartarson syngur á óþekktir samkomu í Fellsborg.
Guðmundur105
Þessi mynd var tekin á hótel Dagsbrún einhverntíma á árunum 1987 - 1990 en það er sá tími sem séra Ægir þjónaði á Skagaströnd. Sigurður Bjarnason er lengst til vinstri síðan Hörður Ragnarsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir og séra Ægir Sigurgeirsson og Þorgeir Jónsson
Guðmundur151
Kristín Kristmundsdóttir talar við séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) við óþekkt tækifæri í Fellsborg. Í baksýn má sjá Guðmann Magnússon (d.22.11.2000) bóndi á Vindhæli og óþekkta konu. Lengst til hægri eru feðgarnir Hörður Aðils Vilhelmsson og Vilhelm Björn Harðarson.
Guðmundur086
Örvar Hu 21 í fyrsta sinn í heimahöfn 1982. Hópur fólks um borð að skoða hið nýja skip.
guðmundur179
Húnn Snædal bróðursonur Guðmundar ljósmyndara. Myndin er líklega tekin í fjörunni í víkinni hjá Arnarstapanum í Höfðanum.
guðmundur192
Á myndinni er Fosshóll og brúin við Goðafoss yfir Skjálfandafljót. Þessi brú á Skjálfandafljót var byggð 1930, kom í stað gamallar hestabrúar frá 1882 og var á aðalveginum upp á Fljótsheiði fram til 1972.
Brúin var rækilega tekin í gegn í lok 10. áratugarins og þjónar í dag sem göngubrú yfir að útsýnissvæðinu við Goðafoss. Myndin tekin laust eftir stríðið.
Guðmundur143
Kaffiveisla í Skátaskálanum sennilega í tilefni 60 ára afmælis Guðmundar Guðnasonar (d.21.11.1988) pósts og ljósmyndara. Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Kári Lárusson sambýlismaður hennar, Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) í Ási, móðir Kára. Lengst til hægri er svo Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020)frá Kárastöðum en hún er móðir Kristínar.
Guðmundur092
Frá vinstri á myndinni eru: Bára Þorvaldsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Hörður Ragnarsson. Konan sem snýr baki í myndavélina er sennilega Guðrún Guðbjörnsdóttir.
Elísabet015
Þuríður Haraldsdóttir, Hermann Haraldsson og Árni Haraldsson á lítla Bergi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum1940.
Guðmundur104
Á myndinni eru frá vinstri talið: Jóna Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Ólafur Ingibjörnsson,Hörður Ragnarsson, Kristín Kristmundsdóttir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016),Ingibjörg Kristinsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir
Guðmundur144
Að lokinni einhverri samkomu í Fellsborg heldur fólk til síns heima. Bílaflotinn bíður þolinmóður eftir eigendum sínum.
Snorri007
Örvar Hu 21 frá Skagaströnd á siglingu. Þetta skip var fyrsti frystitogari Íslendinga.
Elísabet039
Skagastrandarhöfn sennilega 1946 eða ´47
Snorri006
Örvar Hu 21 frá Skagaströnd á siglingu. Þetta skip var fyrsti frystitogari Íslendinga.
Óþekkt100
Jón044
Þórarinn (Diddi) K. Þórsson býr sig undir að taka þátt í kappróðri á sjómannadegi 1985
guðmundur203
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari með hrútinn sinn fyrir utan fjárhúsin. Myndin var sennilega tekin kringum 1950.
guðmundur223
Harpa Friðjónsdóttir
guðmundur182
Fyrir miðri mynd er Björn Sigurbjörnsson í Hlíð. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
hem038

Veturinn 1918 var einn hinn kaldasti sem kom á síðustu öld. Hafís þakti Húnaflóa þannig að ekki var hægt að sækja sér björg úr sjónum. Fólk frá Skagaströnd gat gengið á ísnum a.m.k. inn að Laxá í Refasveit án þess að óttast mikið að detta í vök á milli jaka. Í þessu ástandi var það því mikið fagnaðarefni þegar uppgötvaðist að fimm hvalir voru fastir í vök fram af Ytri-Ey. Þeir voru fastir þar því þeir gátu hvergi annarsstaðar komið upp til að anda. Hvalirnir voru allir drepnir í vökinni og dregnir upp á ísinn þar sem gert var að þeim og fólk gerði sér mat úr þeim. Fólk kom víða að framan úr sveitum til að fá kjötbita og fleira sem hægt var að nýta úr hvölunum. Beinunum og öðru sem ekki var notað var síðan velt ofan í vökina aftur. Á þessari einstöku mynd er fjöldi manns að vinna við að drepa og gera að einum hvalnum úr vökinni. Ein regla var sett á Skagaströnd fyrir þá sem gengu inn að vökinni en hún var sú að menn máttu ekki vera einir á ferð því þrátt fyrir allt gat alltaf komið fyrir að menn færu niður úr ísnum. Það var einmitt það sem kom fyrir mann sem var samferða þeim Steingrími Jónssyni frá Höfðakoti og Ernst Berdsen frá Karlsskála. Nafn mannsins er ekki þekkt en hann datt sem sagt í sjóinn gegnum hema yfir smá vök þegar þeir þremenningarnir voru komnir u.þ.b. hálfa leið frá Skagaströnd inn að Eyjarey. Ernst og Steingrímur drógu manninn upp og fylgdu honum til baka. Stóð það á endum að hann komst heim því þá voru fötin hans orðin svo stokkfreðin að hann var hættur að geta hreyft sig. Þegar heim kom voru fötin dregin af manninum og hann háttaður í rúmið og heitt vatn í flöskum sett undir sængina hjá honum. Ekki varð manninum meint af slysinu og var kominn á hvalskurðinn daginn eftir (skráð eftir
Guðmundur055
Hildigunnur Jóhannsdóttir flytur ræðu á sviðinu í Fellsborg
Guðmundur153
Veisla á Hótel dagsbrún af óþekktu tilefni. Á myndinni eru frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), Guðrún Angantýsdóttir, Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) og óþekkt kona.
guðmundur210

Konráð Guðmundsson (Konni litli) frá Garðhúsum (Konnabæ)

Guðmundur095
Fjöldasöngur í kaffiveislu í Skátaskálanum
Snorri001
Arnar Hu 1 frá Skagaströnd.
Guðmundur139
Kaffiveisla í Skátaskálanum sennilega í tilefni af 60 ára afmæli Guðmundar Guðnasonar (d.21.11.1988). Á myndinni eru frá vinstri: Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Guðmundur Guðnason (snýr baki í myndavélina), Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001), Þorgeir Jónsson og séra Oddur Einarsson. Í baksýn, við næsta borð, má sjá Kára Lárusson og Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989).
Guðmundur137
Kaffiveisla í Skátaskálanum sennilega vegna 60 ára afmælis Guðmundar Guðnasonar. Á myndinni eru frá vinstri: Bjarney Valdimarsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og Ásgeir Axelsson frá Litla-felli, Þorgerður Guðlaugsdóttir og Óskar Axelsson frá Ásholti.
Guðmundur037
Þessi fjárhúskofi tilheyrði Ægissíðu þar sem Guðmundur Guðnason ljósmyndari þessarar myndar átti heima.
guðmundur025
Kappróður á sjómannadegi. Húsið fyrir miðri mynd sem ber yfir kappróðarabátinn til hægri hét Karlsminni en húsið lengst til hægri var Viðvík en þar var rekin greiðasala og gistihús í gamla daga.
guðmundur013
Sigríður Friðriksdóttir frá Úlfagili í Laxárdal sem var lengi heimilisföst í Skrapatungu og hafði kindur sínar í torfkofa sem stóð fast við veginn niður að Skrapatungurétt.
Guðmundur097
Myndin er tekin í eldhúsinu á gamla skátaskálanum. Á myninni eru, talið frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d.28.11.1988), Elín Njálsdóttir, Anna Skaftadóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Ása Jóhannsdóttir og Helga Ottósdóttir. Sitjandi fyrir framan er María Konráðsdóttir (d.9.8.2003).
Guðmundur083
Sjósund í höfninni á sjómannadegi.
Guðmundur111
Frá vinstri á myndinni eru: Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012), sr. Pétur Ingjaldsson (d.1.6.1996), hjónin Kristín H. Kristinsdóttir og Guðlaugur Þorvaldsson (d.25.3.1996) forsetaframbjóðandi. Við næsta borð situr Ása Jóhannsdóttir
guðmundur031
Guðni Sveinsson faðir Guðmundar ljósmyndara og pósts. Húsið í baksýn er Ægissíða þar sem Guðni bjó ásamt konu sinni Klemensínu Klemensdóttur og Guðmundi syni sínum.
Snorri004
Arnar Hu 1 á siglingu.
Guðmundur052
Kirkjukórinn syngur á sviðinu í Fellsborg undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar. Frá vinstri í kórnum eru: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sævar Bjarnason, Guðrún Guðbjörnssdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, óþekktur, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Elísabet Árnadóttir.
Guðmundur152
Veisla í Fellsborg af óþekktu tilefni. Frá vinstri: Snorri Gíslason (d. 29.5.1994), Jón Hallur Pétursson, Vilhelm Harðarson og Hafdís Hanna Ægisdóttir.
guðmundur202
Willys-Jeep H 228. Þessi bíll var í eigu Sigmars Ólafssonar frá Brandsstöðum. Bíllinn var sennilega árgerð 1953 eða 54 en bílar af þessari gerð voru kallaðir Ísraelsjeppar. Þeir voru frábrugðnir eldri jeppum í útliti því húddið var hærra til að koma fyrir toppventlavél. Willis jeppar fylgdu innrásarliðinu á hernámsárunum eftir 1940 og urðu tiltölulega algengir á landinu næstu áratugina eftir stríð.
Guðmundur099
Dansleikur í félagsheimilinu á Blönduósi. Á myndinni má þekkja Skagstrendingana Huldu Árnadóttur (d.14.2.2007) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000).
Guðmundur038
Spákonufell með skemmu við Ægissíðu í forgrunni.
Guðmundur096
Á myndinni er sr. Oddur Einarsson að halda ræðu. Á myndinni má þekkja, frá vinstri. Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001), baksvipurinn á Huldu Árnadóttur (d.14.2.2007), Guðmundur Guðnason (d.28.11.1988), Oddur Einarsson, óþekkt, Sigrún Guðmundsdóttir, Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011). Maðurinn fremst á myndinni er Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017).
guðmundur201
Unnið að lagningu Vetrarbrautarinnar norðan við þorpið. Maðurinn á jarðýtunni er óþekktur. Myndin er tekin fyrir 1950.
Guðmundur149
Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) les upp í Fellsborg.
Guðmundur117
Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990) , Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989), Jóna Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Anna H. Aspar (d.1.9.1999).
guðmundur157
Willys Overland jeppi líklega í eigu Ingva Guðnasonar (d.31.12.1991) frá Ægissíðu. Myndin var tekin á götunni framan við Ægissíðu.
Guðmundur147
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003)spilar á harmonikuna á Hótel Dagsbrún. Tilefnið og tímasetningin eru óþekkt.
guðmundur177
Óþekkt samkoma við kirkjuna á Hólum í Hjaltadal
guðmundur171
Krakkarnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Ingþór Þorfinnsson, Jón Örn Berndsen, Frits Bjarnason, Sigrún Kristófersdóttir, Gunnbjörn Berndsen og Sigurður Bjarnason.

guðmundur165
Stúlkan á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
guðmundur222
Frá vinstri á þessari jólamynd eru: Guðríður Bergsdóttir Skjaldbreið, Guðmunda Árnadóttir Flankastöðum, Helga Kristjánsdóttir Bogabraut 9 og Sigríður Helgadóttir í Skálholti.

DSC04925 b
35 ára fermingarafmæli, á myndina vantar tvö af fermingarsystkininum. Efri röð frá vinstri: Hafþór Gylfason, Magnús Bergman Guðmannssson, Jósef Sigurðsson, G. Valdimar Valdimarsson, Hjálmfríður Bjarnadóttir, Lilja kristinsdóttir. Fremri röð: Ástmar Kári Ástmarsson, Guðrún Björg Berndsen, Þórey Jónsdóttir, Páll Jónsson og Ásdís Þórbjarnardóttir.
guðmundur015
Ólafur Guðmundsson frá Brautarholti (Óli Gón) og Þorfinnur Bjarnason. Tilefni myndatökunnar óþekkt.
guðmundur207
Einhver hátíðahöld á Akureyri. Tilefnið og tímasetning eru óþekkt.
Guðmundur074
Raðhúsin við Mánabraut í forgrunni. Í baksýn eru tveir bátar í slippnum.
Guðmundur077
Fólk frá Skagaströnd á ferð við minnismerki um Gretti Ásmundarson í Miðfirði. Á myndinni má þekkja Skafta Fanndal Jónasson og Elínborgu Jónsdóttur kennara. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1

4
5
6

167
Leita í myndasafninu
Leita