Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 189
Gripur nr. 189. Tréreglustika 40 cm löng. Hún er úr ljósum viði 3 cm breið. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn071
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið: Er þetta ekki mitt líf? árið 1983 undir leikstjórn Guðjóns Sigurvaldasonar. Þessi mynd var tekin á æfingu í Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri í hlutverkum sínum: Vilmundur Árnason, Þorvaldur Skaftason, Guðbjörg Viggósdóttir, Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson, Karl Lúðvíksson, Guðný Sigurðardóttir og síðast grillir í Magnús Blöndal (d. 7.9.2001).
Minjasafn 580
Gripur nr. 580. Lítil græn "Facit" reiknivél, handknúin.
Skagaströnd - safn397
Akraborg EA 50 var síldarbátur sem oftkom með síld til Skagastrandar. Hér er hann í höfn með báta í gálgum á báðum síðum. Ef grannt er skoðað má sjá að verið er að vinna að viðgerð á krananum í baksýn. Myndina tók Guðmundur Guðnason.
Minjasafn 81
Gripur nr. 81. Brúnn rammi með mynd af Sigurði Sölvasyni kaupmanni. Gefandi: Birgir Árnason.
Minjasafn751
Hjónin Jón Pálmason (d. 1.2.1973) þingmaður frá Akri og konan hans Jónína V. Ólafsdóttir (d. 3.1.1980). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi, Skagaströnd 1. desember 1994.
Minjasafn 416
Gripur nr. 416. Margnota, rauður, plast- eggjabakki sem hægt er að loka utan um 12 egg.
Minjasafn 170
Gripur nr. 170. Kertastjaki, sem er með svanshöfuð framúr og vængi til hliðar. Lengd 21 cm. Stendur svanurinn á smá stétt og er kertastjakinn úr gulllituðum málmi (látúni ?). Gefandi: Borghildur Jónsdóttir Álftamýri 40, Reykjavík. Hún er móðir Salóme Jónu Þórarinsdóttur Lundi Skagaströnd. Gefið í júlí 1994.
Minjasafn 490 no2
Gripur nr. 490. Hvít mjólkurkanna með upphleyptu munstri af blómum. Sprungin og skarð í efri brún.
Minjasafn 373
Gripur nr. 373. Tvö stykki ónotaðir rammar. Rammarnir eru viðarbrúnir með gyllingu yst. Átta form fyrir smámyndir eru í hvorum ramma. E.t.v. verið keyptir fyrir skipulag á fornmununum.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn021
1984 var skötuveislan á Þorláksmessu haldin í Skátaskálanum. Þá voru þessar veislur minni í sniðum en seinna varð. Á þessari mynd eru börn að leika sér eftir matinn. Frá vinstri á myndinni: Björgvin Karlsson, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og framan við hana eru Loftur Björgvinsson til vinstri og Guðjón Ebbi Guðjónsson til hægri.
Minjasafn 538
Gripur nr. 538. 11 stykki tré-þvottaklemmur af gamla laginu.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn092
Frá Kúvíkum í Reykjarfirði syðri á Ströndum.
Skagaströnd - safn384

Þetta er mynd af kirkjukór Blönduóskirkju. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar en fólkið á myndinni er, frá vinstri talið: Svanhildur Þorleifsdóttir (d. 13.4.1988), Anna Tryggvadóttir (d. 31.8.2007), óþekktur, Davía Guðmundson (d.17.1.1999), Kristófer Kristjánsson, Guðrún Ingimarsdóttir, Einar Guðlaugsson (d. 2.4.2008), Anna Árnadóttir, Jón Kristinsson, Þorgerður Sæmundssen, Einar Þorláksson og við orgelið er Sólveig Sövik. Stjórnandi kórsins er Guðmann Hjálmarsson.

Minjasafn 292
Gripur nr. 292. Kaffihitakanna. Stállituð með svörtum tappa, haldi og botni. Úr búi Sigríðar Björnsdóttur og Hrólfs Jakobssonar. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.
Minjasafn 346
Gripur nr. 346. Púði, ofið púðaborð, litir gult, grænt og karrýgult. Breiður bekkur eftir miðju, mjórri til sitt hvorrar hliðar. Ofið af Guðríði Ólafsdóttur. Á bakinu er mynd af dansandi pari, dýri, húsi, tré og fleiru. Utan um er flauelskantur, brúnn. Stærð 54 x 39 cm. Var í eigu Guðríðar Ólafsdóttur frá Höfðahólum, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 511
Gripur nr. 511. Skrautplatti. Sagaður út og límdur saman þannig að hann myndar tvö kirsuber/jarðaber. Plattinn er úr tré, dökkbrúnn.
Skagaströnd - safn387

Myndin var tekin við Hofskirkju vorið 1958 á fermingardegi þeirra Árnýjar Magneu Hilmarsdóttur frá Hofi og Guðmundar Kristjánssonar frá Steinnýjarstöðum.

Minjasafn 108

Gripur nr. 108. Stór glerflaska, one gallon, glær, hæð 31 cm, breiðust utan um. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.

Skagaströnd - safn398
Lagt af stað á miðin úr Skagastrandarhöfn með nótabátin aftaní. Báturinn er ÍS 106 en nafnið er óþekkt. Greinilega er ekki gert ráð fyrir löngu stími því að um borð í nótabátnum er maður. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1960 af Guðmundi Guðnasyni.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn138
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Þessi mynd var tekin á einni af fyrstu æfingum á verkinu af þeim Elínu Njálsdóttur til vinstri og Hallbjörgu Jónsdóttur til hægri.
Minjasafn 54
Gripur nr. 54. Lítil mynd af Einari Jónssyni frá Óseyri á Skagaströnd í ramma. Gefandi: Ólafur Ásgeirsson frá Höfðahólum.
Minjasafn 359
Gripur nr. 359. Myndavél. "Braunoptik" stendur á linsunni. "Imperial" stendur framan á henni. Svört á litinn. Brún leðurtaska fylgir með.
Minjasafn 602
Gripur nr. 602. Skrifpúlt með lokuðu hólfi undir. Skúffulaga, málað myntugrænt. 13 cm þar sem það er dýpst, 38 cm langt og 39 cm breitt. Er með skráargati.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn220
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Rúnar Loftsson sem þátt tók í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 550
Gripur nr. 550. Álspaði, steikingaspaði.
Skagaströnd - safn341
Hreppsnefnd Höfðahrepps 1982 - 1986 ásamt sveitarstjóra. Standandi frá vinstri: Magnús B. Jónsson fulltrúi Framsóknarflokks, Gylfi Sigurðsson fulltrúi Sjálfstæðisflokks og Guðmundur Haukur Sigurðsson fulltrúi Alþýðubandalags. Sitjandi frá vinstri: Elín Njálsdóttir fulltrúi Alþýðuflokks, Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri og Adolf J. Berndsen oddviti og fulltrúi Sjálfstæðisflokks.
Sigurður Jónsson - safn 001
Guðrún Björnsdóttir frá Mánaskál upphaflega frá Harrastaðakoti.
Minjasafn 622
Gripur nr. 622. Áldunkur, bleikdrappaður á lit, ferhyrndur 23 cm á hæð.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn185
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Magnús B. Jónsson sem starfaði að mörgum sýningum Leikklúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hann formaður klúbbsins 1977 - 1979.
Minjasafn 158
Gripur nr. 158. Kaffibox, hvítt merkt Coffee með blómamynd á. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd 1980.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn009
Myndin var tekin á jóla-barnaballi í Höfðaskóla um jólin 1962. Konan fremst á myndinni er Laufey Sigurvinsdóttir frá Litla Bergi og dóttir hennar K.Hrönn Árnadóttir í ný saumuðum kjól. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Minjasafn 7 no2
Gripur nr. 7. Náttserkur úr hvítu lérefti, lagður með milliverkum yfir brjóst og axlir. Síður. Einnig milliverk framan á ermum, sem eru langar. Unnið af Vilborgu Guðmundsdóttur frá Miðgili í Langadal. Gefandi: Elísabet Árnadóttir Réttarholti Skagaströnd.
Minjasafn 411
Gripur nr. 411. Járnstétt undan borðfánastöng. Þungur, þríhyrnings-/píramídalagaður, skreyttur með upphleyptum myndum s.s. af Íslandi, víkingaskipi, Maríu mey o.fl. Skrúfgangur er efst á stéttinni þar sem fánastöngin var skrúfuð á stéttina.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn099
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Lárus Ægi Guðmundsson sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins á sínum tíma. Auk þess var hann veislustjóri á þorrablótum á Skagaströnd í 25 - 30 ár fyrir hönd Leikklúbbsins. Eftir Lárus liggur líka bókin: Leiklist á Skagaströnd 1895 til 2015 sem, eins og nafnið bendir til , rekur sögu leiklistar á Skagaströnd þetta tímabil í máli og myndum.
Mindasafn 209
Gripur nr. 209. Skeifuhitamælir. Mælirinn er inni í skeifunni sem er grænleit með gylltum tökkum (hausar á hóffjöðrunum). Hæð 18 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd,
Skagaströnd - safn337
Eftir að nýja Hólaneskirkja hafði verið vígð 21. október 1991 var haldið kaffisamsæti í Fellsborg og þar var þessi mynd tekin. Frá vinstri: Torfhildur Stefánsdóttir, séra Oddur Einarsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir og Sigríður Gestsdóttir.
Minjasafn 650
Gripur nr. 650. Vigt úr stáli og áli, rauð á litinn, orðin allmikið ryðguð. Vigtar allt að 10 kg.
Minjasafn 74
Gripur nr. 74. Brúnn rammi með mynd af áhöfn á skipi. Skipið heitir Skröyfa. Gefandi: Helga Berndsen á Skagaströnd 6. maí 1996.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn012
Þessi mynd frá 1977 sýnir vel hvernig skíðaaðstaðan í Spákonufellinu var á þessum árum. Dráttarvél var notuð til að snúa spili með kaðli sem fór svo í gegnum blökk uppi á toppi brekkunnar. Fólk hékk síðan í kaðlinum á leið upp brekkuna. Bannað var að vera með trefil um hálsinn því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni upp og gat gripið í trefilinn og þannig hert að hálsi viðkomandi. Nokkrum árum eftir að þessi mynd var tekin var svo keypt toglyfta og sett í brekkuna norðan við þá sem lyftan á myndinni er í. Enn síðar var svo byggður skíðaskáli á svæðinu, sem enn stendur. Eins og sjá má á myndinni vantaði ekki áhugasamt skíðafólk til að nýta sér þessa frumstæðu aðstöðu á góðum dögum.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn002
Þessi mynd var tekin á jólaballi barna í Höfðaskóla senilega um jólin 1962. Fullorðna fólkið á myndinni er frá vinstri: Þórarinn Guðlaugsson (d.?), Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d. 6.3.2007), óþekkt, Páll Jónsson (d. 19.7.1979), Jensína ?, frá Brandaskarði (d. ?) og Guðrún B. Árnadóttir (d.?) sem leiðir son sinn Ólaf Ingibjörnsson. Aðrir eru óþekktir en ef þú veist meira um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 364
Gripur nr. 364. Pressujárn. Kassi eingöngu með pressujárn og fylgihlutum.
Minjasafn 369

Gripur nr. 369. Kökubox gamalt, stendur Tivoli á lokinu. Boxið er rautt en lokið er glært. Boxið er fullt af smáhlutum svo sem: belti, lítil skinnklípa með feldi, innstunga af gömlu gerðinni o.fl. Mögulega úr geymslu húsmóður?

Minjasafn 453
Gripur nr. 453. Líklega skurðarbretti úr ljósum við. Þrír svartir blettir eru á brettinu, sennilega brunablettir.
Minjasafn 353
Gripur nr. 353. Lítill hvítur tappi með járnfestingu, fyrir flösku.
Minjasafn 293

Gripur nr. 293. Kaffihitakanna, Termos, er til að halda heitu. Kannan er lítil, svört að neðan og hvít að ofan. Tappinn svartur. Blátt límband er á haldi. Gefandi: Hrólfur Jakobsson Skagaströnd í maí 1994.

Leikklúbbur Skagastrandar - safn180
Einhver fjölmennasta sýning Leikklúbbs Skagastrandar var Síldin kemur og síldin fer eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur en það verk var sett á fjalirnar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Bergþór Gunnarsson, Jón Arnarson, Viggó Magnússon, Ástmar Kári Ástmarsson og Þorvaldur Skaftason. Myndina tók Jónas Baldursson.
Minjasafn 488
Gripur nr. 488. Ljósapera - glópera - mjög stór, glær. Ummálið er 38 cm.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn064
Kristjana Jóhannsdóttir liðsmaður Leikklúbbs Skagastrandar
Minjasafn 370 no3
Gripur nr. 370. Tvær mjólkurflöskur úr glæru gleri. Á annarri stendur: Mjólkursamsalan 1. En á þeirri minni, sem er alveg eins, stendur: Mjólkursamsalan 1/2.
Guðmundur Guðnason 2 431

Óþekkta fólkið á myndinni lætur fara vel um sig utan við kirkju sem ekki er vitað hver er. Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða þekkir kirkjuna, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Minjasafn 589 no2
Gripur nr. 589. Stór glær glerflaska með stút niður úr, víðust um miðjuna en endar í nokkurs konar trekt efst. Glertappi með haldi í trektinni. Tappi í stútnum neðst úr gleri og keramiki. Flaskan er í rauðu járn stativi en neðst á því er stétt úr hvítu gleri þar sem miðjan er laus lítil glerskál sem felld er ofan í stéttina. Á flöskunni stendur: " 1 ml alcohol amylique 20° C". Tapinn efst er brotinn. Hér er um einhvers konar rannsóknartæki að ræða sem gæti hafa verið notað á rannsóknarstofu Síldarverksmiðju Ríkisins á Skagaströnd.
Minjasafn700
Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991) frá Háagerði (seinna Baldursheimi á Skagaströnd). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd tekin 1984.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn171

Hörður Torfason leikstýrði sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikverki Ólafs Hauks Símonarsonar, Ástin sigrar, leikárið 1988 - 1989. Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Á þessari mynd eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006), Óskar Óskarsson og Þorvaldur Skaftason.

Minjasafn 397
Gripur nr. 397. Stutt reipi með silgjum á sitthvorum enda. (Gætu verið gjarðishringir?)
Minjasafn 45
Gripur nr. 45. Mynd frá Haukagili í Borgarfirði tekin sumarið 1884. Fólkið á myndinni er ekki þekkt. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir.
Minjasafn 539
gripur 539. Tveir hraunhnullungar úr Heimaeyjargosinu 1973. Misstórir.
Minjasafn 463
Gripur nr. 463. Margnota plast-eggjabakki, sem hægt er að loka, gulur á lit. Hýsir 6 egg.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn118
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ara Þórsson sem var starfsmaður við nokkrar sýningar klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 547
Gripur nr. 547. Trésleif 36 cm á lengd.
1

107
108
109

167
Leita í myndasafninu
Leita