Beint í efni
Skagaströnd.is

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Minjasafn 255
Gripur nr. 255. Fantur, lítill úr hv´tum leir. Hæð 6 cm en ummál 3,5 cm. Úr Brautarholti frá Ólafi Guðmundssyni.
Minjasafn 109
Gripur nr. 109. A: Fantur úr ljósbeis lituðum leir, hæð 11 cm , breidd 7,5 cm. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994. B: Fantur´ljósbeis litaður leir, hæð 14 cm. Ekki vitað um gefanda.
Minjasafn 304
Gripur nr. 304. Svunta ísaumuð í hvítt léreft. Handfölduð með drapplituðu garni. Þrjár blómamyndir saumaðar neðst á kantinn á svuntunni. Band er á smekknum yfir hálsinn en smekkurinn er þríhyrndur. Blóm eru saumuð í spíssana og á brjóst. Hæð 70 cm en 64 cm breiðust. Var saumuð af gefanda árið 1939. Gefandi: Ingiríður Jónsdóttir Ólafsvöllum, Skagaströnd í júní 1982.
Minjasafn 63
Gripur nr. 63. Stór mynd af litlum torfæ. "Drottirnn blessi heimilið".
Leikklúbbur Skagastrandar - safn212
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Sveinbjörgu Dóru Sveinbjörnsdóttur (d. 25.9.2006) sem þátt tók í sýningum Leiklúbbsins á sínum tíma.
Guðmundur Guðnason 2 350
Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað " Frá Hestamannamóti hjá Hvammi í Langadal. Þórður á Grund." Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Minjasafn 92
Gripur nr. 92. Brúnn rammi með gylltum útlínum. í rammanum er mynd af kvenfélagskonum úr kvenfélaginu Eining og kvenfélaginu Heklu.
Minjasafn698
Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) sitjandi á tröppunum heima hjá sér að Laufási á Skagaströnd. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd tekin 1984
Minjasafn 138

Gripur nr. 138. Sex brýni ýmsar gerðir, sum mikið notuð, einnig grjótbrýni. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.

Texti4_ljosm_GunnarAlbertsson
Hér er verið að byggja lýsistankana stóru sem stóðu við Höfðann. Leiðslur lágu frá verksmiðjunni að tönkunum og líka frá þeim fram á Hafnargarðinn (Útgarð) til að skipa lýsinu út. Myndin er tekin 1945 eða 1946.
Minjasafn 328
Gripur nr. 328. Skátahnífur stállitaður með smá haki í fyrir ofan miðju. Hnífurinn er mjög þunnur. Lengd 19 cm. Þessi hnífur var notaður í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Eigandi hnífsins var Gissur Jóhannsson Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 461
Gripur nr. 461. Tvö stykki fléttaðar körfur. Önnur er brún en hin er máluð græn.
Minjasafn 193
Gripur nr. 193. Fiskispaði úr járni með tréhaldi. lengd 36 cm. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Skagaströnd í ágúst 1994.
Minjasafn702
Horfið hús, Ólafsvellir þar bjó lengi Jón Ólafsson. Stjórnsýsluhúsið í baksýn. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar tekin 1988 af Guðrúnu Þ. Guðmundsdóttur.
Minjasafn 372
Gripur nr. 372. Þrjú stykki rauðar úrklippubækur. Nýlegar, e.t.v. verið keyptar undir skipulag á fornmununum. Bækurnar eru tómar, þ.e. engar úrklippur í þeim.
Minjasafn 259
Gripur nr. 259. Glerbakki úr glæru gleri 10 x 10 cm með raufamunstri á hliðunum. Kemur úr búi Ólafs Guðmundssonar fá Brautarholti.
Minjasafn 125
Gripur nr. 125. Mynd af tjörninni í Reykjavík í brúnum viðarramma. Hæð 19 cm og breidd 24 cm. Gefandi: Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í ágúst 1994.
Minjasafn 148
Gripur nr. 148. Vatnskranar. Tveir úr kopar og einn úr stáli. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir Blönduósi í júlí 1994.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn073
Kristín Björnsdóttir les upp á æfingu hjá Leikklúbbi Skagastrandar á einhverju óþekktu leikriti.
Minjasafn 144
Gripur nr. 144. Hald af kommóðu, gylt 8,5 cm langt. Gefandi: Sigurlaug Valdemarsdóttir.
Minjasafn 556
Gripur nr. 556. Gler eða postulínsplatti með mynd af Húna II Hu 2 með Spákonufell í baksýn. Aftan á plattanum eru dálitlar upplýsingar um Húna.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn105
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ingiberg Guðmundsson sem gegndi mjög margvíslegum störfum við leiksýningar klúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 51
Gripur nr. 51. Lítill viðarrammi, rauðbrúnn eins og A í laginu. Í rammanum er mynd af óþekktum manni (Sigurður Guðmundsson frá Laufási?).
Minjasafn 655
Gripur nr. 655. Ryksuga, blá með álskafti. Geyminn er kúlulaga og stendur á fæti, engin hjól.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn206
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Jóhann Lúðvík Ásgeirsson sem tók þátt í sýningu Leikklúbbsins á sínum tíma.
Minjasafn 374
Gripur nr. 374. Smellurammi ónotaður. Er enn í pakkningunni en glerið er brotið.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn029
Myndin sýnir fólk við réttastörf í Spákonufellsrétt 1965. Á þessum tíma var mikið um sauðfé á Skagaströnd líklega 2-3000 kindur sem settar voru á á hverjum vetri.
Minjasafn 335
Gripur nr. 335. Kartöflustappari með grænu tréhaldi. Lengd 23 cm. Úr búi Sigríðar Ásgeirsdóttur og Jóhanns Péturssonar Lækjarbakka, Skagaströnd. Gefandi: Jóhann Pétrusson Lækjarbakka, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 494
Gripur nr. 494. Kökudiskur. Hvítur með blómaskreytingu í botni. Rimlaður á brúnum. Diskurinn er brotinn en brotin fylgja með þannig að hægt er að líma hann saman aftur.
Minjasafn 572
Gripur nr. 572. Útvarp. Brúnt, stórt með gulleita grind.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn127
Leikárið 1981 - 1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn í leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur (d. 25.6. 2009). Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Karlsson Berndsen.
Minjasafn712
Þessi mynd var líklega tekin á sjómannadegi 1945 eða 1946. Þá var haldið upp á daginn á Hólanesinu á blettinum milli Hólaneshúsins og Árness. Fólkið á myndinni er óþekkt. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi Gunnar Albertsson 29. september 1996.
Skagaströnd - safn340

Kirkjukór Hólaneskirkju á söngæfingu í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma á árunum 1960 - 1965. Við orgelið er Kjartan?? söngþjálfari en kórmeðlimir eru frá vinstri: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Ólína Gyða Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Edda Pálsdóttir, Erla Lárusdóttir, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Hallbjörn Hjartarson Brimnesi, Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi.

Minjasafn 383
Gripur nr. 383. Hvítur platti með gulum blómum. Áfastir eru þrír snagar - voru eitt sinn fjórir.
Minjasafn 280 no2
Gripur nr. 280. Lyklahús sem er eins og skápur og er skrárgat í miðju framan á. Lyklahengikrókar eru inni í skápnum og eru tvær hurðir á lömum á framhlið. Skápurinn er úr brúnum við. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 317
Gripur nr. 317. Svört myndavél, 13 cm löng og 8 cm breið. Framan á vélinni stendur: Rowstart. Vélinni fylgir ljósbrún leðurtaska með ól. Gefandi fékk vélina í fermingargjöf árið 1957. Gefandi: Ása Jóhannsdóttir Sunnuvegi 8, Skagaströnd í september 1994.
Minjasafn 451
Gripur nr. 451. Lítið rautt box með gylltum stöfum. Í lokinu stendur: "Ólafur Sveinsson, Austurstræti 5, Reykjavík, Talsími 311". Í boxinu er ryðguð nál vafin í bómull.
Minjasafn792
Í bókinni "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir eftirfarandi um þetta skip: "Höfðaborg Hu 10. Togarinn var smíðaður úr stáli í Selby á Englandi árið 1916 og keyptur til Íslands 1919. Hann var 337 brl. með 600 ha. 3ja þjöppu gufuvél og var fyrsti togarinn sem Skagstrendingar eignuðust. Skipið hét Belgaum RE 153 þegar það var keypt til Skagastrandar í nóvember 1951 og gert út til 1954 af Höfðaborg h/f. Eigendur þess voru Höfðahreppur og allmargir íbúar í kauptúninu. Þetta reyndust fremur slæm kaup því skipið var lélegt og t.d. urðu menn að strengja segldúksbleðla yfir efstu kojurnar til að beina dekklekanum fram á gólfið. Síðasta sumarið sem togarinn var gerður út fór hann á síldveiðar en árangur varð ekki mikill. Togarinn var seldur í niðurrif til útlanda og tekinn af skrá í maímánuði 1955." Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar. Gefandi: Helga Berndsen Karlsskála á Skagaströnd í júlí 1996.
Óþekktur ljósmyndari369
Þessir fjórir heiðurskarlar áttu sameiginlegt áhugamál: sauðkindina, ræktun hennar og velferð. Frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi, Jósef Stefánsson (d. 9.12.2001) frá Reykholti, Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013) frá Bakka og Baldvin M. Jóhannesson (d. 1.1.1981) frá Tjörn (seinna Ásholti). Á myndinni standa þeir framan við Skoda bifreið sem Jósef átti.
Minjasafn 603
Gripur nr. 603. Stór brún kista með stóru skrauti kringum skráargatið. Laus fjöl í botni. Lokið er laust af hjörunum. Höld á hliðunum. Kistan er 38 cm djúp, 68 cm breið og 37 cm löng.
Minjasafn 441
Gripur nr. 441. Lítil hvít kanna úr postulíni. Haldbrotin. Rauð lína með blómamunstri á miðri könnu og gylltar rendur með efri brún og neðan við miðju.
Minjasafn 72
Gripur nr. 72. Brúnn rammi með fjórum myndum. Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir og þrjár myndir um borð í Skíða Hu.
Minjasafn742
Björn Þorleifsson (d. 26.5.1956). Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn148
Leikárið 1984 - 1985 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Saumastofan Hraðar hendur eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Halldórs E. Laxness. Æfingar voru alltaf á kvöldin eftir 10 tíma vinnudag og um helgar. Þess vegna voru leikarar mis vel upplagðir á æfingum og stundum þreyttir. Hér hefur Magnús Blöndal (d. 7.9.2001) fengið sér kríu á gólfinu meðan hann bíður eftir að þurfa að koma inná sviðið.
Minjasafn 361
Gripur nr. 361. Sykurkar úr gleri. Glært með blárri slikju. Er með haldi. Gefandi: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir Lundi, Skagaströnd.
Skagaströnd - safn364
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1991 í skötuveislu starfsmanna Skagstrendings hf í Fellsborg. Á myndinni eru hjónin Elín Njálsdótttir og Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012).
Minjasafn 470
Gripur nr. 470. Lillu ediksýra, banvænt óblandað. Tappinn er bleikur. Enn er vökvi í glasinu.
Minjasafn 541
Gripur nr. 541. Tvær skeifur, gamlar og mjög ryðgaðar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 407
Þrátt fyrir grjótvörn vestan við gömlu síldaverksmiðjuna flæddi sjór inn á hafnarsvæðið í slæmum suð-vestan veðrum. Sjórinn safnaðist fyrir og var oft það djúpur að ekki dugði að fara þar um á stígvélum. Nú hefur grjótvörnin verið aukin og bætt þannig að þetta vandamál er úr sögunni að mestu.
Minjasafn 605
Gripur nr. 605. Koffort/taska úr tré. Er með haldi og ryðgaðri járnlæsingu. Járnhlífar eru á hornunum á lokinu að framan.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn114
Þessi mynd er úr fórum Leikklúbbs Skagastrandar. Hún sýnir Ólaf Bernódusson sem lék í nokkrum sýningum klúbbsins og var jafnframt starfsmaður við margar þeirra. Auk þess var hann formaður Leikklúbbsins árin 1979 - 1981.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn008
Mynd frá Norrænu skíðagöngukeppninni 1964 tekin við Vetrarbraut á Skagaströnd en þar norður frá var lögð skíðagöngubraut. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og svo var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Þátttaka í keppninni á Skagaströnd var góð eins og sjá má á þessari mynd þó fólkið sé óþekkt.
Minjasafn699
Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) frá Iðavöllum til vinstri og Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík á sjómannadegi 1985 eftir að hafa hlotið heiðurmerki sjómannadagsins. Myndin er í eigu Muna- og Minjasafnsins á Skagaströnd.
Minjasafn 34
Gripur nr. 34. Derhúfa. Tvær derhúfur, hvítar með bláu merki framan á merkt með fiski og stöfunum S og H (Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna?)
Minjasafn 573 no2
Gripur nr. 573. Útvarp. Stórt með gulleitri grind . Svart með brúnum hliðum.
Minjasafn 80
Gripur nr. 80. Brúnn rammi með gylltum hornum með mynd af Árna Svanberg frá Kambakoti. .
Minjasafn 295
Gripur nr. 295. Borðdúkur 76 x 74 cm. Dúkurinn er saumaður í hvítt léreft. Dregnir hafa verið þræðir úr léreftinu í þrjá bekki yst í dúknum. Hann er saumaður með nokkurs konar harðangri og klaustursaum. Fjórar dúllur eru heklaðar og saumaðar í hvert horn. Þessi dúkur er hreinasta listaverk.
Skagaströnd - safn379
Þetta fólk stoppaði til myndatöku á ferðalagi sínu, sennilega í listigarðinum á Akureyri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Standandi frá vinstri: Guðmundur Guðnason, óþekktur, Ása Hafsteinsdóttir, Úlfar Björnsson (aftar), Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, ?Þorbjörn Jónsson? (d. 2.9.1986), ?Guðmundur Lárusson? (d. 15.10.2002), fjögur óþekkt og Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Þeir sem krjúpa eru óþekktir nema Gylfi Sigurðsson sem er með húfu á höfðinu. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Minjasafn 522
Gripur nr. 522. Handsmíðuð berjatína úr tré með stálgöfflum.
Minjasafn 379
Gripur nr. 379. Mynd í ramma af móður og dóttur. Myndin er mjög máð og er í ramma sem er koparlitaður.
1

108
109
110

167
Leita í myndasafninu
Leita