Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
Sigmar Hróbjartsson - safn007
Á þessari mynd er verið að byggja annan af tönkunum sem stóðu við Höfðann
mundi513
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, smíði eikarbáta. Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) er lengst til hægri en Kári Sigurbjörn Lárusson í miðjunni. Maðurinn sem snýr baki í ljósmyndarann er óþekktur.
myndir frá Skagaströnd 043
Gunnar Lárusson (d.14.2.2016) frá Garðshorni.<br>
30600012
Hafnarvitinn fram á löngu bryggu, sem heitir í dag Útgarður. Vitinn var byggður 1951.
mundi503
Frá móttöku Arnars HU-1 1973 um miðjan október eftir heimsiglingu frá Japan þar sem hann var smíðaður. Gestir fara um borð til að skoða nýja skipið.
mundi573
Málfríður Jóhannsdóttir til vinstri og Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008) hægra megin ganga til kirkju á fermingardaginn 23.maí 1971
Jón Jónsson 120
Frágangur við topp kirkjuturnsins á Hólaneskirkju.
mundi604
Séra Pétur Ingjaldsson flytur tölu á ókunnum stað. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi542
Skagstrendingar á ferð á Hveravöllum tímasetning er óþekkt. Á myndinni má þekkja, talið frá vinstri: Hafsteinn Jónasson, Páll Jónsson, Jónas Skaftason, Pétur Ingjaldsson (með hatt), Daníel Magnússon, Kristján Hjartarson, Björk Axelsdóttir, Hildigunnur Jóhannsdóttir,Sveinn Kristófersson, Hörður Jónasson (strákur með hettu og gleraugu), Jóhanna Thorarensen, Óþekkt brosandi kona, Elísabet Árnadóttir, Óþekktur drengur, Eyrún Guðbjartsdóttir, Sigurbjörg Angantýrsdóttir, Edda Pálsdóttir, Sigurbjörg Hjartardóttir, Soffía Sigurðardóttir, Hrólfur Jónsson, Jón Pálsson, Karl Guðmundsson, Guðlaugur Guðlaugsson og Einar Guðmundsson bílstjóri.</P>
Þórarinn, Laufey og Sigrún Jónsbörn frá Brúarlandi
Þórarinn, Laufey og Sigrún Jónsbörn frá Brúarlandi.
mundi528
Ferðalangar frá Skagaströnd borða nestið sitt í skjóli við klettborg. Maðurinn sem stendur með hatt er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Jón Jónsson (d.9.7.1991) situr hægra megin við Pétur á myndinni, einnig með hatt.
mundi559
Óþekktur maður (Gerhart Smith úr Gautum frá Siglufirði?) leikur á píanó í Fellsborg
30600038
Kappreiðar á ókunnum stað
065
Gunnlaugur Björnsson og Ósk Þorleifsdóttir bændur á Efri-Harrastöðum með Gunnlaug Sigmarsson dótturson sinn í fanginu.
larus094
Frágangur lóðar Hólaneskirkju. Arkitektar kirkjunar eru: Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall.
30600006
<p>Síld var söltuð á Skagaströnd a.m.k. frá árinu 1935 þegar búið var að koma upp trébryggju í nýgerðri höfn. Síðan var saltað á hverju sumri í áratugi eða þar til síldin hvarf upp úr 1960. Þegar söltun var í gangi var aldeilis handagangur í öskjunni því fjöldi manns starfaði á planinu. Í þá tíð var öll síld söltuð í trétunnur en þær voru smíðaðar á Siglufirði. Á þessari mynd, sem sennilega hefur verið tekin einhverntíma á árunum rétt fyrir 1960, sést Volvo bíll Benjamíns Sigurðssonar (d. 30.9.2004) frá Skálholti með fullfermi af síldartunnum. Tunnurnar voru svo tíndar af bílnum á höndum því engir voru lyftarar á þessum árum.
mundi445
Kappróður á sjómannadegi. Stýrimaður á bátnum nær okkur er Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi534
Erla Björg Másdóttir frá Réttarholti við orgelið
30680038
Síldarævintýri. Unnið að síldarsöltun í hverju plássi á hafnarplaninu.
mundi547
Björgvin Jónsson (d.4.5.1992) og Soffía Lárusdóttir (31.3.2010) við vígslu Fellsborgar
Guðrún Guðbjörnsdóttir019
Fótboltaleikur á sjómannadegi.
mundi426
Frá vinstri: Stefán Jósefsson, Árni Ingibjörnsson og Óskar Jóhannesson í sparifötunum sennilega á fermingardaginn sinn.
mundi614
Anna Bjarnadóttir í Hólaneskirkju eldri á fermingardaginn sinn vorið 1972.
mundi599
Skagstrendingar á ferðalagi. Lengst til vinstri er Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), síðan koma hjónin á Árbakka Jakob Guðmundsson og Helga Hermannsdóttir. Hjá þeim standa hjónin Jón Jónsson (d.9.7.1991) og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
30600001
Jóhannes Pálsson fæddur 1951, fórst í sjóslysi við Suðurnes 1986.
mundi383
Starfskona - líklega Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) - stillir hitastigið í sundlauginni með því að skrúfa frá eða fyrir heitavatnsrennsli í hana.
mundi435
Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Óskar Kristinsson á öxlunum á Reyni Sigurðsyni og Karl Lúðvíksson. Myndin tekin ca 1960 í fjörunni sunnan við stóru skemmuna. Strákarnir áttu heima í útbænum og voru aldir þar upp. Á þessum tíma voru skörp skil á milli útbæjarins og innbæjarins og jafnframt milli útbæinga og innbæinga. Í baksýn má sjá Hafnarhúsið og framan við það eru hvítmálaðir síldarkassar því síld var söltuð á planinu við Hafnarhúsið.
018
Jóhanna Gunnlaugsdóttir Efri-Harrastöðum 19 ára gömul
30680004
Hjalti Skaftason á Hudson bíl sínum á bryggjunni á Skagaströnd.
Jón Jónsson163
Á myndinni eru frá vinstri talið: Jósef Stefánsson, Hermann Freyr Guðjónsson, Svanur Árnason, Karl Guðmundsson og Jón Jónsson.
mundi381
Börn að leik í sundlauginni á Skagaströnd. Frá vinstri: tvö óþekkt, Gréta Jónsdóttir, Hilmar Gunnarsson og Gylfi Jóhannsson.
mundi567
Ragnheiður Jónsdóttir (d.13.10.1994) móðir Sigurbjargar Björnsdóttur (d.3.4.1981) í Grund
30600024
Haraldur AK-10 við bryggju á Skagaströnd. Haraldur AK 10 var 199 brúttótonn með 550 He MWM vél. Þetta glæsilega skip var smíðað fyrir fyrirtæki á Skagatrönd (Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar og Hólanes h/f ??) í Noregi 1961 og hefði vafalaust verið skírt Aðalbjörg HU 5 ef menn hefðu ekki gugnað á síðustu metrunum og Haraldur Böðvarsson á Akranesi gekk inn í samninginn.
30600027
Síldarævintýri. Söltun í fullum gangi á hafnarplaninu í júlí 1961
larus040
Frá vígslumessu Hólaneskirkju þann 20. október 1991.<br>Biskupinn Herra Ólafur Skúlason við altarið og sóknarnefndarfólk ásamt prestum og meðhjálpara raða sér í kring. Frá vinstri: herra Bolli Gústafsson vígslubiskup á Hólum (1991 - 2002), Hallbjörn Hjartarson, herra Sigurður Guðmundsson fyrrverandi vígslubiskup á Hólum (1986 - 1991) áður prestur á Grenjaðarstað, Fjóla Jónsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, herra Ólafur Skúlason biskup, Steindór R. Haraldsson, Gylfi Sigurðsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Gunnlaugur Sigmarsson.
mundi455
<P>Fólk fylgist með stakkasundi í höfninni á sjómannadegi.</P>
mundi471
Óþekktur ræðumaður á sjómannadegi. Ef þú þekkir manninn vinsamlegat sendu okkur þá athugasemd.
mundi388
Félagsheimilið Fellsborg á áttunda áratugnum.
mundi417
Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001).
mundi519
Fremst á miðri mynd er Gunnarshólmi sem í daglegu tali var kallað Grafarbakki vegna nálægðar við mógrafir. Húsið var að lokum notað til æfinga fyrir slökkvuliðið og brennt.
mundi462
Viningslið karla í kappróðri af Arnari HU1 tekur við verðlaunabikarnum uppi á þaki skúranna við bryggjuna. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) kynnir dagsins, Björn Haraldsson (d.21.9.1988), óþekktur, Finnur Kristinsson, ?Björn Sigmundson?, Stefán Jósefsson, Ómar Jakobsson og Gunnar Sveinsson (d.3.11.20). Myndin var sennilega tekin 1971 eða 1972.
30600018
Síldarævintýri. Saltað á fullu á hafnarplaninu. Konan lengst til hægri er Ingibjörg Axelma Axelsdóttir. Við hlið hennar er Margrét Sigurðardóttir og svo kemur ?Fjóla Sigurðardóttir frá Laufási?
30680015
Húni Hu bíður löndunar í Skagastrandarhöfn
30680030
Vörubíll við Spákonufellsrétt sennilega einhverntíma á sjöunda áratugnum
Jón Jónsson161
Hér eru heiðursmennirnir Lúðvík Kristjánsson (d. 10.2.2001), Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) og Jóhann F. Pétursson (d. 13.1.1999) á sjómannadegi á Skagaströnd. Allir settu þessir menn sterkan svip á bæinn meðan þeir lifðu, hver á sinn ólíka hátt. Lúðvík bjó í Steinholti með konu sinni Sigríði Frímannsdóttur og fjórum börnum, Snorri í Höfðatúni með sinni konu, Jóhönnu Jónasdóttur, og syni en Jóhann bjó á Lækjarbakka og hans kona var Sigríður Ásgeirsdóttir og saman áttu þau fjögur börn. Myndina tók Jón Jónsson.
mundi506
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, smíði eikarbáta. Á myndinni eru, frá vinstri: Hinrik Jóhannesson, Hjörtur Guðbjartsson?, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) og Helgi Gunnarsson
002
Örn Guðmundsson kennari frá Þverárdal 1944
30600015
Síldarævintýri. Söltun í fullum gangi.
mundi422
Frá vinstri: Óskar Kristinsson og Reynir Sigurðsson í sparifötunum
mundi548
Dansleikur í Fellsborg. Fremst til vinstri er Guðrún Guðmundsdóttir aftar (með gleraugu) er Kári Lárusson og við hlið hans er Óskar Jóhannesson. Stúlkan í ljósu peysunni með græna kragann er Áslaug Hrólfsdóttir. Lengst til hægri er Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986).
mundi628
Guðbjartur Guðjónsson í ræðustól
mundi544
Ólafur Guðmundsson (6.10.1985) frá Brautarholti við réttastörf í Fellsrétt/Spákonufellsrétt.
mundi556
Réttarstörf í óþekktri rétt.
Sigmar Hróbjartsson - safn005
Á þessari mynd er verið að byggja þrærnar. Undirstöðurnar undir rörin milli skemmu og verksmiðju ekki komin 1945 - 46
mundi481
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973 , hann var smíðaður í Japan. Fólkið hlustar á ræður og bíður eftir að fara um borð til að skoða þetta nýja skip.
mundi448
Kappróður á sjómannadegi.
011
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum með tíkina Halló ca 1940
mundi553
Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) við störf sín um borð í bát
057
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í snjó
mundi428
Fermingarmynd af þeim Stefaníu Guðjónsdóttur til vinstri og Jóhönnu Ásmundsdóttur til hægri.
1
…
19
20
21
…
167
Leita í myndasafninu
Leita