Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
10.000 myndir
Flæði
Reitir
mundi402
Hofskirkja 1961
032
Brynhildur Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði og Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum bregða á leik árið 1948
001
Sigurmunda Guðmundsdóttir, María Guðmundsdóttir og Gyða???. Myndin tekinn við Kvennaskólann á Blönduósi ca 1954
hem020
Myndin er tekin við Einbúann um 1905, á henni má sjá lengst til hægri Jóhanna Hemmert með Hólmfríði dóttur sína, Friðrika (Lóa) Gunnlaugsson, Rósa og Gunna í Bráðræði, lengst til vinstri er Jón Sölvason og upp í brekkunni Leifi og óþekkt kona. Í baksýn sér í hús verslunarstjóra Höpnersverslunar
mundi570
Agnar Torfi Guðnason frá Mánaskál
Jón Jónsson126
Kaffiveisla við vígslu skíðaskálans um páska 19985. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson, Ardís Ólöf Arelíusdóttir, Erla María Lárusdóttir, Jóna Vilhjálmsdóttir, Viggó Brynjólfsson, Soffía Lárusdóttir, Árný Helgadóttir, tvær óþekktar stúlkur, Valgerður Kristjánsdóttir, Kristján Helgi Gunnarsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Jökull Sigtryggsson, Laufey Ingimundardóttir, Jón Ingi Ingvarsson og Hörður Ragnarsson.
mundi518
Ásholt til vinstri og Ás til hægri. Myndin er tekin af hlaðinu í Ægissíðu þar sem ljósmyndarinn Guðmundur Guðnason átti heima.
mundi546
Framboðsfundur fyrir Alþingiskosningar í Fellsborg. Björn Pálsson (d.11.4.1996) frá Löngumýri í ræðustól. Þorfinnur Bjarnason (d.6.11.2005) situr og stýrir fundinum.
Unnur Björnsdóttir
Unnur G. Björnsdóttir (d.14.12.1990).
mundi621
Myndin er tekin á dansleik í Fellsborg. Skreytingar á sviðinu benda til einhvers sérstaks tilefnis sem þó er óþekkt. Í hljómsveitinni eru Hallbjörn Hjartarson á orgel, Hjörtur Guðbjartsson á gítar, Rúnar Loftsson á trommur og Þorvaldur Skaftason á bassa.
mundi391
Sveitastjórnarkosningar 1970. Kjörstjórnin, frá vinstri: Haraldur Sigurjónsson (d.13.5.1986) frá Iðavöllum, Jóhannes Hinnriksson (d.27.10.1973) frá Ásholti og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppsstjóri.
mundi537
Fermingadrengirnir Marías Bjarni Viggósson og Guðmundur Viðar Guðmundsson ganga til kirkju.
mundi552
Frá vinstri: séra Pétur Ingjaldsson (d.1.6.1996), sr Árni Sigurðsson (d.26.10.2020) , sr Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991). Húsin á bak við eru,næst götunni, frá vinstri: Sólvellir, samkomuhúsið Tunnan og rafstöðin.
mundi523
Myndin er tekin í ferðalagi starfsmanna Guðmundar Lárussonar um Vestfirði 1973. Á henni eru Viggó Brynjólfsson (d.4.3.2021) og Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) kona hans. Maðurinn lengst til hægri er Hreinn Þorvaldsson( Hreinsi Búbba) bílstjóri í ferðinni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir006
<P>Fremst á myndinni eru Hjördís Sigurðardóttir sem leiðir barn og Hallbjörg Jónsdóttir móðri hennar</P>
038
Gunnlaugur Sigmarsson við stýrið á dráttarvél afa síns, Gunnlaugs Björnssonar
mundi486
Frá móttöku Arnars HU-1 um miðjan október 1973, hann var smíðaður í Japan. Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf í ræðupúlti.
30600020
Síldarævintýri. Söltun í gangi á hafnarplaninu
mundi609
<P>Veisla í Fellsborg af óþekktu tilefni. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Hörður Ragnarsson, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Sigurbjörg Angantýrsdóttir, Björgvin Jónsson, Þorgerður Guðmundsdóttir, Björk Axelsdóttir, Jón Pálsson. Fremst hægra megin er Páll Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
019
Óþekkt stúlka í snjó
Guðmundur Guðnason685
<P>Systkinin Guðbjartur Sævarsson og Agnes Sævarsdóttir.</P>
Sigmar Hróbjartsson - safn013
Menn sem unnu við byggingu verksmiðjunnar 1945 - 46 bjuggu í tjöldum. Tjaldborgin var á túninu neðan við Tjaldklaufina. Aðkomuverkamennirnir sváfu í tjöldunum en borðuðu í mötuneyti.
Guðrún Guðbjörnsdóttir032
Saltfiskvinnsla Hólaness hf. Danica Zupancic og Þórhalla Þórhallsdóttir salta fisk.
mundi633
Ingvar Jónsson hreppsstjóri stjórnar húrrahrópum á samkomunni.
060
Elísabet Kristjánsdóttir frá Háagerði og Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í snjó
047
Hyrntur hrútur frá Brandaskarði í taumi, sennilega um fengitímann
Ólafur Bernódusson009
Austur og norður hliðar Bjarmaness. Búið að brjóta niður annan skorstein hússins og framkvæmdir í fullum gangi
mundi636
<P>Jón Ísberg sýslumaður í ræðustól í Fellsborg líklega við vígslu Fellsborgar 1971</P>
034
Talið frá vinstri: Ingibjörg Sigurðardóttir Blönduósi, Jóna Vilhjálmsdóttir, Unnur Björnsdóttir og Margrét Konráðsdóttir allar frá Skagaströnd
Jón Jónsson162
Drengurinn lengst til vinstri er Jósef Stefánsson, síðan Hermann Guðjónsson (með hvíta blöðru), Svanur Árnason og Karl Guðmundsson. Maðurinn með hattinn er Jón Jónsson.
mundi428
Fermingarmynd af þeim Stefaníu Guðjónsdóttur til vinstri og Jóhönnu Ásmundsdóttur til hægri.
30680039
<P>Síldarplanið á bryggjunni. Myndin er sennilega tekin um bjarta sumarnótt um miðjan júlí 1961. Löndun úr Hrafni Sveinbjarnarsyni Gk 255 stendur yfir. Heimild er Sveinn Torfi Þórólfsson sem þá var 15 ára háseti á Hrafni og man eftir Guðmundi ljósmyndara að taka myndir við þetta tækifæri.
mundi594
Myndin er tekin á organistanánskeiði í Blönduóskirkju 1969 (1970 ?). Aftari röð: Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012)Skagaströnd, Sigríður Kolbeins Melstað , Guðmann Hjálmarsson (d. 21.8.1973) Blönduósi, Hávarður Sigurjónsson Blönduósi, Þórður Hannesson Galtanesi, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) Skagaströnd. Aftastur stendur Róbert Abraham Ottósson. Fremri röð frá vinstri: Ingibjörg Bergmann Blönduósi, Sólveig Sövík Blönduósi, Pétur Ingjaldson (d. 1.6.1996) Skagaströnd, Sigrún Grímsdóttir Saurbæ, Gerður Aðalbjörnsdóttir (d.12.6.2007) Hólabæ Langadal.
014
Gunnlaugur Björnsson rifjar hey
061
Þessi mynd er líklega af Hallfríði Hjördísi Haraldsdóttur í Hafnarfirði
mundi516
Þetta er Laufás byggt af Sigurði Guðmundssyni (d.2.12.1984) smið giftur Margréti Björnsdóttur (d.11.9.1993) frá Syðra-Hóli á Skagaströnd. Hann var með trésmíðaverkstæði á neðri hæðinni en þau bjuggu á þeirri efri. í Útbyggingunni til hægri var fjós. Húshlutann til vinstri byggði Jón Kristjánsson Jónsson (d.20.12.2017) og Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988).
Guðrún Guðbjörnsdóttir016
<P> Þorleifur Þórarinsson (Diddi) frá Neðsta-bæ og Sveinbjörn Jónsson frá Skálholtsvík gera að fiski um borð í Húna Hu 1 1962 -´63.</P>
mundi400
Tveir óþekktir ungir drengir í Hofskirkju 1961. Ef þú þekkir drengina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
mundi563
Í kaffiboði líklega á vegum Lionklúbbs Blönduóss. Anna Tryggvadóttir lengst til vinstri, óþekktur, Svanhildur Þorleifsdóttir, Ragnar Þórarinsson og svo Guðfinna Pálsdóttir.
30680002
Síldarlöndun úr Húna Hu 1
30680024
Húni HU-1 landar fullfermi af síld. Lengst til vinstri er Magnús Magnússon með hvíta derhúfu, fyrir aftan hann er Björn Haraldssson (d.21.9.1988) Maðurinn með gráu derhúfuna er Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), þá sést í bakið á Sigmari Jóhannssyni (d.20.4.2000) og lengst til hægri er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020). Næst mastrinu má greina hnakkasvipinn á Gunnari Albertssyni (d.27.7.2019).
mundi527
Á ferðalagi um vestfirði. Fremst á myndinni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í rauðum bol en maðurinn með harmónikuna er Kristján Hjartarson (d.2.8.2003). Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) er fyrir miðri mynd í dökkri peysu og hjá honum er kona hans Guðrún Angantýsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
mundi515
Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001) frá Steinholti flettir Biblíunni í predikunarstól í kirkjunni í Möðrudal í N - Múlasýslu í hringferð með starfsmönnum Guðmundar Lárussonar kringum 1970.
hem017
Fremst á myndin má sjá Jóhönnu Hemmert sitja líklega ásamt dóttur sinni Hólmfríði á túninu og vinnufólkið er í heyskap. Lengst til hægri er íbúðarhús verslunarstjóra Höphnersverslunar ljóst á litinn. Það var byggt 1774 en rifið 1908. Næst því er fjós og hesthús kaupmannsins sem sennilega var einnig notað sem pakkhús að hluta. Lengra til vinstri er lítið hús sem ber í stærra hús en litla húsið er Assistentastofa eða íbúðarhús verslunarþjónsins sem starfaði í versluninni. Ljósa lágreista húsið er verslunin sjálf en áfast við hana er háreist pakkhús. Við hornið á pakkhúsinu sér í þúst en það er íbúðarhúsið Sæmundsenbúð. Til vinstri við fólkið koma Brúarland, Móar, Lækur, Lækjarbakki, Karlsminni og Viðvík í röð. Fyrir neðan Viðvík er bátur og í fjörunni er Semingssteinn. Á Hólanesinu handan við víkina er stórt íbúðarhús og verslun Carls Berndsen og fram af því Árnes. Litla húsið, vinstra megin við Hólaneshúsin er Stiesenbær. Nær fjöllunum til vinstri er Stóra Berg og efst Litla Berg. Innst með ströndinni til hægri sést Bráðræði. Myndin er tekin fyrir 1907 sennilega árið 1904.
mundi423
Ástmar Ingvarsson (d.10.10.1977) frá Balaskarði (Addi Bala) við bílinn sinn utan við heimili sitt í Héðinshöfða. Þennan bíl gerði Addi út til fólksflutninga við miklar vinsældir.
009
Hallbjörn Andrésson frá Neðri-Harrastöðum. Myndin tekin ca 1940
Skagaströnd verksmiðjan 001
Hér er verið að vinna við byggingu færibands fram á löndunarbryggjuna
mundi512
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, smíði eikarbáta. Mennirnir eru óþekktir.
30600023
Drekkhlaðinn síldarbátur, Hrafn Sveinbjarnarson GK, bíður löndunar í Skagastrandarhöfn um miðjan júlí 1961
30600016
<P>Síldarsöltun í fullum gangi á planinu á höfninni. Myndin tekin einhverntíma í kringum 1960.</P>
Ólafur Bernódusson008
Austruhlið Bjarmaness. Búið að rífa tröppur og forstofu sem þar voru.
Sigmar Hróbjartsson - safn008
Myndin er tekin 1945 - 46. Verksmiðjan er í byggingu og skip liggur við hafnargarðinn sem er á þessum tíma mun styttri en hann (Útgarður) er í dag. Skipið á mydnini er varðskipið Ægir smíðað 1929. Dökka bóman, sem virðist tengjast afturmastrinu á Ægi, er í raun á krana sem var við vinnu á bryggjunni.
mundi453
Sýning á björgun með fluglínutækjum á sjómannadegi. Báturinn er Helga Björg Hu 7.
mundi610
Skagstrendingar á ferðalagi um Vestfirði árið 1973 eða 1974.
Guðrún Guðbjörnsdóttir005
Hulda Magnúsdóttir
30680005
Hér er verið að landa á Volvo vörbílinn H 221. Bíllinn var í eigu Sigurðar Magnússonar (Siggi pípa) sem er þarna til hliðar við bílinn bílstjóra megin. Báturinn lengst til hægri er líklega Stígandi HU 9.
Guðrún Guðbjörnsdóttir009
Guðjón Jónsson (Gutti) blæs í blöðru í tunnuleik á sjómannadegi
Jón Jónsson122
Steypuvinna við nýju kirkjuna
mundi635
Bernódus Ólafsson í ræðustól í Fellsborg
30680026
Á miðri mynd er Gunnar Albertsson vélstjóri á Húna HU-1. Drengurinn sem situr er Sigurjón Ástmarsson, Sigmar Jóhannesson er við löndunartunnuna.
1
…
20
21
22
…
167
Leita í myndasafninu
Leita